Fékk nýja sýn á þennan áróður Sorpu í gærkveldi þegar við buðum Hafrúnu, Guðmundi og Kötlu Maríu í mat. Katla María er algjört matargat en fannst greinilega sumt betra en annað því sumt af matnum fór upp í hana, öðru var hent á gólfið við hliðina á stólnum og enn annað fór beinustu leið í gólfið á milli borðs og stóls.
Annars heppnaðist maturinn held ég bara alveg ágætlega, við grilluðum lambalæri og fyllta sveppi, bökuðum kartöflur og höfðum annað staðlað meðlæti. Eftirmaturinn heppnaðist síðan líka ágætlega en ég bjó til berjakrap með fína töfrasprotanum mínum.