|
miðvikudagur, júní 1Komin með nýja síðu! Hér eftir birtast fréttir af okkar heimili á nýrri síðu, þ.e. http://eyrunl.tkol.dk. mánudagur, maí 30Gangsetningardagsetning og ný myndavél Dagurinn í dag hefur verið frekar viðburðarríkur hjá okkur skötuhjúum. Fórum í síðasta skiptið til læknis á þessari meðgöngu þar sem við fengum að skoða litlu krílin okkar í sónar og fá að vita að þau eru núna bæði í höfuðstöðu og tvíburi 2 mældist 3166gr með rúmlega 500gr skekkjumörk. Tvíburi 1 er eins og síðast skorðaður og því ekkert hægt að mæla höfuðið. Útvíkkun er nú þegar komin upp í 2 og fengum við gangsetningardagsetningu næsta fimmtudag ef ég verð ekki þá þegar farin af stað. Eftir læknisheimsóknina skelltum við okkur í Fotohuset Virum og keyptum okkur nýja myndavél. Fyrir valinu varð Canon EOS 350D sem við erum búin að vera að stúdera undanfarna daga. Myndavél ríkari og nokkrum krónum fátækari skelltum við okkur smá stund í Lyngby Storcenter og þegar heim var komið og ég búin að stoppa aðeins hjá Guðbjörgu var ég svo þreytt að ég lagðist í sófann og steinsofnaði. Ekki finnst mér neitt voða gott að sofa í sófanum þ.a. fljótlega færði ég mig inn í rúm og hélt áfram að sofa þar. Veitti ekki af, var alveg uppgefin (en mjög svo sátt) eftir daginn. laugardagur, maí 28Brunarústir Það er virkilega hættulegt að fá gott veður úti... Ég sat úti hjá Guðbjörgu í gærdag í ca 3 1/2 tíma og eftir smá tíma ákváðum við að sólarvörn væri nú góður kostur. Guðbjörg átti mest nr. 8 þ.a. það var borið á og þar sem ég vildi nú frekar vera on the save side þá bar ég ansi oft á mig. Það virkaði nú ekkert svakalega vel því hendurnar mínar eru þvílíkt brunnar og mig logsvíður alveg:( Andlitið er líka vel grillað:( Að auki er ég með brenndan hring fyrir ofan hnéð!!! Síðan ég kom inn í gærdag er ég búin að vera ansi öflug með after sun-ið, og fór líka í frekar kalda sturtu fyrir nóttina. Í nótt bar ég svo aftur á mig nokkrum sinnum þegar ég fór á klósettið, vona að þetta fari nú að skána bráðum. Í dag er svo tiltektar- og þrifnaðardagur, Jobbi ætlar að vera svaka duglegur þ.a. manni líði eins og krílin megi bara fara að láta sjá sig;) Enda er Helga Björt alveg viss um að þau fæðist á morgun. Margrét var nú líka viss um að þau myndu fæðast á fimmtudaginn en þau hafa ennþá ekki látið sjá sig;) Ég giska á þriðjudaginn 31. maí því það hefur enginn giskað á þann dag;) fimmtudagur, maí 26Mæðraskoðun, straujun og matarboð og það allt á einum degi!! Geri aðrir betur í mínu ástandi;) Ótrúlega stollt af dugnaðinum í mér ef það skyldi fara framhjá einhverjum:-) Þar sem ég hafði líka sofið of lítið nóttina áður (var andvaka og þurfti svo að vakna eldsnemma) þá var ég vel þreytt í gærkveldi og ég svaf eins og sveskja í nótt!! Vaknaði jú tvisvar til að heilsa upp á kamarinn en ég sofnaði í bæði skiptin um leið aftur!! Ekkert smá ljúft, sérstaklega í ljósi þess að ég á oft mjög erfitt með að sofna eftir seinni ferðina þar sem það er aðeins farið að birta þá. Ligg oft í 1-2 klukkutíma andvaka!! Í dag tekur svo við meiri frágangur á þvotti, langar voða mikið að ná að klára að þvo og strauja allt áður en krílin láta sjá sig. þriðjudagur, maí 24Þvottadugnaður... Síðan þvottavélin fór í gang á sunnudaginn hefur hún varla fengið frið. Í gær þvoði ég 3 vélar og er líka búin að þvo 3 vélar í dag. Allt var þetta barnadót sem ég er búin að vera að þvo, ekki bara föt heldur líka sængur, utan um dýnana, utan um brjóstagjafapúðann, kantur í rúmið og þess háttar. Er reyndar bara rétt byrjuð að strauja en ég hef vonandi orku til að komast e-ð áfram með það á morgun eða hinn... Annars bauðst tengdó til að strauja fyrir mig, væri nú algjör snilld bara ef hún væri í sama landi og ég... Ég fékk heimsókn áðan, Elva Rún kom og spjallaði aðeins við mig og fékk frostpinna sem ég hafði lofað henni fyrir löngu. Hún ætlaði síðan út að leika á leiksvæðinu við hliðina á húsinu okkar og átti að koma aftur inn til mín þar sem Guðný hafði hringt og látið mig vita að þau væru útí gám og enginn heima (eru að pakka í gáminn fyrir flutningana til Íslands). Eftir dálítinn tíma hafði ég ekkert heyrt aftur frá Elvu Rún þ.a. ég fór út á leiksvæði og engin Elva þar. Reyndi að hringja heim til þeirra en enginn svaraði þ.a. ég tók mér smá heilsubótargöngu að rekka 4 en engin Elva Rún fannst. Ég hringdi í Jobba og lét hann vita að ég væri búin að týna barninu sem var í heimsókn hjá mér!!! Ég nennti bara ekki að labba út að gámnum til að athuga hvort hún væri þar:/ Stuttu seinna náði ég í Guðnýju og þá hafði litla skottan farið til þeirra og var því ekki lengur týnd:) mánudagur, maí 2336 vikur í dag... Frá því fyrir löngu síðan hef ég sagt að ég vonaðist til að ganga allavega 36 vikur með þessi kríli mín. Í dag eru þessar 36 vikur liðnar og ekkert bólar á krílunum, sem er nú bara gott. Það væri nefnilega gott að ná 37 vikunum því þá flokkast þessar elskur ekki sem fyrirburar lengur. Enda á ég líka eftir að dunda mér við ýmislegt áður en þau fæðast og vikutími væri fínt fyrir það;) Annars enda ég næstum pottþétt á því að verða sett af stað ca við 38 vikurnar því þeim líður svo vel inní mér;) Í gær skelltum við Jobbi okkur í sund í næstum fyrsta skipti. Fórum einu sinni í sund í fyrrasumar með fjölskyldu minni rétt hjá sumarhúsinu sem við vorum í. Í gær skelltum við okkur í sund í Bagsværd sem er rétt hjá Lyngby og Guðný mælti með. Þau hafa víst oft farið með börnin þangað en þar er ekki bara ísköld laug, þótt það hafi nú alveg vantað heitu pottana;) Þvílíka athyglin sem ég fékk!!! Ég er orðin nokkuð vön því að fá athygli frá ókunnugum út á götu en í bikiníinu í sundi, vááá maður. Það var eins og fólk hefði aldrei séð ólétta konu áður!! Einn lítill strákur sem ég mætti með pabba sínum snéri sér t.d. heilhring og sagði "vááááá" í leiðinni!! Annað merkilegt sem gerðist í gær var að þvottavélin okkar var tengd og þvegin fyrsta vélin. Framundan er því meiri þvottur en nú á barnafötum:) Að lokum henti ég inn örfáum bumbumyndum í albúmið okkar í gærkveldi. Greyið Margrét systir fer alltaf næstum að grenja þegar hún sér myndir af mér því henni finnst þetta víst svo hrikalegt og vorkennir mér;) Ég mun minna hana á það þegar hún fær svona bumbu einhvern tímann í framtíðinni;) sunnudagur, maí 22Sofið yfir júróvision Ég fer að verða ansi sjóuð í að sofa yfir júróvision;) Á fimmtudaginn hittust nokkrir Íslendingar héðan af kollegíinu uppí centerbyggingu, borðuðu og horfðu svo á forkeppnina. Ég rétt náði að sjá helminginn af lögunum og þá steinsofnaði ég og rétt svo vaknaði þegar var tilkynnt hvaða lönd kæmust áfram. Í gær voru Guðbjörg og Vignir hjá okkur, við grilluðum og horfðum á keppnina. Ég hélt mér nú alveg vakandi yfir öllum lögunum og aðeins lengur en um leið og skemmtiatriðin byrjuðu þá sofnaði ég, en samt ekki fyrr en ég var búin að biðja Jobba um að vekja mig þegar stigagjöfin myndi byrja. Ég rétt rumskaði þegar stigagjöfin byrjaði og aftur þegar Ísland var að gefa stig (þ.e. ég sá hana heilsa og svo ekkert meir...) og svo vaknaði ég ekki fyrr en bara allt sjóvið var búið. Mætti halda að ég ynni e-a erfiðisvinnu, en lægi ekki bara heima allan daginn alla daga;) Síðast þegar ég skrifaði var ég á leiðinni til læknis og í sónar. Það var nú meiri ferðin. Kom svo sem ekkert merkilegt út úr þeirri ferð, alveg vita vonlaust að mæla tvíbura 1 því höfuðið er komið svo djúpt ofan í grindina. Magamálið var samt e-ð minna en hjá tvíbura 2, en tvíburi 2 mældist 2628gr eða ca 10,5 merkur. Það sem var svona "merkilegt" við þessa læknisheimsókn var að við áttum tíma hjá "okkar" lækni sem er ein af tveimur sem eru sérstaklega með tvíbura. Neinei, hún var ekki við (veit ekki af hverju) og við fengum e-a beyglu í staðinn sem virtist EKKERT vita og var STÓRSKRÍTIN á alla kanta!! Tvíburi 1 er með höfuðið niður í grindina en tvíburi 2 sitjandi (voru bæði í höfuðstöðu í síðasta sónar...). Hún gat t.d. ekki mælt höfuðið á tvíbura 1 því það var svo djúpt í grindinni, en eftir allar mælingarnar hélt hún því fram að hún hefði getað mælt tvíbura 1 (tók meira að segja fram þann sem var með höfuðið niður!) en ekki tvíbura 2. Samkvæmt skemablaðinu á ég að fara til læknis einu sinni enn, en hún sagði bara nei átt ekki að gera það. Hún hefði getað pantað tíma fyrir mig í gangsetningu en þegar við sögðumst ekki vilja gangsetningu akkúrat við 38 vikur (6.júní, afmælisdagur Jobba) þá fór allt í kerfi og hún gat ekkert gert!!! Hló bara eins og vitleysingur og gat varla skrifað þegar ég sagði henni af hverju við vildum ekki gangsetningu 6. og 7. júní. Hún var s.s. SNAAAAARRRBILUÐ! Eitt sagði hún þó sem ég tók mark á (því það hentaði mér;)), það var að ég mætti alveg fara á fætur ef ég passaði bara að hvíla mig nóg og leggja mig ef ég færi að fá marga samdrætti. Ég er því ekki alveg jafn rúmföst og ég var áður, leyfi mér meira að fara fram og dunda mér aðeins. miðvikudagur, maí 18Leiðist... Héðan er akkúrat ekkert að frétta... ég hlýði bara nokkuð vel því að liggja og er um það bil að deyja úr leiðindum yfir því... og ég sem er bara búin að liggja núna í 3 daga!! Finn töluvert minna fyrir samdráttum og á ég því ekkert von á að fara að unga út neitt á næstu dögum. Sem er líka bara gott, því þau eru svona helst til lítil ennþá. Fer annars til læknis og í sónar á morgun og á að reyna að mæla stærðina á þeim, verður forvitnilegt að vita hvort tvíburi 1 vill leyfa mælingar á sér í þetta skiptið. Vona að allt líti svo vel út að ég geti leyft mér að fara að horfa á júróvision með hinum Íslendingunum á kollegíinu á morgun. Verður víst bara allt að koma í ljós... mánudagur, maí 16Komin aftur heim Eftir rétt rúmlega sólarhringsdvöl á spítalanum, fékk ég leyfi til að fara aftur heim með því skilyrði að ég myndi liggja í rúminu þar. Er búin að standa alveg við það síðan ég kom heim, en shit hvað þetta fer að verða leiðinlegt... Áður en ég fór heim þá var búið að koma í ljós að samdrættirnir höfðu minnkað aðeins (aukast hins vegar um leið og ég tek mig til og sest eða stend þ.a. það er nú kannski eins gott að hlýða) og þrýstingurinn frá tvíbura 1 hafði líka minnkað til muna. Við erum því öllu bjartsýnni í dag en í gær að ég nái að halda þeim inni töluvert lengur. sunnudagur, maí 15Rúmliggjandi Í morgun ákvað ég að róa mig og mína paranoju og hringja niður á spítala og spyrja út í samdrættina og túrverkina sem ég er búin að vera með undanfarið. Átti nú ekki von á öðru en að ég myndi bara vera send heim með þau skilaboð að þetta væri nú bara alveg eins og það á að vera þegar maður er kominn þetta langt og hvað þá með tvíbura. Ljósmóðirin átti held ég heldur ekki von á öðru. Hins vegar kom í ljós að leghálsinn er alveg orðinn styttur og fullmjúkur og byrjaður að opnast aðeins með höfuðið á tvíbura 1 þar beint fyrir ofan að þrýsta niður. Sýking í þvagi er talin skýringin á þessu og fékk ég því sýklalyf gegn sýkingunni. Ég var því lögð inn og á að liggja sem mest og helst ekki sitja eða standa því það þrýstir meira niður. Það myndi muna miklu fyrir bæði okkur og börnin ef þau haldast inni í viku eða tvær lengur þó ekkert verði gert til að stoppa fæðingu ef hún fer af stað. Var smá sjokk að átta sig á að þetta gæti farið að gerast því ég hef alltaf gert ráð fyrir að fæða ekki fyrr en ég yrði sett af stað í kringum 38 vikurnar. Vonum nú samt að þetta róist og ég fái að koma fljótlega aftur heim því ég á alveg eftir að dunda mér við að þvo barnafötin;) Sem betur fer erum við þó búin að kaupa næstum allt sem vantar og meira að segja búin að ákveða okkur með þvottavél sem verður keypt í næstu viku. Annars er nú ekkert alslæmt við að vera hérna (reyndar finnst mér eiginlega það eina slæma vera maturinn, hann er yfirleitt frekar dapur;)) en ég er á einkastofu hérna og Jobbi fær að gista hérna hjá mér. mánudagur, maí 9Afmælisbörn dagsins eru tvö:-) Til hamingju með 26 ára afmælin ykkar bæði Bína og Guðbjörg!! Við fórum í svaka kökuboð heim til Guðbjargar í gærdag og átum allt, allt, allt of mikið!! Eða svona álíka mikið of mikið eins og í afmælinu á laugardaginn hjá Elvu Rún! Ég held ég sé löngu hætt að kunna mér hóf í svona gúmmelaði;) Svo af því að það er svo gaman að spjalla um