Ég er farin að halda að tunglstaðan sé mér e-ð óhagstæð því þessu ætlar bara aldrei að linna. Reyndar var það nú ekki svo mikið í dag, við sváfum aðeins of lengi (alveg til 9) og þegar við vorum á leiðinni í vinnuna þá gleymdi ég að beygja til að skutla Jobba niður á Hlemm þ.a. við urðum að taka soldinn auka krók og við vorum mjög sein fyrir (eða ekki sein, erum bæði með sveigjanlegan vinnutíma). Núna er ég farin að aka eins og fyrirmyndarökumaður á að gera því miðað við óheppni mína undanfarna daga þá hlýt ég að verða tekin ef ég keyri of hratt eða yfir á bleiku. Ég tými því sko EKKI, allt í lagi að vera stoppuð svo sem, ég lifði það alveg af síðast en það er öllu leiðinlegra að fá sekt.
Langar að óska Baununum mínum góðs gengis í prófunum sem þær eiga eftir og í lærdómnum, Fjóla fer í próf á morgun og Helga Björt á föstudaginn. Ég er strax farin að kvíða fyrir að fara aftur í skóla í haust út af prófunum, það er alveg einstaklega leiðinlegt að vera í prófum en líka þeim mun skemmtilegra þegar þau eru afstaðin. You can do it girls!! Eyrún02:18Comment<