Gat ekki einu sinni klárað kvöldið án þess að klúðra meiru, þóttist vera svaka dugleg að þeyta rjóma með töfrasprotanum svo gleymdi ég mér bara aðeins og skálin fór af stað og rjómi út um ALLT!!! Er nú ósköp fegin að fólkinu verði boðið heim til mömmu og pabba því það þarf sko heldur betur að þrífa íbúðina okkar eftir þessar tilraunir mínar í eldhúsinu... Annars hefur Jobbi svo sem alveg klúðrað líka í eldhúsinu, einu sinni opnaði hann pizzusósuflösku og það spýttist pizzusósa um ALLT eldhús og ALLA stofuna!!! Þá hló ég alveg hrikalega mikið:-) Fannst ekki alveg jafn fyndið þegar ég var að klúðra í dag... Eyrún01:58Comment<