Ohhh hvað það er frábært þegar veðrið er svona yndislegt eins og það er búið að vera undanfarna daga. Í gær fórum við Hafrún og Katla María í sund og flatmöguðum alveg heillengi þar til Katla María var búin að fá alveg nóg af því að bursla. Áður en við Jobbi fórum síðan heim keyptum við okkur ís og vorum úti á peysunni að borða ís þegar klukkan var að verða 10!! Alveg meiriháttar að geta það og ekki einu sinni komið júní.
Núna erum við komin norður á Akureyri þar sem við ætlum að vinna og hjálpa litla bróðir Jobba að læra fyrir prófin. Var hins vegar ekki mjög gaman að sitja inni í bíl í góða veðrinu í dag en ég náði þó eins og svo oft áður að sofna seinni hlutann af leiðinni og rétt vaknaði þegar við keyrðum inni í bæinn. Var e-ð að heyra á Stuðmenn minnst núna rétt í þessu, spurning hvort við förum í Sjallann á morgun... Eyrún00:37Comment<