Fórum á Matrix Reloaded í Háskólabíó í kvöld. Hringdum áður til að spyrja í hvaða sal hún væri sýnd, Sal 2 var okkur sagt. Ekkert mál, salur 2 er svo stór þó hann sé ekki stærsti. Þegar við mætum í bíó þá allt í einu vorum við minnt á að það er búið að breyta númerunum á sölunum! Salur 2 í dag er gamli salur 3!!!
Allavega átti ég nú von á betri mynd, allavega miðað við fyrri myndina sem ég er einmitt nýbúin að horfa á aftur. Alveg spurning hvernig þriðja myndin verður þá. Kemur allt í ljós. Eyrún02:09Comment<