Af hverju geta sumir karlmenn ekki virt kvennaklósett merki og notað karlaklósettin?!? Hér í vinnunni var búið til kvennaklósett úr einu af klósettunum þegar við Magga fluttum hingað upp eftir (eru líka 3 aðrar stelpur að vinna hérna í sumar) en það virðist ekki vera nóg að vera með skilti á hurðinni sem stendur á "Kvennaklósett"! Í morgun voru báðar seturnar uppi og í hádeginu (eða í morgun) hafði e-r losað um ægilega pínu í maganum þarna inni og ekki hreinsað til eftir sig að því loknu!!! Ég hef sem betur fer bara heyrt af því en það dugar til að ég fari ekki inn á klósettið fyrr en í fyrsta lagi eftir þrif. Það vinna náttlega miklu fleiri karlar hérna en konur og þangað til núna í vor þá var bara ein kona hérna, og hún er í eldhúsinu. Spurning hvort þeir hagi sér eins og þriggja ára börn af einhverjum mótþróa... við séum kannski að ráðast inn á þeirra yfirráðasvæði... bara spekúlasion. Eyrún17:35Comment<