Rakst á nokkuð athyglisverða grein um stelpur sem vilja ekki reikna. Þar segir höfundurinn að vegna þess að tölvunarfræðin sé komin undir verkfræðideild þá sé verið að minnka stærðfræðina og færa hana aftar til að fá fleiri stelpur í deildina. Skil nú ekki alveg hvernig hann fær þessa niðurstöðu því mér vitanlega hefur EKKI verið minnkað við stærðfræðina í hinum verkfræðiskorunum. Ekki einu sinni eftir ræðu Rósu Erlingsdóttur um að minnka þyrfti stærfræðina og færa hana aftar til að ná fleiri stelpum í verkfræði.
Mín skoðun er sú að það þurfi hreinlega að virkja stærðfræðiáhugann hjá stelpum miklu fyrr, helsta breytingin þurfi að vera hugarfarsbreyting inni á heimilunum! Einnig mætti gera kennsluna áhugaverðari en ALLS EKKI léttari því stelpur geta alveg jafn vel og strákar lært stærðfræði EF áhugi er fyrir hendi.