veðrið þá verð ég nú aðeins að minnast á þetta furðulega veður sem er búið að vera hérna í dag. Í mest allan dag er búið að vera bara fínasta gluggaveður (ekki enn búin að fara út úr húsi þ.a. ég veit ekki hvort það er jafn gott og það lítur út fyrir að vera;)). Allavega, en inn á milli kemur þetta líka þvílíka haglél að það nötrar allt og skelfur. Það gerðist líka á föstudaginn þegar við Guðbjörg vorum að keyra niður í Lyngby að það byrjaði að rigna í sólskini. Ég hélt að svoleiðis gerðist næstum bara á Íslandi;) Að lokum, þá lét ég inn örfáar nýjar bumbumyndir í gærkveldi... föstudagur, maí 6Fyrsta slitið mætt á bumbuna:-( Föstudagurinn 6. maí 2005 verður héðan í frá sorgardagur:-( Ég uppgötvaði fyrsta bumbuslitið í morgun og er því búin að vera heldur betur mikið svekkt í allan dag. Allt upp í fjórar og hálfa vikur eftir og því víst nægur tími fyrir bumbuna að gera alls konar óskunda og slitna jafnvel meira. Við Guðbjörg skelltum okkur örstutt niður í Lyngby til að versla í dag og urðum vitni að þvílíkum mannfjölda samankomnum að við höfum sjaldan orðið vitni að öðru eins. Það var jú frídagur í gær eins og á Íslandi og það er bara eins og Danir fari hamförum og allir þurfi í bæinn til að vinna upp gærdaginn. Fólk er líka með eindæmum óþolinmótt og lenti ég oftar en ekki í því að fólk labbaði hreinlega á mig þar sem ég stóð og var greinilega fyrir þeim. Fékk á mig innkaupakerrur þegar ég stóð við einn kælinn og þar fram eftir götunum. Ekki mjög sátt við fólk í dag, fannst það ekki taka tillit til mín, og ég sem er bæði kasólétt og mjög svo miður mín vegna slæmra frétta fyrr um daginn;) fimmtudagur, maí 5Reef'n'Beef Loksins, loksins, loksins!! Mig er búið að langa til að fara á Reef'n'Beef alveg ótrúlega lengi en aldrei höfum við látið verða að því fyrr en í gærkveldi. Fórum með Guðbjörgu og Vigni og átum á okkur gat! Þríréttað var það hjá okkur Guðbjörgu en strákarnir voru e-ð feimnir við að fá sér eftirrétt;) Eftir að hafa langað mjög lengi að fara að borða þarna þá var smá hætta að ég yrði fyrir vonbrigðum því ég var búin að byggja upp ansi miklar vonir um góðan mat, en ég varð sko ekki fyrir vonbrigðum. Reyndar borðaði ég ekkert sér ástralskt eins og planið var, því þegar ég pantaði mér emúa þá sagði þjónninn að emúi væri alltaf borinn fram frekar rear þ.a. það væri kannski ekki sniðugt fyrir feitabollu eins og mig. Ég fékk mér því Tasmaninan Devil í staðin sem var nautalund og váááá hvað hún var góð. Hefði líka eiginlega ekki trúað því fyrirfram að ég gæti borðað alla þrjá réttina og gat staðið upp á eftir!! Var reyndar ekki nógu spræk til að hlaupa út án þess að borga eins og strákarnir voru e-ð að reyna að stinga uppá. Síðast þegar ég skrifaði minntist ég á að mér væri alltaf illt í bakinu, það á sko alveg við ennþá en eitt hefur bæst við. Ef ég sit lengi á stól þá verður mér ekki bara illt í bakinu heldur í rassinum líka!! Þessi 12kg sem hafa bæst á mig, eru jú eiginlega öll fyrir ofan mitti og það er því aðeins meiri þyngd sem hvílir á rassinum þegar ég sit heldur en venjulega;) Spurning hvort ég þurfi að mæta með púða með mér hér eftir til að sitja á;) þriðjudagur, maí 3Kvart og kvein er þetta... Margrét kvartar um leið og ég hætti að blogga daglega næstum því, þ.a. það er eins gott að reyna að standa sig:-) Ástæðan fyrir bloggleysinu undanfarna daga er hreinlega að ég hef eiginlega ekkert verið í tölvunni. Bara rétt kíkt í smá stund þegar ég hef farið í hana. Ástæðan er einföld, ég fæ svo hryllilega illt í bakið á að sitja við tölvuna:( Reyndar fæ ég næstum alltaf illt í bakið, ligg, sit og stend... þ.a. ég sé fram á að vera bara illt í bakinu næstu vikur:( Fyrir utan þreytu og bakverk og jú oft þreytuverki í grindinni þá er bara ljómandi fínt að frétta af mér. Reyni að láta dagana líða ekkert of hægt, það gengur mjög svo misvel. Í gær gekk það t.d. mjög vel. Fékk heimsókn frá Elvu Rún sem vill held ég bara flytja inn til mín, fór svo í heimsókn til Fjólu, á leiðinni þaðan kom ég líka við hjá Gunna og Nínu og þaðan fór ég örstutt til Guðnýjar og Róberts (og auðvitað Elvu Rúnar líka). Til að toppa allt, þá hitti ég Önnu Karen út á plani. Ég hitti því uþb helminginn af íslendingunum búsettum hérna á einum degi og aldrei fleiri en eina fjölskyldu í einu. Í dag er svo læknisheimsókn og sónar, alltaf jafn gaman að kíkja og sjá hvað þessar elskur eru orðnar stórar:-) Allavega á meðan allt kemur vel út, sem það hefur gert hingað til. Best að koma sér í sturtu svo ég mæti nú á réttum tíma niður á spítala... fimmtudagur, apríl 28Eyrún sauður Í dag var ég með eitt verkefni og merkilegt nokk þá er ég búin með það. Þetta verkefni var s.s. að baka eina betty crocker fyrir prjónaklúbbinn í kvöld. Held hún hafi líka heppnast bara ágætlega þó ég sé nú ekki búin að smakka (bragðið getur nú varla klikkað...). En til að baka betty, þá þurfti að bæta við vatni, olíu og eggjum. Vatnið og eggið gekk alveg ljómandi vel, en þegar ég var að hella olíunni úr mæliglasinu þá var ég e-ð svo svakalega ógáfuð að hella ekki inn að miðju, heldur út að kanti!! Þið getið kannski giskað ykkur til um rest... jújú auðvitað fór slatti af olíunni þá ÚTFYRIR skálina!!!! Matarolía því ÚTUM ALLT!!!! JAKK!!! þriðjudagur, apríl 26Nokkuð öflug... Eftir að hafa sofið næstum fram að hádegi þá þurfti ég að drífa mig út því við Jobbi vorum búin að ákveða að borða saman hádegismat. Í framhaldi af því, fór ég á pósthúsið með fullt af bréfum og pökkum, keypti e-n mat í Nettó og eins og það væri ekki nóg fyrir mig, þá þvoði ég 2 vélar!! Annar eins dugnaður hefur ekki sést á mínu heimili ANSI lengi, en ég er líka frekar þreytt núna... Jobbi fer líka vonandi alveg að koma heim til að dekra við mig:-) Annars hef ég það bara nokkuð fínt, finnst samt vera að teygjast frekar mikið á bumbunni núna að mér líður eins og skinnið sé að rifna í vinstri hliðinni:/ Ekki er það af því að húðin er e-ð þurr, því ég er svo rosalega dugleg að bera olíu og krem á bumbuna. Þó svo að maður heyri reglulega að það geri ekkert gagn fyrir slit þá getur það ekki gert neitt slæmt og ef ég gerði ekkert og myndi svo slitna geðveikt mikið þá myndi ég alltaf naga mig í handabökin, hvað ef ég hefði borið á mig. Hingað til hefur ekki enn komið eitt einasta slit, efast reyndar stórlega um að ég nái að ganga fulla meðgöngu án þess að slitna nokkuð en með hverri vikunni sem líður án þess að það komi slit er ég ánægð:-) mánudagur, apríl 25Dugnaðardagur endaði í letidegi... Var alveg búin að plana að vera ótrúlega dugleg (á minn mælikvarða) í dag, þvo 2 vélar, taka til og skrifa bréf. Ég er ekki búin að neinu af þessu, jú ég er búin að flokka þvott fyrir 2 vélar og ég er ca hálfnuð að skrifa bréfið! Ástæðan fyrir því að ég þvoði ekki þvottinn var að Jobbi er með þvottakortið í veskinu sínu uppí skóla!! Ég hef ekki dröslast sjálf með þvott uppí þvottahús ansi lengi þ.a. ég hef ekki þurft að nota þvottakortið ansi lengi en nú var eiginlega orðið nauðsyn að setja óléttufötin mín í þvott því ég er búin að vera nokkuð "dugleg" að skíta þau út núna um helgina! Í einn svarta bolinn minn fékk ég tannkrem á laugardaginn þ.a. hann í þvottakörfuna og ég í nýjan bol. Í kvöldmatnum missti ég svo mat niður á mig á bolinn sem ég var nýfarin í!!! Í gærkveldi þegar ég fékk mér vatnsmelónu, skipti ég svo bara aftur í skítugan bol, svona til vonar og vara því það eru ansi miklar líkur á að það sullist niður á mig þegar ég borða melónu;) Í dag hef ég svo fengið fullt af óléttufréttum, aðallega af danska og norska kóngafólkinu en líka enn eina sem ég ætla ekki að kjafta frá alveg strax. Það varð hvort eð er enginn forvitinn þegar ég minntist á óléttuna um daginn (Gunni og Nína á kollegíinu sem er sett í ágúst), þ.a. það gerir ekkert til þó ég minnist ogguponsulítið á þessa nýju óléttu hérna:-) laugardagur, apríl 23Tvíburavagn kominn í hús Ótrúlegt en satt þá gátum við Jobbi tekið ákvörðun um vagn. Keyptum notaðan vagn sem er eins árs gamall og sér sama og ekkert á. Þetta er Odder vagn sem börnin geta vonandi sofið nokkuð lengi í. Erum ekki alveg búin að fá barnavagnskassann til að passa ofan í skottið á bílnum okkar, reyndum ekkert alltof mikið og erum ekki búin að gefa upp alla von ennþá;) Vagninn kemst ekki inn um hurðina að framan (áttum ekki von á því, þar sem hún er frekar mjó), en eigum eftir að athuga með svalahurðina sem er 10cm breiðari en útihurðin og á því að vera nógu breið. Lét inn 2 myndir af bumbunni í albúmið okkar í gær. Get ekki sagt að mér finnist hún e-ð mikið stærri en myndirnar á undan þó mér finnist hún heldur betur mikið þyngri og meira fyrir mér;) fimmtudagur, apríl 21Endalaust upprak... Mikið voðalega ætla ég að vera treg að prjóna þessa sumargalla sem ég er að gera á litlu krílin. Prjónaði aðra skálmina, rakti hana upp, byrjaði á annari skálm og var langt komin með hana þegar ég fattaði að ég hafði gleymt að auka út eina lykkju töluvert neðar þ.a. ég rakti niður í það. Samtals er ég búin að prjóna tæpar 2 skálmar en rekja upp ca eina og hálfa!! Sem betur fer eru þetta svona stuttbuxna skálmar þ.a. skálm er ca 9cm á lengd. Hefði verið ennþá meira svekkjandi ef þetta hefðu verið síðbuxur... Þá hefði ég kannski bara leyft vitleysunum að vera, veit ekki. Í gær var annars mæðraskoðun, og ég gekk bara nokkuð fersk þaðan út:) Var ekkert að láta líða yfir mig eins og seinast;) Í næsta tíma á að fara nánar í deyfingar og þá fáum við vonandi að sjá fæðingarstofu nr. 4 (það er stærsta stofan og allar tvíburafæðingar fara víst þar fram út af fjölda starfsfólks sem er inni). Ef tvíbura 1 þóknast ekki að snúa sér aftur í höfuðstöðu þá þarf ég víst ekki að hafa áhyggjur af deyfingum eða þannig því þá verð ég víst send í keisara:( Var frekar afbrýðissöm í gær þegar allavega 3 af hinum tvíburaóléttunum eru með krílin sín bæði lóðrétt og nánast engar líkur á að þau snúi sér úr þeirri stöðu héðan af. Að lokum óska ég öllum á Íslandi gleðilegs sumars!! Enginn sumardagur fyrsti í dag hérna í Danmörku en það er hins vegar frídagur á morgun, stóri biðjudagurinn. Þar sem það er löng helgi þá er Hólmar að koma til okkar yfir helgina frá Jótlandi þar sem hann er í lýðháskóla. þriðjudagur, apríl 19Þverir erfingjar á leiðinni;) Það er ekki lítið sem litlu krílin okkar voru þversum í dag. Fyrir það fyrsta liggja þau núna bæði þversum í maganum, en ég vona að tvíburi 1 muni allavega snúa sér aftur í höfuðstöðu þ.a. ég fái nú allavega að reyna að koma þeim út án þess að til keisara komi. Í öðru lagi ætlaði tvíburi 1 bara ekki að leyfa neinar mælingar á sér, sem var til þess að við vorum HEILLENGI í sónarnum og fengum bara enn ónákvæmari mælingar fyrir tvíbura 1 en venjulega. Þau voru nú samt bæði búin að stækka ágætlega, og voru mæld sem 1630gr og 1804gr (1287gr og 1236gr fyrir 3 vikum). Hér eftir fer ég núna til læknis og þ.a.l. í sónar á tveggja vikna fresti alveg fram að fæðingu, verður forvitnilegt að sjá hvernig þau láta í næsta sónar. mánudagur, apríl 18Dagur heimsókna Eftir "smá" morgunfýlu eldsnemma í morgun vaknaði ég hress og kát þegar fór að nálgast hádegið. Í staðin fyrir að hanga heima í sófanum, ákvað ég að heimsækja Guðnýju sem er nýkomin frá Íslandi og hanga í hennar sófa í staðin:) Þegar ég var nýkomin heim aftur var ég beðin um að koma til Fjólu svo ég gæti lesið yfir þýsku leiðbeiningarnar með nýju uppþvottavélinni þeirra og að sjálfsögðu gerði ég það. Eftir mat fékk ég svo Guðbjörgu í heimsókn í smá stund þar sem nokkrar umferðir bættust við prjónadótið okkar. Sem sagt bara fullt af heimsóknum í dag, ekki leiðinlegt:) Á morgun er svo læknisheimsókn sem þýðir sónar:) Fáum þá nýja stærð á krílin og verður forvitnilegt að sjá hve stór þau eru orðin núna. Svo erum við að spá í að kíkja á enn eina vagnabúðina eftir lækninn til að athuga hvort við finnum e-n vagn sem við getum orðið sátt við. Fann nefnilega búð á netinu sem heldur því fram að sé "Danmarks største" í vögnum og barnavörum. sunnudagur, apríl 17Ofáreynsla í búðarleiðangri... Komst að því í gær að ferð í Babysam upp í Hillerød, leiðangur í Fields og svo Fiskitorgið þar á eftir er OF mikið af því góða fyrir mig þessa dagana. Komst varla inn úr bílnum þegar