Langur og góður dagur að kvöldi (eða nóttu) kominn
Þá erum við komin heim aftur í kotið eftir vel heppnaðan útskriftardag hjá Jobba. Athöfnin var nú bara alveg eins og við var að búast, löng og ekkert sérstaklega spennandi. Veislan gekk síðan bara alveg ljómandi vel og við kíktum síðan til Ollýar þegar gestirnir voru farnir en hún var líka að útskrifast úr verkfræði í dag. Og af því að við þekkjum svo marga sem voru að útskrifast í dag þá fórum við í partý heima hjá Bínu en Logi var að útskrifast úr tölvunarfræði í dag. Þar sem ég er nú búin að þylja næstum alla upp sem ég þekki og voru að útskrifast þá var hann Guðmundur hennar Hafrúnar að útskrifast líka úr tölvunarfræði. Til lukku með daginn!!! Að auki var náttlega slatti að útskrifast úr rafmagns- og tölvuverkfræði sem ég þekki og ég óska þeim líka öllum til hamingju! Eyrún06:32Comment<