Held það séu e-r álög á mér að eignast alltaf reykingarnágranna sem angra mig. Í fyrra vetur reykti konan við hliðina svo mikið í eldhúsinu sínu að lyktin kom yfir í okkar eldhús (dyrasímarnir eru sitt hvorum megin á veggnum og með gat í gegnum vegginn!). Svo loksins þegar hún flutti út og við hættum að finna reykingarstybbuna hennar þá flutti fólk í íbúðina fyrir neðan þar sem maðurinn (og allir gestir hjá þeim held ég) strompreykir úti á svölum svo það er ekki hægt að hafa gluggana opna hjá okkur!! Er algjörlega ÓÞOLANDI að finna alltaf endalaust reykingarstybbu inni í sinni eigin íbúð! Sérstaklega þar sem ég þoli ekki sígarettureyk!!! Eyrún00:42Comment<