við komum heim því mér var svo illt í grindinni eftir allt labbið. Var síðan eins og mörgæs hérna í gærkveldi og rétt gat staulast á klósettið í nótt fyrir verkjum. Með algjörri afslöppun í dag er ég öll að koma til þ.a. ég ætti nú með góðu móti að geta rölt yfir til Guðbjargar á eftir með bol í þvottavélina þeirra. Fröken subbulína (aka Eyrún) var komin með matseðilinn eftir gærkvöldið framan á hvíta bolinn sinn og þar sem að við gleymdum að nota biotex á blettina í dag áður en við (eða meira Jobbi) létum í þvottavélarnar þá fór ekki allt úr. Í gærkveldi mættu s.s. Fjóla, Ingólfur, Guðbjörg og Vignir til okkar og við grilluðum saman. Ótrúlega næs og mikið borðað. Grillaður ananas með ís setti síðan alveg punktinn yfir i-ið:) Strákarnir sáu um að stúta rauðvínsflöskum í fleirtölu á meðan við stelpurnar vorum stillar og prúðar. Heyrðust líka ótrúlegustu hljóð úr líkömum þeirra þegar þeir spiluðu fótboltaleik í xbox allt eftir því hvernig þeim gekk, þeir (aðallega Vignir) vildu nú ekki kannast við að vera fullir, þeir væru bara aðeins kenndir;) laugardagur, apríl 16Farðu út með hendina! Í fyrrasumar fórum við til Oslo til að sjá Norah Jones á tónleikum. Við gátum nú ekki verið þekkt fyrir að keyra alla leiðina þarna uppeftir án þess að skoða sig aðeins um þ.a. við fórum í siglingu um fjörðinn á svona túristabát. Jobbi sat við borðstokkinn og ég þar við hliðina. Eitt skiptið tók ég eftir því að konan fyrir aftan, sem ásamt hóp sínum var af einhverjum ástæðum búin að fara frekar mikið í taugarnar á mér (langt síðan, man ekki alveg af hverju;)), var að taka video út um bátinn. Fannst mér þá ægilega sniðugt að athuga hvort ég gæti látið Jobba stinga hendinni út úr bátnum fyrir myndavélina og sagði því við hann "farðu út með hendina". Jobbi er greinilega vel upp alinn drengur því hann gerði eins og skot það sem ég sagði honum að gera og spurði svo af hverju!!! Konan fyrir aftan hefði getað myrt okkur (og þá sérstaklega Jobba) með augnarráðinu!! Við áttum óheyrilega bágt með okkur þarna og hlógum mikið að þessu eftir á. Í gærkveldi sá ég í sjónvarpinu svona túristabát og mundi þá eftir þessu atviki og við hlógum því enn og aftur óheyrilega mikið af þessu!! Annars er ég LÖNGU vöknuð hérna. Þurfti á klósettið rúmlega 6 og náði ekkert að sofna aftur. Var rekin á fætur áðan þegar ég var búin að pirra Jobba frekar mikið með því að kitla hann í nefinu endalaust oft!! Mér leiddist bara og fannst ekkert að því að Jobbi myndi halda mér félagsskap... hann var bara því miður ekki alveg sammála mér:/ Síðan er ég búin að fá samþykkta ferð upp í Hillerød í dag til að kíkja í Babysam ENN eina ferðina. Að velja tvíburavagn/kerru er meira en að segja það. Finnst ég ekki vera fullkomnlega sátt við neitt. föstudagur, apríl 15Hárnæring, gagn eða ógagn? Yfirleitt nota ég hárnæringu í hárið mitt, en síðasta mánuðinn hefur ekki verið til hárnæring og ég því ekki notað svoleiðis. Í gær var ég síðan búin að kaupa nýjan brúsa og ætlaði svoleiðis að dekra við hárið á mér. Eftir sturtuna nennti ég ekki að gera neitt við hárið og lét það bara í tagl, og ég get svo svarið það að hárið hefur ekki verið svona mikið úfið LENGI!!! Kannski bara betra að sleppa hárnæringunni, allavega virtist það ekki vera að virka neitt betur á hárið þegar það fór að þorna. Annars skellti ég mér í strikkeklub í gærkveldi. Hef ekki mætt HEILLENGI eða í 6 vikur og þá af ýmsum ástæðum. Þar var ein lítil nokkra mánaða, það fékk mig sko til að hlakka til! Heyrðist ekki í henni nema einstaka hjal og annars var hún bara róleg á teppinu sínu á gólfinu. Er ansi merkilegt að það er bara lítið lengra þar til börnin verða pottþétt komin eins og er langt síðan að ég mætti síðast í prjónaklúbbinn. Það þýðir nú samt ekki að mér finnist stutt eftir, ónei! Mér hefur ALDREI fundist jafn langt eftir eins og núna!! Alveg sama þó það hafi aldrei verið jafn stutt;) fimmtudagur, apríl 14Símadama hjá Netgrúppunni Eftir að margir úr netgrúppunni hérna á kollegíinu fluttu út þá er Jobbi núna orðinn sá eini sem fer niður í kjallarana að laga netið þegar rekkarnir verða netlausir. Í einum rekkanum var netið lagað í gærkveldi en það vildi ekki betur til að það fór út aftur snemma í dag. Síðan seinnipartinn er ég búin að taka á móti ansi mörgum símtölum þar sem verið er að spyrja eftir Jobba út af netleysinu en hann er bara ennþá í skólanum. Sagði við Jobba að ef þetta job yrði launuð þá ætti ég sko skilið hluta af þeim pening fyrir fyrirhöfnina;) Giskað á kynin Jæja folks, þið sem ekki eruð búin að giska á kynin megið nú alveg láta ljós ykkar skína:) Mamma, það er engin afsökun að þú sért ekki alveg viss hvaða kyn komi!;) Annars í framhaldi af blogginu áðan þegar ég sagðist hafa vaknað þegar Jobbi vaknaði, þá gerðist sá stórmerkilegi atburður eftir að ég var búin í tölvunni að ég steinrotaðist aftur og svaf til HÁDEGIS!!! Ótrúlega ljúft:-) Ég sofna nefnilega næstum aldrei aftur, og sofna næstum aldrei á daginn þó ég sé að leka niður úr þreytu. Þreytt feitubollan á þessum bænum Jæja, það er víst e-ð farið að kvarta yfir fréttaleysi héðan þ.a. það er kannski eins gott að drífa sig (haha Vignir, stundum er það bara nauðsynlegt;)) í að pára nokkrar línur niður á "blað". Gerist ekki mikið í mínu lífi þessa dagana... var reyndar alveg svakalega öflug í gær, fór í skólann fyrir hádegi, hitti kennara og spjallaði við nemendaskrifstofuna út af seinkun á verkefninu. Mætti svo AFTUR eftir hádegi, hlustaði á nokkra fyrirlestra og þar á meðal frá grínistanum Anders Lund Madsen í tilefni af vígslu CET og fór svo í buffet á eftir. Ég var ekkert smá fegin að Jobbi vildi koma á sama tíma heim, því ég var svo þreytt að ég nennti ekki að keyra. Var svo bara í sófanum í allt gærkvöld, sofnaði snemma og ætlaði svoleiðis að sofa út. En eins og alltaf þá vaknaði ég þegar klukkan hans Jobba var að reyna að vekja hann og gafst svo upp á að reyna að sofna aftur stuttu eftir að hann fór. Í kvöld er stefnan sett á prjónaklúbb en það þýðir að ég má helst ekki gera nokkurn skapaðan hlut í dag til að hafa orku í það. Jobbi var allavega feginn, þá mátti hann fara á bílnum í skólann:) En núna er bakið farið að kvarta yfir of langri setu við tölvuna (ca 20mín) þ.a. ég ætla bara að hlamma mér inn í rúm aftur:) miðvikudagur, apríl 6Klúður Núna undanfarið hef ég verið hálfgerð súkkulaðikleina hérna heima, bara haft það rólegt og látið stjana við mig. Verð að passa mig extra vel þar sem mig svimar svo oft mikið og fæ höfuðverk og mig langar helst ekki að láta líða yfir mig aftur. En allavega, í gær kom Jobbi heim úr skólanum og þykist hafa snúið sig á fætinum í fótbolta í hádeginu. Þetta þýðir að ég er ekki lengur með einkaþjón hérna heima og þarf sjálf að standa í heimilisverkunum;) Vaskaði upp í morgun alveg heilan helling en ég var líka með frekar mikinn hausverk á eftir og er því bara búin að spila snilldar kúluleikinn sem ég fann í gær uppí rúmi. Þessi leikur er algjör timekiller og eins og Guðbjörg sagði í gærkveldi, "nú er ég ENDANLEGA búin að tapa prjóna veðmálinu við mömmu!" Í dag eru akkúrat 2 mánuðir þar til ég verð gengin 38 vikur, og ef ég verð ekki búin að eiga á þeim tímapunkti, þá verður leigusamningnum sagt upp og leigendurnir verða reknir út;) Við munum hins vegar ekki standa í brottrekstri 6. og 7. júní því við viljum helst eiga okkar afmælisdaga í friði og leyfa þeim líka að eiga sinn dag í friði. Svo er bara aldrei að vita nema krílin ákveði að koma sjálf e-ð áður, en ef ég get e-ð miðað við mömmu reynslu þá munu þau ekkert vera að flýta sér neitt of mikið;) mánudagur, apríl 4Leti eða dugnaður? Það sem af er degi hef ég eytt á náttfötunum og meira að segja í bælinu. Mætti því segja að ég sé letihaugur... eða bara ólétt sem leyfi mér að liggja í bælinu hálfu dagana;) Hins vegar hef ég alveg komið svolitlu í verk hérna í morgun, aðallega er ég búin að vera að browsa netið og drepa tímann þannig en einnig losaði ég mig við google auglýsingaborðann sem hefur verið efst á síðunni ansi lengi. Var bara nokkuð stolt af mér fyrir þá frammistöðu, þó ég sé alltaf á leiðinni að losa mig við blogger/blogspot;) Það er samt búið að vera á leiðinni svo lengi að ég er farin að efast um að ég komi því nokkuð í verk á næstunni;) Svo að auki lét ég líka inn nokkrar myndir í albúmið okkar:) Ætli það sé ekki kominn tími til að fara á fætur og reyna að koma því í verk sem ég ætla mér að gera í dag... sunnudagur, apríl 3Í sól og sumaryl Síðustu daga hefur hlýnað það mikið hérna hjá okkur að við höfum getað setið útí garði. Hádegismaturinn í dag (sem voru btw snilldar amerískar pönnukökur sem Jobbi galdraði fram) var borðaður úti, ég sat úti í dag og prjónaði og svo var grillað eins og reyndar síðustu tvö kvöld líka. Í fyrrakvöld grilluðum við með Guðbjörgu og Vigni heima hjá þeim og í gær grilluðum við aftur með þeim en í gær heima hjá okkur. Annars vorum við að setja upp síðu þar sem hægt er að giska á kynin, stærð barnanna, fæðingardag þeirra og nöfnin sem þau munu fá. miðvikudagur, mars 30Misheppnuð mæðraskoðun Í morgun lögðum við Jobbi leið okkar enn einu sinni niðrá Gentofte spítala og núna til að mæta í mæðraskoðun ásamt fjórum öðrum tvíburabumbum. Eftir ca hálftíma var mér farið að líða hálf illa sem versnaði bara og sem endaði með að það leið yfir mig sitjandi í stól og þegar ég rankaði við mér aftur var ég búin að æla bæði yfir mig og gólfið!! Smekklegt!! Jakk!!! Eyddi því öllum deginum í sjúkrahúsrúmi og fá að komast að því að allar prufur og öll test voru í fínasta lagi og engin skýring á þessu yfirliði mínu. Komst heim um kvöldmatarleytið og var mjög svo fegin að komast loksins heim. fimmtudagur, mars 17Krílin fóru í fýlu út í hvort annað;) Njaa eða kannski ekki alveg:) Ég ligg upp í rúmi eins og ég er búin að gera í nánast allan dag út af fáránlegum svima og flökurleika í morgun. Áðan tók ég eftir því að bumban varð eiginlega að tveimur bumbum og niður í miðjunni, næstum eins og rass;) Okkur fannst þá tilvalið að segja að krílin hefðu farið í sitthvort hornið í fýlu, en greinilega jafnað sig fljótlega því bumban varð fljótt aftur að einni bumbu:) Annars breytist lögunin á bumbunni ansi fljótt, fæ ótrúlegustu horn og bungur á hana núna, skemmti mér konunglega við að fylgjast með henni á milli þess sem ég horfi á tölvuskjáinn. Nýjar myndir Var að henda inn nokkrum myndum í myndaalbúmið. Bæði feitubollumyndir og myndir frá Íslandi. Allt að gerast... Það er ekkert smá langt síðan að ég hef skrifað e-ð hingað inn. Var svo hrikalega upptekin í viku á Íslandi við það að liggja í leti að ég komst bara hreinlega ekki í það að blogga;) Höfðum það að sjálfsögðu svaka fínt, hlóðum batteríin og ótrúlegt en satt þá svaf ég betur í 120cm gamla rúminu mínu heldur en í okkar rúmi hérna úti. Langaði helst bara að vera lengur á Íslandi en núna er maður nú alveg sáttur við að vera komin heim til sín aftur. Hvernig er með þessar óléttur, er þetta að ganga? Nei bara að spá, var nefnilega að frétta af nýrri óléttu í gær... ætla ekki að uppljóstra hver það er því það eru víst ekki endilega allir sem lesa síðuna og þekkja til búnir að frétta af þessu;) Er ég núna búin að gera alla sem lesa ótrúlega forvitna? Þá er tilgangnum náð;) mánudagur, febrúar 28Nýjar myndir Létum inn nýjar myndir í kvöld í albúmið. Bæði sónarmyndir frá því í dag, sem reyndar eru frekar óskýrar, og svo líka nokkrar bumbumyndir sem voru teknar í gærkveldi. Ég er eiginlega í sjokki yfir því hvað mér finnst mikill munur á myndunum frá því fyrir viku síðan, mér fannst bumban ekki hafa stækkað neitt að ráði þessa vikuna fyrr en ég bar saman myndirnar... sunnudagur, febrúar 27Skellti mér í bíó í gær Var ekki lengi að segja já þegar Guðbjörg hringdi í mig og spurði hvort ég vildi koma með henni og Vigni í bíó í gær. Skelltum okkur á National Treasure, alveg þrusugóð þó við Guðbjörg höfum stundum verið við það að pissa í okkur af hræðslu. Hehe, ekki að þetta sé neitt það svakalegt, en maður er bara soddan chicken;) Töluðum um að fara á rómantíska gamanmynd næst:) Jiii minn eini hvað það á eftir að þýða mikill grátur!! Ég sem grenja yfir öðrum hverjum friends þætti! Annars keypti ég mér popp og