Það er orðið ansi langt síðan ég skrifaði hérna síðast. Er búin að vera ógó mikið í vinnunni eftir að ég flutti af Háaleitisbrautinni upp á Hestháls. Er svo svakalega þægilegt að vinna núna eftir að ég er komin með skrifstofu en er ekki lengur inni á tölvudeildinni. Það var náttlega alltaf mikið um að vera á tölvudeildinni og maður var alltaf að spjalla við fólk en vinnulega séð er skrifstofan mun betri.
Í vikunni erum við líka búin að vera soldið dugleg að fara út eftir vinnu og dagurinn í dag var síðan alveg brilliant. Þegar ég kom heim úr vinnunni (já ég er algjört nörd og fór sjálfviljug í vinnuna í morgun fram að hádegi) þá fórum við Jobbi og Katla María (vorum að passa skvísuna) og löbbuðum niður í bæ. Höfum hreinlega aldrei gert það áður að ganga niður í bæ í góðu veðri og setjast úti og fá okkur að borða. Er náttlega frekar dularfult að maður þurfi barn til þess að nenna því, eins og þetta er nú alveg yndislegt. Fórum síðan líka í Bláa Lónið og vorum þar alveg slatta lengi. Það var ekkert smá troðið þar, voru alveg skriljón útlendingar og fullt af Íslendingum líka. Núna eru allir orðið rjóðir og sællegir:-)
Svo er bara vinna í einn dag á morgun og svo aftur komið frí. Ég fatta ekki alveg svona fimmtudagsfrí, þá er það mikið búið að vinnuvikunni að ég held alltaf að það sé bara laugardagur og er ekki alveg að fatta það að það sé vinna á morgun aftur. Enda er líka klukkan orðin alltof margt núna og ég ætti að vera löngu komin í háttinn... Eyrún03:19Comment<