Jibbý!!!! Nú er loksins búið að skipta um blöndunartæki í baðkarinu á Hjónagörðunum. Þá getur maður loksins hætt að hendast út úr sturtunni vegna kulda eða hita en gömlu blöndunartækin voru ansi uppátækjasöm svo ekki sé nú meira sagt!! Af því að maður getur nú alltaf fundið e-ð að öllu þá verð ég bara að segja að nýju blöndunartækin eru soldið fáránlega breið, næstum jafn breið og baðkarið (ætli það sé þá kannski baðkarið sem er svona mjótt?!?). Ef ég ætti barn þá gæti ég allavega leyft því að fara í sturtu núna, hefði ekki þorað því áður. Eyrún15:22Comment<