gos sem er svo sem ekkert merkilegt, nema fyrir það að ég ætlaði bara að fá mér lítið gos og lítinn popp. Kostaði sama að fá miðstærð af bæði, þ.a. jújú ég fékk mér þannig. Þetta var sko engin venjuleg miðstærð, þetta var JÚMBÓ stærð af gosi og DÚMBÓ stærð af poppi. Stór popp og stórt gos á Íslandi bliknar bara í samanburðinum;) Það sást heldur varla að ég hefði borðað neitt af poppinu þó mér hafi fundist ég borða heilan helling. laugardagur, febrúar 26Hreingerningaræði Stundum held ég að ég gæti bara verið komin miklu lengra á leið og alveg að fara að eiga. Ég er nefnilega búin að vera með e-ð svaka tiltektar- og hreingerningaræði hérna undanfarið (hef lesið að konur fái oft e-ð svoleiðis kast rétt fyrir fæðingu). Í dag er ég búin að þurrka af öllu og taka til inn í litla herbergi (reyndar e-ð smá eftir). Myndi helst vilja fara núna og skúra og þrífa baðherbergið, en ég er að reyna að hemja mig því ég er komin með e-ð asnalegt tak neðarlega í bumbunni. Bunkinn sem þarf að fara í blaðagáminn er líka að fara með mig hérna, en ég ætla ekki að fara að gera e-n óskunda og burðast með tonn af blöðum út í gám! Þá er nú hægt að spyrja sig af hverju ég sendi ekki Jobba út, jújú ég er nú búin að minnast nokkuð pent á það undanfarið en núna er hann bara ekki heima núna til að ég geti grátbeðið hann. Hann stakk mig af til Svíþjóðar í morgun! Kemur reyndar sem betur fer aftur í kvöld. fimmtudagur, febrúar 24Svunta í eldhúsið, nauðsynleg fyrir feitubollur Ég komst að því í gær, hvað þessi blessaða bumba er fyrir manni þegar maður er að baka brauð. Ég hef aldrei vanið mig á að nota svuntu, og þrátt fyrir að vera ótrúlega klaufsk á tíðum þá hefur það aldrei verið neitt vandamál. Bumban mín núna var hins vegar mjög fljótlega í gær öll í hveiti þar sem ég virtist bara ekkert fatta að hún væri þarna þegar ég var að hnoða. Hef því komist að því að ég "neyðist" til að nota svuntur þegar ég voga mér inn í eldhúsið. Við erum líka nýbúin að fá nýja fína svuntu með íslenska skjaldarmerkinu, um að gera að nota hana:) þriðjudagur, febrúar 22Nokkrar nýjar myndir Lét inn nokkrar nýjar myndir í myndaalbúmið í gær. Bæði frá því að Jobbi kom til mín í Svíþjóð og svo örfáar bumbumyndir. Bumban hefur nú eiginlega ekkert stækkað finnst mér síðan síðustu myndir komu inn, þ.a. það er kannski helst til lítið að sjá. Fór í skólann í gær og var þar nú frekar stutt... allt í einu eftir hádegi fannst mér eins og ég hefði orðið fyrir valtara og átti bara erfitt með að keyra heim sökum þreytu. Lá bara upp í sófa eða rúmi til skiptis og svaf meirihlutann af restinni af deginum og svo alla nóttina!! Ég var í svo miklu stuði um helgina að ég svaf ekki alveg jafn mikið og ég hefði þurft og var svo alveg á fullu. Ótrúlegt hvað ég er allt í einu farin að finna miklu meira fyrir þessari óléttu núna heldur en bara fyrir örfáum vikum. Finnst bara verst hvað það er ennþá langt eftir!!! föstudagur, febrúar 18Komin heim nokkrum kílóum þyngri en ég fór:-) Þá er maður komin heim til sín, búin að leggja mig og borða í ca 5. skipti í dag. Þegar við vorum komin heim af flugvellinum í morgun var ég alveg glorsoltin og óskaði eftir e-u að borða. Jobbi bauð mér ekkert nema e-ð alveg vitavonlaust sem maður verður ekkert saddur af, eins og agúrku, vínber o.þ.h. Ískápurinn var eiginlega tómur. Hann var því sendur með frekar harðri hendi út í búð. Þreytt, svöng ólétt kona er ekkert grín að kljást við;) Þegar ég fékk ferðatöskuna mína til baka á færibandinu, sá ég í bleiku náttfötin mín... Taskan hafði fengið e-a harða meðhöndlun og var rifa eftir einni hliðinni og sem betur fer held ég að það hafi ekkert týnst úr henni. Fékk bara nýja tösku á staðnum, þurfti að koma farangrinum mínum úr gömlu töskunni í þá nýju og skilja svo hina eftir. Það gekk nú bara þokkalega. Á núna eftir að klára að ganga frá úr ferðatöskunni, er alveg að fara að gera það:-) Planið er nefnilega að baka vatnsdeigsbollur í dag eða á morgun, og ég ætla að vera búin að ganga frá öllu fyrst. Dríf þetta því bara af. Annað í fréttum, er það að ég fór í mat á fimmtudaginn til Írisar og Óla (Íris er að vinna hjá ABB). Eldaði Óli dýrindis lax handa óléttu konunum sem komu frekar dasaðar heim úr smá verslunarleiðangri eftir vinnu. Í eftirrétt fengum við svo eplaköku með vanillusósu, sem endaði í bara vanillusósu þegar kakan var búin!!! Þarf að athuga hvort ég finni svona sósu hérna út í búð. þriðjudagur, febrúar 15Styttist í heimferð Eftir að óhemju mikil þreyta hefur hrjáð mig síðustu 2 daga, þá get ég ekki annað sagt en að ég bíði frekar spennt eftir því að komast heim og fá þá almennilega hvíld. Svaf frekar illa í nótt, og hlakka því mikið til að fá að sofa í rúminu mínu. Hrökk upp e-n tímann í nótt og var kallandi á Jobba þegar ég fattaði að hann var nú bara alls ekkert hjá mér. Tveggja tíma andvaka, er heldur ekki ideal, sérstaklega ekki þegar maður nær loksins að sofna ca hálftíma áður en klukkan byrjar að reyna að koma manni á fætur!!! Ég snúsaði líka í klukkutíma í morgun, var bara ekki að meika það að fara á fætur. Spurning hvort litlu krílin séu e-ð að reyna að venja mig við að vaka... ætla rétt að vona ekki. föstudagur, febrúar 11Komin í helgarfrí Þá er komið að síðustu helginni minni hérna í Svíaríki. Er nú ekki búin að ákveða hvað ég geri um helgina, spurning hvort ég athugi hvort ég komist í klippingu, kannski ég fari í sund og spurning hvort maður rölti e-ð í búðir. Annars er það bara að liggja í leti og safna kröftum fyrir síðustu vinnuvikuna. Fer heim næsta föstudagsmorgun, og ég hlakka ótrúlega mikið til að komast heim og hafa Jobba minn hjá mér. Eins og þetta er nú ekki búið að vera eins erfitt og ég bjóst við, þá hef ég síðustu daga e-ð verið voða mikið upptekin af því að hann sé að gera svo mikið og ég að missa af öllu og blebleble. Þýðir lítið að segja við mig að ég sé nú ekki búin að missa neitt af svakalega miklu, því heilinn hann virkar bara eins og hann vill virka, oft ekkert alveg lógik í honum;) Núna er ég að spá í að skella mér á Pizza Hut á leiðinni heim og fara EIN út að borða;) Hef nú ekki gert neitt af því ef frá er talið McDonalds, þar sem ég er nánast daglegur gestur... oft er það nú reyndar "bara" einn jarðaberjasjeik, sem ég ELSKA!!! Mér finnst bara eiginlega verst, að þegar ég verð komin til Danmerkur aftur, er næsta McDonalds niðrí Gentofte;) Af verkefninu er annars loksins allt fínt að frétta, var búin að vera að lenda í alls konar vandræðum, en ég held (og vona) að ég sé komin framhjá þeim öllum. Enda ekki seinna vænna þar sem ég fer að fara héðan;) miðvikudagur, febrúar 9Er að sofna Það mætti halda að ég hefði ekki sofið í marga daga, ég er svo þreytt. Ég var líka svona í gær, en samt náði ég hátt í 10 tímum báðar næturnar!!! Svaf reyndar aðeins of lítið aðfararnótt mánudags, þegar Jobbi fór heim um nóttina, en ég ætti að vera búin að ná því upp núna. Er að reyna að halda einbeitingunni til að komast e-ð áfram með verkefnið, loksins þegar ég og forritið erum búin að sættast;) en það gengur frekar illa þegar ég þyrfti helst að nota tannstöngla til að halda augnlokunum opnum!!! Hvað er málið?!?!?!? mánudagur, febrúar 7Framhaldssaga síðan síðast... Í síðustu færslu viðurkenndi ég að ég væri subbulína, svo sem ekkert nýtt. Á föstudeginum toppaði ég það all verulega!! Fór á McDonalds á leiðinni heim til að kaupa mér einn lítinn sjeik (já ég er hooked á sjeik þessa dagana!!) Tókst að fá sjeik yfir kápuna mína, og á vettlingana og að sjálfsögðu fullt á gólfið líka sem ég nennti nú ekki að hafa áhyggjur af. Í þokkabót reif ég síðan eina tölu af nýja jakkanum mínum þegar ég var að að ná mér í pappír til að þurrka upp allan sóðaskapinn!!! Annars var helgin alveg meiriháttar!! Löbbuðum um miðbæ Västerås, fórum á kaffihús, borðuðum sænskar bolludagsbollur (Jobbi var eiginlega ekki á því að smakka, þar sem það er engin sulta á þeim!;)), fórum út að borða og skelltum okkur svo í bíó í gærkveldi. Jobbi náði að finna eitt spark hjá tvíbura 1, tvíburi 2 er öllu rólegri í tíðinni og finn ég miklu minna fyrir honum, en ég fann samt í bíó í gær fyrsta sparkið frá tvíbura 2 utanfrá. Hvað er annars málið með tilfinningarússíbanann sem ég virðist vera í þessa dagana? Horfði á lokaþáttinn af Friends í 7. seríunni þegar Chandler og Monica gifta sig, og Rachel er orðin ólétt. Ég hef OFT séð þennan þátt áður, en manni minn, ég grét næstum úr mér augun!!!! Fór líka að gráta í endann á Meet the Fockers í bíó í gær. fimmtudagur, febrúar 3Subbulína Það verður víst seint tekið af mér að vera klaufi. Undir það flokkast líka að vera yfir meðallagi duglegur að hella niður. Hverjum öðrum en mér tekst t.d. að hella TVISVAR niður á sig jógúrt úr EINNI jógúrtdós?!?!?! Þessi jógúrt var btw borðuð í morgun ekki löngu eftir að ég mætti í vinnuna, þ.a. ég er búin að vera að bögga mig á þessum blettum í ALLAN dag!! Í danska systeminu heitir Jobbi ekki Þeyr eins og á Íslandi, því við vorum svo ógáfuð að skrifa Þ en ekki TH, að hann heitir Jósef Peyr. Þegar við föttuðum mistökin, fórum við strax og ætluðum að láta breyta þessu í Theyr, en too bad, ekkert hægt að breyta. Þar sem ég er búin að vera í miklu stuði í dag, þá datt mér í hug hvort að það væri ekki hægt að nefna Peyr ef við fengjum strák. Það nafn er víst ekki leyft, en það ætti samt bara að beygjast alveg eins og Þeyr, hefur íslenska stafsetningu og allt, þ.a. við hefðum rökin með okkur ef við myndum sækja um leyfi;) Jobba fannst þetta ekki alveg jafn fyndið og mér. Thíhíhíhí Svona rétt í lokin, þá langar mig að minnast á ANSI gleðilegan atburð sem verður í lífi mínu á morgun, já Jobbi kemur loksins!!!! miðvikudagur, febrúar 2Nýjasti boxpúðinn Ég held stundum að krílin haldi að þvagblaðran sé boxpúði!! Sem betur fer eru þessar elskur svo litlar ennþá að ég þarf nú ekkert að hendast á klósettið þó ég fái spark í þvagblöðruna, en það er samt oft frekar fyndið að finna þetta. Annars eru hreyfingarnar, heyra hjartsláttinn hjá ljósunni og fara í sónar svona uþb það eina æðislega við meðgönguna, annað er ekki alveg jafn mikið að gera sig. Er reyndar aðeins skárri í dag, en annars búin að vera að drepast í bakinu, og grindin e-ð að plaga mig þegar ég er búin að sitja heilan dag, sem svo stigvesnar eftir því sem líður á vikuna. Þegar ég sé mig í spegli, finnst mér bumban vera pínulítil, en þegar ég sit, finn ég svo fyrir henni að ég held alltaf að hún sé orðin alveg risa stór;) Finnst bara verst hvað það er langt í að krílin láti sjá sig, væri til í að fara að fá þau bara;) Annars er ég alveg að fara að fá Jobba minn til mín:) Hann kemur á föstudagskvöldið og fer aftur á mánudagsmorgun. Vona að ég verði ekki að drepast í bossanum eða bakinu þ.a. við getum nú gert e-ð sniðugt og skemmtilegt. föstudagur, janúar 28Myndir úr 19vikna sónar komnar í myndaalbúmið Þá er Jobbi búinn að skanna inn myndirnar úr sónarnum frá því á mánudaginn og setja þær inn í albúmið. fimmtudagur, janúar 2719vikna sónarinn búin og komin aftur til Svíþjóðar Jújú, ég er aftur orðin ein í Svíþjóð eftir 2 daga heima um síðustu helgi. Toppurinn á helginni var að sjálfsögðu sónarinn, þar sem krílin sprikluðu fyrir okkur. Tvíburi 1 spriklaði þó öllu meira, og stoppaði varla allan tímann, á meðan tvíburi 2 var meiri ljósmyndafyrirsæta og var voða rólegur e-ð. Meira að segja þegar það var verið að mæla tvíbura 2, þá sparkaði tvíburi 1 alltaf í skilvegginn á milli þeirra þ.a. tvíburi 2 kipptist til. Þrátt fyrir að ég hafi verið að DREPAST úr forvitni á bekknum að fá að vita kynin, þá var Jobbi stöðugi aðilinn í sambandinu og hélt okkur við það að fá ekki að vita. Þó það hefði auðvitað verið gaman, þá held ég núna (nokkrum dögum seinna) að ég sé bara fegin, það verður örugglega alveg MAGNAÐ að fá 2 börn og vita ekkert hvaða kyn kemur. Kannski ekki alveg það praktíska, sérstaklega þegar ég er að skoða ungbarnaföt því þau eru eiginlega aldrei til í alveg hlutlausu heldur alltaf annað hvort stelpu- eða strákaföt. Ég ætlaði svoleiðis að reyna að sjá sjálf kynin í sónarnum víst ég mátti ekki spyrja, en hjálpi mér allir heilagir hvað ég er léleg í þessum myndum!! Jújú, ég þekki hjartað sem slær og útlínurnar á barni og svo