Annað hvort er það! Fyrir utan allt messið við baksturinn um daginn þá er nú ÝMISLEGT búið að koma fyrir síðan þá. Í fyrsta lagi þá tók ég á móti fyrstu gestunum í gær hálf klædd, ómáluð og með óblásið hárið því þau mættu bara rétt eftir að ég skrifaði í gær. Þegar við vorum komin út á stétt í gærkveldi og vorum að bíða eftir leigubíl niður í bæ þá föttuðum við Jobbi að GSM símarnir okkar höfðu orðið eftir inni, en við gátum ekki náð í þá því lyklarnir af húsinu voru læstir inni!! Í dag dreif ég mig svo með strætó (ótrúlegt en satt því ég hafði ekki farið í strætó í nokkur ár!) til Hafnarfjarðar til að taka til eftir gærkveldið og ná í bílinn, þegar ég var búin að taka allt til þá fattaði ég að ég var bara alls ekkert með bíllykil með mér!!!! Þegar ég loksins var búin að fá far heim til mín aftur þá vorum við aftur komin á byrjunarreit, bíllaus. Við aftur í strætó inn í Hafnarfjörð og náðum þá í allt dótið okkar og þar með talið bílinn! Sem betur fer er frídagur á morgun því dagurinn í dag fór e-ð fyrir lítið.
Allt klúðrið í dag var þar sem við ákváðum að fara í fyrsta sinn í heila eilífð niður í bæ með Sigga, Önnu, Matthildi og Vigdísi. Fyrir utan það að það var e-ð aukaálag á leigubílinn þá lokaði allt klukkan 3 og við að koma niður í bæ rétt fyrir 2, það voru mega langar raðir alls staðar þ.a. eini staðurinn þar sem ekki var röð og kostaði ekki inn var Café Victor og við ákváðum að fara bara þangað. Þvílíkt og annað eins, fer ekki aftur þarna inn. Voru spiluð lög sem voru vinsæl þegar ég fermdist og það eru orðin nokkuð mörg ár síðan það var, ótrúlega furðulegt fólk þarna og ÓGEÐSLEGA sveitt loftið þarna!! Ég var kannski bara ekki nógu drukkin til að fíla þetta því Jobbi virtist alveg skemmta sér konunglega... enda var hann aðeins slappari en ég í dag... wonder why?!?!
Gærkvöldið var samt alls ekki svona slæmt eins og mætti lesa því fyrir utan þessi nokkur klúður þá skemmti ég mér alveg mjög vel og vona að hinir hafi gert það líka, við stelpurnar fengum allar að finna spörk hjá litla barninu þeirra Lindu Rósar og Sigga og var það ekki til að róa eggjahljóðin. Svo skemmti Baldvin Hrafn okkur með ýmsum ráðum, hann var starfsmaður Pizza Hut lengi framan af kvöldi og bakaði handa okkur pizzur í forrétt, hann vildi baka mömmu sína með kökukefli, fékk að fara í Bósa Ljósár búning og margt fleira. Eyrún02:07Comment<