Já ég fór eins og ætlunin var, við fórum alla leiðina upp á topp (tókum reyndar smá krók þarna efst uppi og KLIFRUÐUM aðeins meira en við þurftum) og var það nú bara ekkert svo mikið mál. Svo þegar við vorum ca hálfnuð niður þá hætti reyndar að vera gaman, mér varð svo illt í HELV*#%"%#$ mjöðminni/lærleggnum að ég átti frekar bágt með að koma mér niður en það hafðist þó að lokum. Er núna alveg að lognast út af en bíð núna bara eftir að baðið verði tilbúið svo ég geti aðeins lagt mig þar ofaní. Tókum örfáar myndir, þær koma væntanlega í myndaalbúmið fljótlega. Vorum reyndar ekki mjög sátt við þokuna sem ákvað að skríða yfir toppinn akkúrat þegar við vorum að komast upp og fór ekki aftur fyrr en við vorum komin áleiðis niður. Eyrún01:34Comment<