þegar beinin í tánum eða fingrum sjást, en einu sinni hélt ég að hún væri að skoða höfuðið og augun en neinei þá var hún að skoða NÝRUN!!!! Þá fattaði ég að ég sökkaði í að lesa úr þessum myndum;) Farin heim í dag, elda mér e-ð í örbylgjuofninum, horfa á Friends og borða nammi;) fimmtudagur, janúar 20Kveðja frá Svíþjóð Örstutt þar sem matarhléið er nú eiginlega að verða búið. Ég er núna búin að vera hérna í Västerås í 3 daga, gengur ágætlega það sem viðkemur verkefninu allavega ennþá. Herbergið er alveg ágætt þó ég sé nú eiginlega með langan lista yfir það sem mér finnst vanta eða er skrítið!! Enginn sími í þessu herbergi (er svona "hótel" þar sem herbergin eru leigð út í lengri tíma), en ég get látið hringja í mig (nú eða hringt sjálf) í tíkallasíma sem er í NÆSTA húsi!! Lyktin inn á baðherberginu gæti stundum drepið mig, þvílíka skítalyktin!! Annað er bara svona smotteríssmáatriði. Annars fer ég heim á laugardagsmorgun og kem aftur á mánudagskvöld, því það er sónar á mánudeginum. Við ætlum ekki að fá að vita kynin, þ.a. þið getið alveg sparað spurningarnar um það eftir sónarinn;) hehe. Hlakka þvílíkt til að komast aðeins heim og geta knúsað hann Jobba minn, sofið í 2 nætur í almennilegu rúmi og ekki látið mér leiðast á kvöldin. mánudagur, janúar 17Myndaalbúmið lifnað við Í gær var ég alveg þvílíkt dugleg að setja inn myndir í myndaalbúmið. Kláraði LOKSINS að setja inn myndir úr Evrópuferðalaginu okkar í sumar, auk þess sem ég lét inn eiginlega allar þær myndir sem áttu eftir að fara inn eftir sumarið. Við erum kannski ekki búin að vera duglegustu myndasmiðirnir, en samt alltaf e-ð. Í kvöld fer ég til Svíþjóðar til að vinna að lokaverkefninu mínu. Kem endanlega til baka aftur 18. febrúar en ég mun samt koma í heimsókn um næstu helgi því ég á tíma í sónar á mánudeginum. Í gærkveldi var ég alveg frekar mikið lítil í mér yfir því að þurfa að yfirgefa Jobba og vera ALEIN lengst í burtu. Maður á nú samt alveg eftir að lifa þetta af, Jobbi ætlar líka að hringja í mig ógó oft:) sunnudagur, janúar 16Fyrstu hreyfingarnar!! Í fyrrakvöld þegar ég lá í sófanum var ég mikið að spá hvort ég hefði fundið e-a hreyfingu í mallanum. Var nú frekar óviss og spáði ekki meira í það. Í gærmorgun var ég í leti með tölvuna í kjöltunni upp í rúmi og var ég aðeins vissari en kvöldið áður að ég hefði verið að finna e-a hreyfingu en samt mjög óviss. Áðan lá ég uppí sófa á meðan ég beið eftir að Jobbi yrði búinn að laga í myndaalbúminu og þá var ég í fyrsta skipti VISS um að ég væri að finna hreyfingar!!! Fann nokkrum sinnum, alltaf sömu megin og alveg nokkuð greinilegt!! Jobbi vildi að sjálfsögðu strax reyna að finna líka, en hann verður víst að bíða e-ð lengur eftir að finna hreyfingar utan frá. miðvikudagur, janúar 12Fyrsta mæðraskoðunin Í morgun mættum við í fyrsta skipti í mæðraskoðun. Var alveg yndislegt að heyra hjartsláttinn í báðum krílunum, sérstaklega þar sem mér fannst svo langt síðan ég fór í hnakkaþykktarmælinguna og sá þau spriklandi, ég hef nefnilega átt til að taka ýmis paranoju köst síðasta mánuðinn. T.d. þegar ég ældi endalaust einn daginn milli jóla og nýárs, þá minnkaði maginn (nokkuð lógískt), þá hélt ég að ég væri bara ekkert lengur ólétt!! Kommon, ég var þvílíkt ælandi út af þessu óléttustandi!!! Hausinn ekki alveg að virka rétt. Í dag fór ég síðan líka í bankann niðrí Lyngby að fá greiddan styrk sem ég átti þar liggjandi. Þar sem ég ætlaði bara í bankann lagði ég við Hovedgade þar sem má leggja í 30mín. Ég stillti klukkuna í glugganum alveg samviskusamlega, leit á úrið og stillti eftir því. Þegar ég kem út eftir ca 20mín þá kemur "stöðumælavörður" (ekki stöðumælar þarna, en fylgst með því að maður sé ekki lengur en tíminn í glugganum segir til um) og segir við mig að ég megi nú bara leggja í hálftíma, ég bara frekar hissa, já en ég var styttra en það. En þá voru mistökin mín að ég hélt að klukkan væri korter í 3, en ekki korter í 4 þegar ég las af úrinu mínu!!! Spurning hvort DTU bjóði upp á kúrs í að læra á klukku? þriðjudagur, janúar 11Komin heim eftir jólafrí og styttist í Svíþjóð Það hafðist að koma sér til Danmerkur aftur eftir næstum mánaðar jólafrí. Eftir raunir mínar þegar við fórum norður eftir aðeins sex tíma svefn var ég ansi stressuð þegar ég fékk bara tæplega það í fyrri nótt. Gékk þó öllu betur þó ég hefði nú einu sinni heilsað upp á postulínsskálina (sem er held ég bara úr plasti í flugvélum;)). Þreytan fór samt ansi illa í skapið og viðkvæmnina í mér, sem nógu mikil er fyrir!! Jobbi hafði sett á sig uppblásna hálskragann þegar ég kom af klósettinu einu sinni og ég fór næstum því að grenja!!! Hversu mikill aumingi getur maður eiginlega verið?? Núna eru ekki nema 6 dagar þar til ég held á vit ævintýranna í Svíþjóð og fer að vinna í lokaverkefninu mínu í 5 vikur og reyni að lifa af án Jobba. Ég kem samt heim í helgarferð til að fara í 19 vikna sónarinn og svo ætlum við að reyna að láta Jobba koma í helgarferð til mín einu sinni. Svona þ.a. þetta verði ekki alveg jafn lengi að líða:) Að lokum óska ég eftir bumbu sem hefur greinilega flúið að heiman, ég er komin rúmar 17 vikur af tvíburum og það sést anskotans ekki neitt á mér!!!! Ég hef alveg fengið að heyra að ég eigi nú bara að vera ánægð, því ég verði eins og hvalur fyrr en varir, en ég er að verða bráðum hálfnuð og væri alveg til í að sjást pínu meira. miðvikudagur, janúar 5Draumórarnir um óléttutímann Áður en ég varð ólétt, sá ég óléttuna fyrir mér á e-u bleiku rómantísku skýji held ég. Ef svo ólíklega vildi til að maður fengi morgunógleði, þá væri það nú e-ð sem væri nú ekki erfitt að yfirstíga því þetta væri jú fyrir fóstrið inní manni og væri bara á morgnana. Spáði ekkert í neina aðra kvilla sem mögulegir voru. Fyrstu 2 vikurnar af óléttunni voru eftir þessu, og eftir að mamma sagði mér að hún hefði aldrei fengið neina ógleði af neinu tagi með öll börnin sín 6, þá var ég alveg nokkuð fullviss að ég myndi nú bara sleppa alveg. Það var nú öðru nær, eftir viku sólarhringsógleði og 6kg þyngdartap á þeirri viku hótaði ég að þetta barn yrði sko einkabarn á okkar heimili, ég myndi sko ekki leggja þetta á mig aftur. Eftir þetta komu 6 vikur í ömurlegheitum þar sem blessuð postulínsskálin var minn "besti" vinur. Komin 13 vikur, fór þetta loksins að minnka og þegar ég kom til Íslands sá mamma um að ég borðaði oft og mikið á hverjum degi bæði til að reyna að fitna aðeins aftur og til að halda þessari ógleði í skefjum. Hver fann annars eiginlega upp orðið MORGUNógleði??? Þvílíka rangnefnið!!! Aðrir kvillar hingað til hafa verið smávægilegir og fylgja víst bara. "Varð" t.d að fá pylsu með öllu á nýársdag, eftir að hafa séð auglýsingu um þannig í sjónvarpinu, eftir að geðvonskan hafði magnast (þar sem ég var ekki búin að fá pylsuna mína) fór Jobbi með mig í bíltúr í leit að opinni sjoppu um Akureyri. Fundum eina en hún seldi ekki pylsur!! Enduðum á Dominos og ég fékk brauðstangir, lét það duga. Í takt við tímann Fórum í fyrra kvöld í bíó í fyrsta skipti í LANGAN tíma og sáum Í takt við tímann. Vorum eiginlega að renna út á tíma til að ná að sjá hana áður en við förum aftur út þ.a. við skelltum okkur á hana fyrir norðan. Þetta var alveg með minnstu bíóum sem ég hef farið í, frekar fyndið allt saman. Mamma og pabbi vorum búin að fara og sjá hana og mömmu fannst hún mjög skemmtileg en samt frekar samhengislaus. Fórum því ekki með væntingarnar í botni, og skemmtum okkur alveg konunglega!! Hittum Benna og Írisi í bíóinu, ég fór fyrst og settist og kom svo í ljós eftir á að við sátum beint fyrir aftan þau!! Ein ferlega utan við sig og tók ekkert eftir fólkinu á næsta bekk. sunnudagur, janúar 2Leyndarmálin, sem ekki eru lengur leyndarmál;) Þar sem flestir vita orðið öll mín leyndarmál, þá geta þau ekki talist leyndarmál lengur, eða hvað?? Við Jobbi teljumst brátt í fullorðinna manna tölu, með 2 ungabörn á heimilinu okkar næsta sumar ef allt gengur að óskum. Síðast þegar ég skrifaði var áður en ég kom til landsins og núna erum við búin að vera hérna í næstum 3 vikur (eða Jobbi í rúmar 2 vikur og ég næstum 3). Höfum haft það ótrúlega gott, fyrst heima í Hafnarfirðinum og núna á Akureyri. Jobbi er í fjallinu á brettinu, en mín er í brettabanni allavega fram á næsta vetur, maður vill ekki taka neina sénsa með þessar rækjur sem eru að vaxa inní manni. Ég er því ennþá bara á náttfötunum og skoða netið á meðan Hólmar rekur mig ekki úr tölvunni sinni (fartölvan okkar er ónothæf, þar sem hleðslutækið virkar ekki). Spurning hvort maður haldi síðan e-ð áfram að prjóna teppið sem ég hef varla snert síðustu mánuði. Breytti síðan líka aðeins síðunni, henti þessari drasl skilaboðaskjóðu út sem höndlaði ekki íslenska stafi nema ég breytti charsettinu fyrir alla síðuna og það myndi þýða að allt sem hefur áður verið skrifað á síðuna væri óleshæft!! Jú á meðan ég man, þá óska ég öllum gleðilegs nýs árs og vona að allir hafi haft það ljómandi gott yfir jólin og borðað vel og mikið;) laugardagur, desember 11Sting rokkaði í Forum í gær Eftir "smá" seinkun á tónleikunum hjá Sting var loksins komið að þeim í gær. Við keyptum miðana fyrir örugglega ca ári síðan á tónleika sem planaðir voru 2.maí. Kallinn veiktist og tónleikunum frestað um 7 mánuði. Tónleikarnir voru meiriháttar og við skemmtum okkur konunglega!! Hins vegar get ég pirrað mig ENDALAUST á reykingarmenningu Dananna. Eftir að hafa keypt miða í númeruð sæti og uppselt á tónleikana, þá varð maður takk fyrir að sætta sig við að anga eins og öskubakki eftir 3 tíma þarna inni. þriðjudagur, desember 7Fótanuddtæki í öðrum hvorum auglýsingabæklingi Á þessu heimili er það bara annað hvort í ökla eða eyra, annað hvort heyrist ekki frá mér heillengi eða ég fæ munnræpu;) Ég hef verið að fletta auglýsingabæklingunum sem gjörsamlega FLÆÐA í póstkassann hjá okkur. Venjulega er magnið mikið en frá því í nóvember hefur magnið aukist með hverri vikunni sem líður og nær hámarki rétt fyrir jólin. Með öðrum heimilistækjaauglýsingum, eins og ristavélar, kaffikönnur og þ.h. er nær undantekningarlaust líka hið margfræga fótanuddtæki eins og til er/var á öðru hverju heimili á Íslandi. Auglýsingarnar eru örugglega svipaðar og þegar þetta æði var á Íslandi, "æðislegt að láta þreytuna líða úr fótunum í vatnsfótanuddtæki, blablabla". Ef maður vissi ekki að þessi tæki væru til á jafn mörgum heimilum á Íslandi og raun ber vitni og hafa eflaust flest þeirra safnað ryki í geimslunni, þá gæti maður jafnvel haldið að þetta væri sniðugt:) Annars veit ég að mamma og pabbi áttu aldrei fótanuddtæki, ekki frekar en við áttum ekki videotæki, soda stream eða önnur vinsæl tæki á uppvaxtarárum mínum, þ.a. kannski er bara kominn tími til að mamma og pabbi eignist svona fótanuddtæki;) Hljóp yfir 3 daga í gær:) Vegna ofurmikillar óþolinmæði og skemmtilegra atburða á Íslandi rétt áður en ég átti pantað flug heim um jólin, ákvað ég að breyta farmiðanum mínum heim úr 18. des í 15. des. Reyndar er bara einn galli, og það er að Jobbi þarf að kynna verkefni þann 17. desember og verður hann því skilinn eftir. En fyrir mig, þýðir þetta að nú eru ekki nema 8 dagar þar til ég kem heim:):) Víííííííííííí!!! Skemmtilegu atburðirnir sem ég missi núna ekki af eru nokkrir, þar á meðal að verða vitni að því þegar litli bróðir fær bílpróf (allir að vara sig í umferðinni frá og með 17. des;)) og svo var ég að heyra af tvöföldu 25 ára afmæli þann 17. des. Ekki hægt að sleppa því, eða hvað?? Kannski aðeins að fá sér í aðra tána í góðra vina hópi:) sunnudagur, desember 519 dagar til jóla!!! Tíminn flýgur áfram, sem betur fer eiginlega, því þá verð ég fyrr komin í jólafrí heima á Íslandi!!! Hef nú svo sem ekki frá neinu spennandi að segja, allir keppast við að segja mér hvað þeir eru búnir að vera duglegir að skreyta, en á okkar heimili verður sko ekkert skreytt! Skilaði verkefni á fimmtudaginn og er núna að kíkja á önnur verkefni sem þarf víst að skila áður en ég fer heim. Allavega til þess að ég fái einingar fyrir áfangana;) Er einmitt að fara að hitta Frikka og Tue á morgun, og Tue vill sko ekki sóa deginum, ekki séns að fá hann til að samþykkja að hittast seinna en 8:30!!!! Hvaða heilvita manni dettur í