Það er ekkert smá átak í gangi hjá löggunni, ég er búin að mæta lögreglubíl í næstum hverri einustu bílferð sem ég hef farið í s.l. viku. Í morgun mætti ég t.d. 4 löggubílum á leiðinni í vinnuna, þ.e. frá Eggertsgötunni upp á Hestháls (skutlaði reyndar Jobba í vinnuna sína í leiðinni). Hef tekið eftir að þeir eru búnir að vera svaka duglegir að stoppa bíla sem fara yfir á rauðu þegar þeir eru að beygja, þ.e. þegar beygjubiðröðin getur loks lagt af stað yfir ljósin þá fara alltaf (oft) alltof margir bílar yfir. Hef svo sem ekkert nema gott um það að segja að löggan sé sýnileg, held það sé öllum fyrir bestu að fólk fari eftir umferðarreglunum því þá þurfa sumir (kall í vinnunni...) ekki að vera sjálfskipaðir lögregluþjónar og siðapostular í umferðinni (þó þeir séu ekkert fullkomnir ökumenn...). Ef e-r skyldi hafa áhuga á að vita þá er ég að baka, rosa dugleg, fyrir fjölskylduafmælið sem við ætlum að halda á föstudaginn:-) Eyrún23:18Comment<