Þvílíkur og annar eins dugnaður hjá okkur Jobba hefur varla heyrst áður. Við vorum komin út í Kjarnaskóg um hálf níu í morgun, gátum þá leikið okkur að vild í leiktækjunum því það var ekkert annað fólk þarna (Síðast þegar við fórum í Kjarnaskóg var allt fullt af fólki og börnum að leika sér svo við gátum ekkert leikið okkur). Var síðan mjög hressandi að fara í okurbúlluna Sundlaug Akureyrar á eftir, sérstaklega þar sem fólk var greinilega frekar þreytt eftir gærkveldið og voru mjög fáir framan af í lauginni. Eyrún14:25Comment<