hug að hittast svona snemma þegar maður getur alveg eins byrjað ca klukkutíma seinna?!?!? Vona nú að ég þurfi ekki að hitta þá marga daga, því ég þarf nú að fá minn beauty blund;) Well, well, best að skoða aðeins Power System, Analysis and Design bókina fyrir morgundaginn. sunnudagur, nóvember 28Styttist í síðustu próftörn þ.e. ef próftörn er hægt að kalla. Skila þremur verkefnum og eitt próf:-) Get ekki annað sagt en að ég sé himinlifandi að önnin sé að verða búin og í beinu framhaldi af annarlokum þá fljúgum við heim á frón og látum dekra við okkur;) Jú mamma, ég er búin að ákveða að þú munt þurfa að dekra við mig;) Aðeins að slá á létta strengi, þýðir víst lítið annað. Hlakka líka til að geta skoðað jólaþorpið, en ég fékk bara að heyra af því í fyrra. Annars er bara eitt "vandamál". Í hverju á ég að vera á jólunum... ætli ég fari nú ekki í bæinn áður en við komum heim og reyni að kaupa mér e-r föt svo ég fari nú ekki í jólaköttinn;) Vil helst sleppa því:-) mánudagur, nóvember 22Jújú, ég er á lífi...;) En ekki mikið að frétta af þessum bænum. Styttist í jólafríið og ekki nema 26 dagar í næstu Íslandsheimsókn:) Hérna er búið að "snjóa", þ.e. kom svona örþunn hvít breiða;) Svo snjóaði jú pínku meira en svo fór að rigna, og úr varð þetta líka fína SLABB!! Í öðrum fréttum er það helst að stór hluti Bónerhópsins ætlar að mæta til Köben í maí og skella sér á Destinys Child tónleikana. Efast ekki um að það verði hörku stuð og varla að maður geti sleppt því sjálfur;) Ekki meira í fréttum í bili, verð kannski hugmyndaríkari næst;) hehehe fimmtudagur, nóvember 11Eplakaka í ofninum, mmmmm Eftir frekar löng veikindi og frekar einhæft og leiðinlegt fæði var mig VERULEGA farið að langa í e-ð ansi krassandi að borða. Því var ákveðið að baka einfalda og fljótlega eplaköku á þessu heimili. Vonandi bragðast hún ljómandi þó við eigum ekki salthnetur (glætan að ég gæti bara átt salthnetur, væri alltaf búin að borða þær;)). Á morgun er svo útskriftarveisla fyrir Margréti heima hjá mömmu og alveg vitavonlaust að reyna að hitta á liðið á msn núna. Vildi að ég gæti komið en heimferð í hverjum mánuði er "aðeins" of mikið fyrir bankareikninginn okkar. Enda eru núna ekki nema 37 dagar þar til við mætum til Íslands í rúmlega þriggja vikna jólafrí!!!:-):-) föstudagur, nóvember 5blablabla blebleble Jájá, ég veit ég er ekkert búin að skrifa heillengi og satt að segja er heldur ekki mikið að segja. Búin að vera lasin í bælinu og veit nákvæmlega hvað er í day TV hérna í DK. Á að vera að tjútta á julefrokost hjá rekkanum en í staðin ligg ég upp í sófa, með fartölvuna á lærunum og vona að Jobbi skemmti sér vel. Í svona leiðindum er rafmagnsleysi niðrí skóla ekki mitt uppáhald!! Það fór bæði í gær og í hádeginu í dag, en það þýðir bara eitt, ekkert sjónvarp eða ekkert net!!! fimmtudagur, október 28Hrím á bílnum og engin skafa til Í gær var viðbjóðslega kalt þegar við vöknuðum, ætlaði ekki að ná að skríða undan sænginni því ofnarnir voru ekki alveg að ná að afkasta nógu miklu fyrir minn smekk. Þegar út í bíl var komið var hrím á bílnum og því nauðsynlegt að skafa af bílnum áður en lagt var í hann. Eftir mikla leit og umhugsun fattaðist það, að þar sem við keyptum bílinn ekki fyrr en seinni partinn í mars þá hefur okkur aldrei vantað sköfu fyrr en núna og því engin svoleiðis gripur til á okkar heimili. Eina ráðið var því að láta bílinn í gang og láta miðstöðina sjá um málið. Ekki alveg umhverfisvænasta lausnin og ég býst við að við verðum að koma við á e-i bensínstöðinni bráðlega til að fjárfesta í svona grip. Í dag er nú sem betur fer skýjað, en þá helst hitinn yfirleitt um 10°C sem er öllu skárra en frost. laugardagur, október 23Ég orðin e-ð rugluð... Jájá, sumir segja núna, nei ekkert orðin hefur alltaf verið það!! Letibloggarinn ég, lét verða af því að blogga í gær, en kemst svo að því í morgun að ég hafði ekki sett það hingað inn heldur á bónersíðuna. Við vorum alveg viss um að eiga 2 læri í frystinum og þegar við ætluðum að athuga hversu þung þau væru þá fundum við bara eitt. Jobbi heldur því núna fram að við höfum grillað hitt lærið með Ingunni og co. en ég man akkúrat EKKERT eftir því:/ Það er samt betri niðurstaða en að geimverur hafi fjarlægt það, eða að það sé draugagangur í íbúðinni:) sunnudagur, október 17Antisportisti skv DV!! Djísús kræst, eins og ég þoli ekki DV þá lét ég þá plata mig til að svara spurningu dagsins um daginn. Plata mig eða ekki plata, þá er þetta að sjálfsögðu mér að kenna því ég var eiginlega búin að segja já áður en ég fattaði að þetta væri fyrir DV. Var svo alltaf að spá hvort ég gæti ekki bakkað út úr þessu en fékk mig ekki til þess. Auli ég!! Þeir höfðu það nú alveg samviskusamlega eftir mér að mér gæti ekki verið meira sama hvort það ætti að reka landsliðsþjálfarann, og ég sagði líka að ég hefði ekki horft á leikinn. Ýkjurnar komu hins vegar þegar ég sagðist ekki vera neitt brjálæðislega mikið fan en þeir sögðu að ég væri antisportisti sem hefði engan áhuga á fótbolta!! Úr því að ég gat ekki asnast til að neita að svara þá hefði ég átt að taka fram að ég fylgdist alltaf með stöðunni og hlustaði á hluta af honum þó ég hefði ekki horft á hann. Mér finnst þetta landslið bara alltaf vera frekar lélegt, nema einstaka sinnum þegar þeir grísast til að kría út jafntefli á móti sterkum liðum. Held að þjálfarinn, sama hversu góður hann er, nái ekkert að búa til neitt svaka heimsklassalið með bara slakkfærum leikmönnum og Eið Smára. Maður eldar víst enga veislumáltíð úr úrvalskartöflum á meðan allt annað hráefni er orðið gamalt og slappt. Ekki að hinir séu allir gamlir og slappir, en þeir eru ekkert í heimsklassa eins og Eiður Smári. Á föstudaginn þegar ég labbaði inn í Hagkaup, fór ég og fletti í gegnum DV í sjoppunni, sá sömu spurningu dagsins aftarlega í blaðinu og þegar ég sá mig ekki, létti mér mikið og var guðs lifandi fegin að hafa ekki komið. Var því ekki skemmt þegar Margrét sagði mér í gærmorgun að ég hefði verið titluð antisportisti í DV deginum áður. Hef nefnilega mikinn áhuga á flestum íþróttum, þó fótbolti í sjónvarpinu og frekar slappt landslið sé ekkert mitt uppáhald. Erum annars í góðu yfirlæti í nýja húsinu hjá tengdó í snjókomunni hér fyrir norðan, komum beint í áttræðisafmæli hjá afa hans í gær eftir að það var frekar tvísýnt hvort við kæmumst. Margrét gat ekki flogið með okkur á föstudagsmorgun því sá sem átti vélina þá, var svo tregur að skipta við hana. Spáin var samt allt í lagi fyrir laugardaginn þ.a. við veðjuðum á það. Þegar við vorum lögð af stað og ég hringdi í Margréti til að láta hana vita að okkur seinkaði örlítið, þá spurði hún okkur hvort við sæjum ekki þokuna úti. Jú auðvitað, við sáum varla í næsta ljósastaur, þá eru nú ekki góðar líkur á að komast í sjónflugi til Akureyrar!!! Allt stappfullt í áætlun hjá Flugfélaginu og útlitið ekki gott að við kæmumst. Við fórum í loftið þegar þokan var farin og bjuggumst við að komast án vandræða m.v. upplýsingar frá veðurfræðingi, fljótlega eftir flugtak, er sagt í flugturninum að allar leiðir norður fyrir séu lokaðar og við ákveðum að lenda aftur og bíða aðeins, hættum aftur við það og fáum leyfi til að fara yfir álverið og reyna að komast út frá Reykjavík þaðan, það gékk ljómandi vel og allt átti að ganga skv. plani eftir það. Kjölur var skýjalaus skv. upplýsingunum sem við fengum, en þegar þangað var komið var skýjabreiða á milli jöklanna en sem betur fer ekki mjög breið þ.a. við hækkum flugið og ákveðum að fara þarna yfir. Nokkrum sinnum hvarflaði að manni nauðlendingin hennar frá því í sumar, en hún er svo rosalega pottþétt og greinilegt á öllu að hún vildi alltaf vita hvar hún gæti lent og upplýsti mig vel um allt sem nauðsynlegt væri að vita ef til óhapps kæmi að mér fannst ég ennþá öruggari núna en í fyrri flugum. Núna veit ég hvað hún hefur til að bera ef e-ð kemur uppá og sagði því við hana að ef e-ð kæmi fyrir þá myndi ég halla mér aftur, loka augunum og láta hana sjá um þetta aleina, það myndi auka líkurnar á að við myndum sleppa vel. Ekki að ég hefði haft neinar áhyggjur:-) fimmtudagur, október 14Kleinuframleiðsla hérna í dag Eftir massa leti hjá okkur mömmu í gær, þá ákváðum við í gær að við skyldum baka kleinur í dag. Buðum Margréti í kleinukaffi í fyrramálið þ.a. við gátum ekki skorast undan og hætt við á síðustu stundu. Upphaflega planið var að baka úr 2 kg af hveiti en þar sem þetta skotgekk svona hjá okkur þá skelltum við okkur á eitt kíló í viðbót. Höfum því lítið borðað annað en kleinur í dag. Það sem við höfum annars verið að gera síðustu daga, er mikil leti á daginn, hitta nýfæddu krílin síðan í sumar og matarboð og út að borða á kvöldin. Gerði mömmu og pabba víst algjöran óleik í nótt þegar ég var búin að vera andvaka í slatta tíma. Ég var orðin svo svöng að ég gat næstum ekki hugsað um það að sofna lengur og ég fór því bara upp og fékk mér að borða. Þegar ég helli morgunmatnum í skálina þá varð ég ansi hrædd um að e-r myndi vakna því það var það eina sem ég náði ekki að gera mjög hljóðlega. Jújú mikið rétt, heyri mömmu og pabba e-ð tala saman og stuttu seinna kemur mamma alveg grútmygluð fram og mér þótti þá víst að taka það fram að ég væri ekki orðin geðveik!! Ég vissi að klukkan var ekki nema korter í sex!! laugardagur, október 9Komin á klakann eftir hálfs árs fjarveru Núna erum við búin að vera hérna í 2 daga í GÓÐU yfirlæti. Hittum alla familíuna í gær á einu bretti í afmælunum hjá Hans Adolfunum tveimur. Litli kútur orðinn 8 ára, það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!! *Tíminn líður hratt, á gervihnattaröld.... trallalallala...* Annars er komið nokkuð þétt planið fyrir næstu vikuna hérna en samt ekkert framundan fyrr en annað kvöld, verður því örugglega leti fyrir framan imbann í kvöld. Spurning hvort við skellum okkur ekki bara í sund í dag, er svooooo gott að flatmaga í heitu pottunum:) mmmmm þriðjudagur, október 5Aaaaallveg að koma til Íslands:):):):) Á okkar heimili er búin að vera mikil óþolinmæði og spenningur í gangi síðustu daga. Dagarnir hafa verið taldir og nú er komið niður í AÐEINS 2 daga!!!! Nóg er eftir að gera, og það helst er nú að losna við þessa ansans kvefpest sem er búin að vera að gera út af við mig síðustu daga. Kvíði stórlega fyrir fluginu ef mér verður ekki batnað, því einu sinni flaug ég innanlands með bullandi kvef og ég var með hellu í öðru eyranu næstum allan daginn eftir það. miðvikudagur, september 29"Rétti" árstíminn Hér í Danmörku fæst yfirleitt ekkert sem ekki passar til líðandi árstíðar. Samt helst þ.a. maður þarf að vera RÉTT á undan árstíðinni til að fá það sem maður vantar. Sumarfötin eru t.d. helst á vorin, því strax um mitt sumar fara þau á útsölu til að rýma fyrir haustvörunum. Í lok ágúst þegar oft er hið besta sumarveður hérna, er því sjaldnast hægt að fá neinar sumarvörur af e-u viti. Í dag fórum við að athuga með nagladekk undir hjól fyrir Halldór og þegar við spurðum í fyrstu hjólabúðinni var þetta svarið sem við fengum: "Það er ekki rétti árstíminn!!". Þetta svar kom okkur svo sem ekkert mikið á óvart, en við hlógum samt að Dananum enn einu sinni. Svona úr því að ég er byrjuð, þá get ég alveg eins haldið aðeins áfram. Danir þurfa að skipuleggja allt með LÖNGUM fyrirvara. Það var ekki hægt að halda indflyttermøde hérna á kollegíinu um næstu helgi eins og búið var að plana þar sem það var ekki búið að senda út boðsbréfin 9 dögum áður!!! Þessi fundur er til þess að kynna nýfluttum íbúum kollegíssins fyrir gagnlegum ráðum fyrir dvölina hérna. Íslendingarnir á kollegíinu eru öllu lausari í skipulagningu, sjaldgæft að ákvörðun um hitting náist að vera tekin með viku fyrirvara. Einu sinni bauð Anna Karen öllum í mat kl 5 eftir að gestir í matarboð boðuðu forföll á síðustu stundu og það mættu ALLIR!! Hún hefði ekki getað fengið betri mætingu þó hún hefði planlagt þetta með mánaðarfyrirvara. mánudagur, september 27Árleg hægri eyrnaskoðun Áðan fékk ég eftirfarandi vottorð frá Jobba mínum: Árleg hægri eyrnaskoðun hefur farið fram og var lokið með 0 athugasemdum. Eyrað telst því löglegt í umferðinni. Eyrnaeftirlitið Jósef miðvikudagur, september 22Geðveikur GSM sími Símarnir