Mikið ask.. er ég nú búin að vera dugleg í dag:-) Búin að vera í mömmuleik með Kötlu Maríu (dóttir Hafrúnar) síðan eftir hádegi í dag. Búnar að fara út á róló, labba meðfram Ægissíðunni og svo fórum við í sund!! Heimsótti líka mömmu og pabba og mér sýndist þau bara engu hafa gleymt og vildu bæði alveg ólm halda á henni og gefa henni að borða, efast ekki um að þau séu nú farin að hlakka til að fá ömmu og afa börnin. Meira að segja pabbi sem er búinn að vera að drepast í bakinu vildi nú aðeins fá að prófa að halda á henni;)
Svo hélt ég að ég gæti nú bara gefið henni barnamauk í kvöldmatinn því satt best að segja leist mér ekkert of vel á kjúklingasnitselið sem ég keypti í Nóatúni, en neinei ekki að ræða það, hún vildi alvöru mat eins og við Jobbi! Það er sko ákveðin ung stúlka (14 mán) sem sefur núna inni í rúminu okkar Jobba.
Jæja, ætla að fara að ganga frá þvottinum sem Fjóla og Helga eru búnar að hneykslast mikið á hérna... Take care! Eyrún23:24Comment<