sem ég hef átt um ævina hafa farið ófáar byltur í gólfið í gegnum tíðina. Í dag missti ég símann í gólfið og ótrúlegt en satt þá datt batteríið ekki úr honum og allt virtist í lagi (síminn er þeim "eiginleika" gæddur að ef hann fær smá högg þá dettur hann allur í sundur og á víst að vera þannig). Stuttu seinna reyndi ég að hringja í Jobba og á skjánum sást að ég væri að hringja, en EKKERT heyrðist í símanum. Jobbi fékk ekkert símtal og eftir ansi langan tíma þar sem ég gat EKKERT gert nema horfa á símann vera að hringja, þá varð ég að slökkva á símanum með að taka batteríið úr. Virkaði ekki að reyna að slökkva á honum venjulega. mánudagur, september 20Áfram FH, áfram FH!!! Í fyrsta skipti í sögu félagsins varð FH loksins íslandsmeistari í fótbolta!! Miðað við þann fjölda úr fjölskyldunni minni sem fór norður á leikinn, þá efast ég ekki um að það hafi verið fjölmennt af FH-ingum á FH-KA leiknum. Pabbi fór meira að segja með Agnesi og Hans Adolf norður í rútu og heim aftur strax eftir leikinn!! Verst að KA menn þurftu að falla við sigur FH-inga, Jobbi var því ekki alveg jafn ánægður og ég með úrslit gærkvöldsins. miðvikudagur, september 15Jólin nálgast Það mætti allavega halda það;) Ég er nefnilega búin að taka upp jóladúkinn sem ég keypti í fyrra og ætla mér að reyna að komast e-ð áfram með hann. Sama þó ég hefði endalausan tíma í sumar, þá gat ég e-n veginn ekki komið mér í jólaföndrið um mitt sumar!! Eins og það hefði nú verið upplagt. mánudagur, september 13Letibloggari, ha ég? nei getur ekki verið;) Nenni ekki að koma með allar heimsins afsakanir fyrir því af hverju ég er ekki búin að blogga svona lengi... gæti eflaust grafið þær nokkrar upp;) Einhvern veginn eftir að lengra leið, og meira hafði gerst átti ég erfiðara með að koma mér af stað. Er t.d. búin að vera með blogger opinn hjá mér í næstum allan dag, en ekki fyrr en núna fyrst sem ég drattast til að skrifa (eftir að ég var farin að fá "skammir" frá Margréti). Hvað er svo búið að vera að gerast undanfarið, jú Hólmar var í heimsókn hjá okkur í rúma viku. Hann var aðallega að slappa af áður en skólinn byrjaði aftur hjá honum í dag. Ég held hann hafi skemmt sér ágætlega með okkur, eins gott fyrir hann að viðurkenna ekkert annað;) Um helgina fór ég síðan yfir til Århus til að hitta Helgu Björt, Berglindi og Lindu Rós. Föstudagurinn var síðan alls herjar saumódagur! Við fórum allar með Gústafi Bjarna, Emil Gauta og Baldvini Hrafni og foreldrum Berglindar í Legoland og allir skemmtu sér konunglega. Ég hafði aldrei farið áður í Legoland og hlakka bara til að fara aftur. Vel hægt að eyða heil löngum tíma í viðbót að skoða allar byggingarnar og hverfin. Tækin voru flest ætluð börnum, og því ennþá skemmtilegra að fara með strákunum í tækin og upplifa gleðina með þeim. Við Berglind vorum síðan þær einu sem þorðu í fyrstu tilraun í Power Builder, en það er tæki sem maður forritar sjálft hvernig maður vill hafa sína ferð og við vorum svo hugaðar að við völdum það "versta og mesta". Var nú ekki eins slæmt og maður gat ímyndað sér þar sem við urðum ekki ringlaðar, vorum í staðinn á hvolfi meiri hlutann af tímanum!! Í gær prófaði ég eitt sem ég er búin að halda fram að ég geti, og það merkilega var, þá tókst það. Ég fór í sturtu í auglýsingahléi á bíómyndinni í gærkveldi á Þremur. Það segir sitt um lengt þessara auglýsingahléa, sem geta auðveldlega gert mann geðveikan. laugardagur, september 4Íslendingagrill og heimsókn Í gærkveldi hittust Íslendingarnir á kollegíinu (og tvö rétt óflutt) upp í Center og grilluðu saman. Eins og venja er, var ótrúlega gaman að hitta krakkana aftur. Ótrúlegt en satt, þá var veðrið svo gott að við gátum borðað úti á meðan krakkarnir hlupu um svæðið og léku sér. Í dag kemur svo Hólmar bróðir hans Jobba í heimsókn til okkar, og verður hjá okkur í rúma viku. Munum pottþétt fara með hann í tívolíið og svo á restin bara eftir að koma í ljós. þriðjudagur, ágúst 31Í stuði með Stuðmönnum Veit fátt skemmtilegra en að setja íslenska tónlist í spilarann og dilla mér með. Man reyndar ekkert alltof oft eftir því, en núna er ég búin að vera með Tvöfalda bítið með Stuðmönnum í gangi og er þvílíkt að fíla mig í tætlur. Minnir mig á frábæru tónleikana í tívolíinu, væri til í e-ð svoleiðis aftur. Er annars að reyna að taka aðeins til, gengur ekkert alltof vel þegar tölvan er með þennan segul... vona samt að Jobbi sjái e-n mun þegar hann kemur heim:) Skólinn byrjaður Í gær var fyrsti skóladagurinn þessa önnina, sem er einnig síðasta önnin fyrir lokaverkefni. Var frekar erfiður fyrsti dagurinn, frá 8-4. Leyst samt asskoti vel á kúrsana sem voru í gær, og er bara orðin nokkuð spennt fyrir önninni. En eftir kröftuglega byrjun í gær, er náttlega þörf á smá hvíld, og því er ég í fríi bæði í dag og á morgun:-) laugardagur, ágúst 28Hópferð í tívolíið Í gær fórum við í rigningunni 8 saman í tívolíið. Allir fengu sér turpas sem voru svo sannarlega vel nýttir. Fórum tvisvar í dímoninn og fallturninn, Jobbi lét sig hafa það að fara í strákaferð í Dragen, en í það tæki hefur hann aldrei vogað sér áður og fullt af fleiri tækjum. Mælum hiklaust með því að fara í svona veðri, því við þurftum eiginlega aldrei að bíða neitt m.v. hvernig raðirnar geta orðið á góðum sumardögum. miðvikudagur, ágúst 25Smiður, málari eða bifvélavirki, ég get þetta sko allt saman;) Í gær vorum við að rífa niður úr eldhúsinu og smíða upp í loftið. Í dag skiptum við um bremsuklossa, olíu og e-ð sem kallast "bærkugle" á "gør det selv" verkstæði og síðan er bara málningin sem bíður ennþá. Það var alveg ótrúlega lítið mál að laga bílinn, nú þyrftum við bara að fara á logsuðunámskeið þ.a. við gætum lagað pústið sem er svona farið að byrja að bila. Þó mér finnist ekkert svakalega spennandi að vera drulluskítug og með skít undir nöglunum þá er það samt soldið gaman þegar ég veit að það er af því að ég er búin að vera geðveikt dugleg að gera e-ð sem mér hefði aldrei dottið í hug að ég gæti gert. Ennþá eru myndir að bætast inn í albúmið, setti inn 2 nýja flokka í morgun og aldrei að vita nema það komi meira í kvöld. Kíttað upp í götin Þó ég hafi aldrei kíttað áður og vissi ekki hvernig ég kæmi túpunni inn í sprautuna þegar ég fékk hana lánaða þá hafðist þetta allt saman og meira að segja nokkuð vel þó ég segi sjálf frá. Þá eigum við bara eftir að mála og það verður gert á eftir, en Jobbi fór í morgun að ná í málningu. Áður en við málum ætlum við hins vegar að reyna að skipta um bremsuklossa á bílnum okkar. Tekið skal fram að við höfum aldrei gert neitt því um líkt áður og ætlum því að koma við á bókasafninu og ná í handbók til að hjálpa okkur! mánudagur, ágúst 23Myndir farnar að berast í albúmið Er byrjuð að setja inn myndir úr ferðalaginu okkar í myndaalbúmið. Á eftir að koma miklu fleira en ég set þetta inn eins og ég nenni. Bíllykill í þvottavélina Rétt áður en við fórum að þvo í vikunni fundum við ekki annan bíllykilinn okkar. Það er í sjálfu sér ekkert óvanalegt en lyklarnir hérna týnast mjög svo reglulega en hafa hingað til alltaf komið í leitirnar stuttu seinna. Svo var einnig í þetta skiptið, nema hann fannst þegar við tókum þvott út úr þvottavélinni. Ekki kannski alveg besta meðferðin sem hægt er að hugsa sér fyrir svona fjarstýringarlykil. Eru lífgunartilraunir í gangi og við vonum bara það besta. föstudagur, ágúst 20Dugnaður á heimilinu Jobbi þó meira áþreifanlega en ég, þar sem hann fór með Ingólfi í Silvan í morgun að kaupa efni í hillur í skápana og inn á baði. Hann er síðan búin að koma þeim upp, búinn að setja öryggisjárn á eldhúsgluggann og er núna e-ð að baksa við að tengja hátalara í stofunni. Ég hins vegar er búin að pikka ferðasöguna inn í tölvu og telur það heilar 14 blaðsíður!! Þvotturinn frá því í gær er orðinn þurr, en á ennþá eftir að brjóta e-ð af honum saman. Var ekki alveg nógu gáfulegt að þvo 7 þvottavélar í gær þar sem það fór að rigna og við eiginlega engan veginn með nóg pláss til að þurrka fötin þó við hefðum látið í 2 stútfulla þurrkara. miðvikudagur, ágúst 18Komin heim Það er nú ósköp gott að vera komin heim til sín, en öllu leiðinlegra að ganga frá öllu dótinu. Við komum s.s. heim í gærkveldi/nótt eftir langa keyrslu frá Sviss. Reynslan og upplifunin að vera í mánaðar tjaldferðalagi, skoða FULLT af hlutum og hitta gamla vini var alveg ólýsanleg og ógleymanleg. Vorum með grófa hugmynd um hvernig við ætluðum að haga ferðinni en eftir því sem tíminn leið þá breyttist hún og við erum mjög sátt við útkomuna. Fyrstu 4 næturnar vorum við í Þýskalandi. Þar keyrðum við um Svartaskóg og fórum til Strasbourg í Frakklandi með Ingunni, Halldóri, Hafdísi, Helenu og Viktori (frændi þeirra sem Hafdís var að passa), fórum í Europa Park með fjölskyldunni, slöppuðum af við Rín og fórum í mat til Jennýar og Árna. Frá Þýskalandi lá leið okkar til Sviss, fékk næstum víðáttubrjálæði í matvörubúðunum því mig langaði svo að prófa allt sem ég mundi að mér hafði þótt gott hérna áður fyrr. Vorum 2 nætur í Basel, 2 nætur við Bielersee og síðan 2 nætur í Zürich. Í Zürich hittum við Robba, Judith og Júlíu, en Robbi er vinur hans Jobba. Vorum hjá Friedu (kona sem ég var soldið hjá þegar ég var skiptinemi) í 3 nætur og fögnuðum þar 1. ágúst (þjóðhátíðardagur Svisslendinga). Fórum yfir í ítalska hluta Sviss og vorum í 4 nætur þar með Vroni í húsi sem Ammann fjölskyldan (sem ég átti heima hjá) á þar. Fórum til Ítalíu og vorum á tjaldsvæði við ströndina nálægt Feneyjum í viku. Skoðuðum að sjálfsögðu Feneyjar en lágum annars í leti á ströndinni eða lékum okkur þar (ég átti frekar erfitt með að liggja bara lengi). Þegar þarna er komið við sögu, vorum við búin að vera á ferðalagi í 24 nætur og mig farið að langa ansi mikið að komast heim til mín. Fórum aftur til Sviss, vorum í 2 nætur á tjaldsvæði í Lungern (milli Luzern og Brienz ef það hjálpar e-ð). Vorum að keyra þarna í gegn þegar við sáum auglýst tjaldsvæði og staðurinn var svo æðislegur (og við nenntum ekki að keyra lengur) að við breyttum bara planinu. Fórum upp á Schönbüel (2011m hátt fjall alveg við bæinn) og sáum yfir til alpanna. Síðustu 2 næturnar vorum við síðan aftur í Madiswil en nú hjá Ammann fjölskyldunni, lágum bara í leti til að safna kröftum fyrir heimferðina. Lögðum af stað heim fyrir 8 þ.a. við yrðum nú komin heim á skikkanlegum tíma. Stoppuðum í búð til að kaupa hátalara fyrir frænda Jobba sem var ekki langt frá hraðbrautinni og ætluðum að vera eldsnögg þar. Það breyttist líka heldur betur því við lögðum ekki aftur af stað fyrr en eftir 4 klukkutíma!!! Af hverju?? Jú, því við sáum 32" sjónvarp á svo svaka fínu tilboði og við þurftum góðan tíma til að hugsa um það og síðan ekki minna mál að endurraða í bílinn til að koma sjónvarpinu og hátölurunum fyrir í næstum fullan bílinn. Þetta er ferðin í grófum dráttum, erum núna búin að vera að ganga frá dótinu okkar, og merkilegt nokk, þá er íbúðin farin að líta út eins og mannabústaður aftur:) mánudagur, ágúst 16Styttist i heimkomu Eftir taeplega manadarferdalag styttist i ad vid komum aftur heim til okkar. Eg get ordid ekki bedid eftir ad geta sofid i minu rumi, med mina saeng, farid a manns eigins klosett og chillad upp i sofa. Erum nuna i Madiswil hja fjölskyldunni sem eg var hja tegar eg var skiptinemi her i Sviss og aetlum ad leggja af stad heim a morgun. Planid er ad keyra alla leidina (1200km + 45min ferja + bidtimi fyrir ferju) i einum rykk og vid sjaum svo til hvort okkur tekst tad. sunnudagur, ágúst 8A ìtalìu Komum à föstud til ìtalìu og erum bùin ad hafa tad svaka gott à tjaldsvædi rétt hjà Feneyjum. Liggjum à sandströndinni à daginn næstum hvort sem sòlin skìn eda ekki. Bùin ad kaupa partìtjald til ad geta setid ùti ì kvöldrigningunni sem virdist ætla ad vera vaninn hjà okkur. Ciao! Póstblogg sendi Eyrún Powered by Hexia þriðjudagur, ágúst 3Italski hluti Sviss Komum i gaer yfir alpana og aetlum ekki ad fara aftur nordur fyrir tha fyrr en eftir nokkura strandlegu a Italiu og nanari skodun a Tessin sem er italski hluti Sviss. Erum buin ad vera i brjalaedislega miklum hita herna undanfarid og okkur dreymir stödugt um loftkaelingu i bilinn tvi tegar dökkblar billinn er buinn ad vera e-n tima i sol verdur heldur obaerilegt inni i honum. Annars er altjodalega kvikmyndahatidin i Locarno ad hefjast a morgun og aetlum vid ad kikja adeins a tad. þriðjudagur, júlí 27![]() Slappad af à ströndinni.?Erum ì mjög svo vidràdanlegum hita à strönd vid Bielersee (Sviss). Eftir mikid sud nàdi ég ad draga Jobba ùtì vatnid, sem var ekkert svo kalt tegar ùtì var komid:-). Annars er vindsængin byrjud ad leka, vid munum reyna ad finna orsökin svo ekki turfi ad kaupa nyja. Tschuss! Póstblogg sendi Eyrún Powered by Hexia sunnudagur, júlí 25![]() Strìpalingur!?A leid okkar um midbæ Karlsruhe ì gær mættum vid ca. fimmtugum strìpalingi skokkandi um bæinn. Skiljanlega vakti hann mikla athygli medal bæjarbùa. Skodudum Basel ì dag og grilludum svo svìn a ridgada ferdagrillinu. Hrafnhildur eignadist stràk 20. jùlì, TIL HAMINGJU!!! Póstblogg sendi Eyrún Powered by Hexia laugardagur, júlí 24![]() Loksins aftur ì elsku Sviss! Erum nù komin yfir til Sviss eftir gòda daga ì Karlsruhe. Bùin ad koma upp skakka tjaldinu à tjaldsvædi vid Basel og erum ad grilla bratwurst. Ætlum a jòdlhàtìd à eftir hérna rétt hjà. Tyskan er sem betur fer ca komin aftur:-) Margrét, ég vona ad tù hafir tad gott! Póstblogg sendi Jobbi Powered by Hexia þriðjudagur, júlí 20Komin a tjaldsvædi ì Karlsruhe. Eftir keyrslu i MESTU rigningu EVER erum vid nu komin ì Freizeitcenter rétt sunnan vid Karlsruhe. Mikla rigningin var svo mikil ad hradinn hrundi a hradbrautinni tvì tad sàst varla ùt ùr bìlnum. Hef lìtid turft ad tala tyskuna, en gat tò pantad gistinguna a tysku:-) Póstblogg sendi Jobbi Powered by Hexia ![]() Erum nùna ì Rødby ad bìda eftir næstu ferju sem flytur okkur yfir til Tyskalands. Vedrid er mjög gott, næstum of gott fyrir bìl med engri loftkælingu:) Næsta mission er ad reyna ad rifja upp tyskuna;) Bless Danmörk Póstblogg sendi Jobbi Powered by Hexia Á leið í frííííí!! Þá er loksins liðin upp sú stund að við erum alveg að fara að leggja í tjaldútilegu okkar um Evrópu. Reyndar verður Evrópa tekin bara að hluta þar sem planið er að skoða Þýskaland, Sviss (já einu sinni aftur) og Ítalíu. Erum búin að koma upp moblog á síðuna þ.a. e-rjar fréttir munu berast á meðan ferð okkar stendur. Ciao! sunnudagur, júlí 18Blogger suckar svo BIG time!!!!!! Þetta nýja edit mode er alveg að fara með mig og mína þolinmæði (sem getur verið að afar skornum skammti þegar tölvur og net eru annars vegar). Þoli ekki þegar tölvan vill hafa vit fyrir mér og ég get ekki ráðið sjálf hvað og hvernig ég geri hlutina!! Núna get ég t.d. af e-m undarlegum ástæðum ekki breytt færslum sem ég hef áður skrifað og linkar verða að vera af einföldustu gerð, ekki möguleiki að opna í nýjum glugga eða neitt því Edit HTML virkar ekki hjá mér!!! ARRGG og GARRRGG!!! Myndaalbúmið komið upp aftur með fullt af nýjum myndum:-) Loksins, loksins, loksins!! Eftir einn og hálfan mánuð er myndaalbúmið loksins komið upp aftur. Ástæðan var einföld, það var skipt um server í byrjun júní og netgrúppunni (sem Jobbi er einmitt aðili að) fannst ekkert svo áríðandi að koma heimasvæðum notanda upp aftur. En einmitt af því að ég er með svo góð sambönd inn í þessa grúppu þá gat ég suðað nógu mikið til að hann kæmi þessu upp aftur. Ef ekki væri fyrir hann, hefði myndaalbúmið örugglega ekki komið upp aftur fyrr en í haust eða jafnvel bara um jólin, því þessir gaurar er sko ekkert að flýta sér neitt of mikið. Óboðinn gestur á milli brjóstanna Ég hélt að það væri nú alveg skýrt að það þyrfti að fá leyfi áður en vaðið væri á kvenkyns brjóst. Það hefur greinilega e-ð farið fram hjá þeim sem ég þurfti að ná í á hægra brjóstinu mínu í gær. Þessi græna fluga sem trítlaði upp eftir brjóstinu fékk því að enda líf sitt á milli puttanna minna úr því að hún kunni ekki betri mannasiði;) miðvikudagur, júlí 14Á leið til Svíþjóðar... aftur:-) Af því að það er svo gaman að geta illa talað við annað fólk þá erum við strax farin að hlakka til að fara með bílinn á verkstæðið þar sem enginn virðist tala ensku. Það þýðir aðeins eitt, við verðum að tala við þá dönsku sem er ekkert mál, en öllu verra um að skilja sænskuna!!! Ekki nóg með það heldur snýst þetta um bíl og bílamál! Vonum bara að við fáum ekki of háan reikning þegar við sækjum bílinn sökum tungumálamisskilnings. Þar sem ég var svo hrikalega mikið utan við mig í gær og var engan veginn inn í hvaða dagsetning var, þá STEINgleymdi ég að óska Lindu Rós til hamingju með afmælið í gær!! Hún varð 25 ára skvísan og fær af því tilefni innilegustu hamingjuóskir frá íbúum Trørød Kollegís 20c. þriðjudagur, júlí 13Humarveisla Gestirnir okkar, Ingunn, Halldór og Helena, komu með fullan kassa af Humri handa okkur. Meirihlutinn var grillaður í gærkveldi á nýja grillinu okkar og var grillið þar með formlega tekið í notkun. Grillið stóðst fyrstu prófraun sína með prýði og smakkaðist humarinn alveg snilldarvel. Maturinn var þó ekki fyrr en seint í gærkveldi eða um 10 leytið því við vorum svo upptekin á Strikinu þar til allar búðir lokuðu. Í dag er svo stefnan sett á rölt í Christianiu og Tívolíið:) föstudagur, júlí 9Dugnaður, eða hvað? Í byrjun dags, leit hann út fyrir að ætla að verða einn af þessum dögum sem maður gerir akkúrat ekki neitt nema hanga á netinu. Úti var MÍGANDI rigning og ótrúlega óspennandi að fara út fyrir hússins dyr. Þegar leið á daginn stytti upp og sólinn lét meira að segja sjá sig. Við drifum okkur þá út og Jobbi (já þið lásuð rétt) fór að hreinsa upp á milli hellna og úr beðunum. Á meðan fór ég í að klippa aðeins til tréð sem hefur verið aðeins of stórt í þessum litla garði. Nú virkar garðurinn miklu miklu stærri og á vonandi eftir að nýtast okkur vel í næstu viku þegar sólin á að fara að sjást meira og við verðum með góða gesti í heimsókn. Eftir alla þessa vinnu nenntum við nú ekki mikið að elda þ.a. það var bara pöntuð pizza á þessu heimili. Að lokum var svo gasgrillið sett saman og er núna komið út á stétt. Bíður eftir tilvonandi sambýlismanni (þ.e. gaskútnum) og að fá loksins að elda ofan í okkur dýrindis máltíðir. Þetta kalla ég að vera dugleg:-) fimmtudagur, júlí 8Gasgrillseigendur Nú gátum við loksins ákveðið okkur, eftir mikla umhugsun. Við keyptum okkur í afmælisgjöf frá tengdó og ömmu og afa Jobba Char-Broil grill í Elgiganten í Fields. Byrjuðum á að fara í "okkar" Elgiganten sem er ekki svo langt í burtu, og þá var bara útstillingseintakið til sölu og átti að vera 500dkr afsláttur fyrir að kaupa þetta ákveðna eintak. Sem betur fer var ég búin að skoða í Fields, og sjá að þar var nákvæmlega þetta grill á sama verði, þ.e. líka með þessum 500dkr afslætti. Lét því ekki plata mig til að kaupa jafndýrt grill sem er búið að standa heillengi í búðinni og fólk búið að þjösnast á. Hins vegar varð ferðin í Fields til þess að rugla okkur ennþá meira í þessum grillpælingum, því við sáum svaka flott, miklu stærra grill sem var líka næstum helmingi dýrara. Það var ótrúlega töff og lokið eldrautt, en við ákváðum samt að vera skynsöm og fá okkur ekki svo stórt grill fyrr en við eigum allavega eigin íbúð eða hús. Önnur grillveisla sumarsins Í þetta skiptið var það reyndar bara veisla fyrir okkur tvö. Í staðinn höfðum við líka pláss á grillinu til að grilla ferskan ananas og grænmetisspjót. Við erum alveg á fullu að leita okkur að fínu gasgrilli þar sem maður getur grillað aðeins meira magn í einu, heldur en á ferðagrillinu okkar. Ekki nóg með að það var svaka fínn grillmatur, þá borðuðum við úti í sólinni:-). Það á hins vegar að fara að rigna aftur í kvöld, þ.a. ég efast um að við náum þessum lúxus aftur strax. Svo til að toppa allan lúxusinn þá svaf ég eins og rotuð sveskja til hálf 12:-) mmmm það er svo notalegt að sofa:-) Kannski betra að taka það fram að ég fór seint að sofa;) þriðjudagur, júlí 6Tekin í rassgatið Við fórum út að borða í kvöld á Vesuvio, sem er alveg ágætis ítalskur veitingastaður niðrá ráðhústorgi. Við hliðina á okkur voru enskumælandi útlendingar. Þegar þau voru að borga voru þau greinilega að velta fyrir sér hvort þjónustan væri innifalin í verðinu og spurðu því þjóninn. Hann svaraði NEI, en skv. minni vitneskju er sama fyrirkomulag á tipsi hér og heima, sem þýðir að þjónustan er innifalin í verðinu en fólki er meir en velkomið að gefa þjónunum þjórfé ef það langar til. Við vorum mikið að spá hvort við ættum að segja þeim það, en ákváðum bara að láta þetta okkur að kenningu verða og aldrei spyrja á sjálfum staðnum, því þá myndi maður pottþétt fá sama svarið hvort sem það væri síðan rétt eða ekki. mánudagur, júlí 5Línuskautarnir vígðir Í gær voru "nýju" línuskautarnir okkar vígðir. Nýju er innan gæsalappa því þeir voru keyptir í fyrra!! Maður verður náttlega alltaf að kenna e-m öðrum en sjálfum sér um, og hjá mér er það að Jobbi vildi ekki fara á þá fyrr en hann væri búinn að kaupa hlífar. Þær voru svo keyptar í vor og ég beið spennt eftir að klára prófin til að geta farið á línuskautana, en þá fór að rigna eins og ég hef víst margoft áður sagt. Við fórum samt ekki langt, Jobbi þarf aðeins að venjast þeim betur áður en við getum farið í lengri ferðir;) Best að gera samt ekkert of mikið grín af honum, því einu sinni var ég líka nýbyrjuð á línuskautum og endaði inni í húsgarði þegar ég gat ekki stoppað mig á leið niður Fagrabergið. Rigning fyrir lífstíð Kannski ekki alveg, en fyrr má nú aldeilis vera. Samkvæmt veðurfréttum fyrir nokkrum dögum, átti sumarið að koma á morgun, jújú, spáin segir það ennþá, en bara í 2 daga!!!!! Hvernig er hægt að láta mann upplifa jafn leiðinlegt sumarveður??? Á milli rigninganna kemur oft mjög gott veður og þá verður maður bjartsýnn og vill endilega komast út, en oft áður en maður er kominn út um dyrnar er farið að rigna aftur!! Spurning hvort maður verði að láta senda sér gúmmístígvélin og láta versla á mann 66°N regngalla?? Neinei, þetta getur nú varla orðið mikið verra en það er búið að vera, það hlýtur að fara að skána... ég var allavega búin að lofa Ingunni að það yrði sumarveður þegar hún kæmi og hún er að koma um næstu helgi:-) Jobbi vildi endilega að ég léti öppdeit á síðasta bloggið mitt, því ég fór út og sló grasið seinnipartinn:-) Var ekkert svo lengi að því og það er allt annað að sjá garðinn núna. Nú er hins vegar allt hitt illgresið eftir, en næ vonandi að klára það fljótlega. Komst að því að nágranna kettirnir (þeir eru nokkuð margir) hafa notað beðin okkar sem klósett, og það var allt fullt af kattaskít!!! Ójjjjjj!! Jobbi er svo mikil hetja að hann hreinsaði þetta fyrir mig:) sunnudagur, júlí 4Enginn á netinu! Það er alveg greinilegt að fólkið sem ég þekki á Íslandi er ekki að nenna að hanga á netinu um helgar! Ég er reyndar búin að vera óvenju dugleg að gera annað en að vera á netinu, en það virðist bara vera frekar dautt þegar ég fer á það. Næstum enginn á msn og mest lítið að gerast á bloggsíðunum. Annars er kannski bara ágætt að það sé lítið sem ekkert um að vera á netinu, ég geri þá hugsanlega e-ð gáfulegt í staðin fyrir netrápið. Eins og þegar sólin skín í gegnum holurnar á skýjunum þá dauðlangar mig til að fara út í garð að slá og hreinsa illgresið í stéttinni, en það er bara því miður allt blautt ennþá eftir rigninguna áðan og maður bíður bara eftir næstu gusu. Ferskur fiskur í fyrsta sinn Við Jobbi erum frekar léleg í að elda fisk, það verður að segjast alveg eins og er. Nokkrum sinnum höfum við eldað sjávarréttarsúpu með frosnum sjávarréttum og fisk en í gær fórum við í fyrsta skipti í fiskbílinn sem kemur einu sinni í viku og versluðum okkur ferskan þorsk. Það má spyrja sig af hverju Íslendingarnir hafi keypt sér þorsk og ástæðan fyrir því er einföld. Við mundum ekki hvað neinn annar fiskur hét á dönsku!! Þegar heim var kominn, elduðum við dýrindis fisk sem ég fann uppskrift að á netinu (hvar annars staðar?;)). Þrátt fyrir að vera lélegir fiskeldunarmenn, þá erum við samt að skána, því á þessum rúmum 10 mánuðum sem við höfum búið hér, hefur oftar e-s konar fiskmeti verið á eldhúsborði okkar heldur en 2 árin á undan á Eggertsgötunni. Þá nenntum við líka alveg sjaldnast að elda og ef það var farið að líða of langt frá almennilegum mat, þá skelltum við okkur í Fagrabergið. Nú er ekkert hótel mamma sem hægt er að stóla á. |
|