Hefði betur verið bara heima í gærkveldi í staðin fyrir að dröslast niður í bæ eins og það væri algjört möst. Vorum í klukkutíma í bænum með enga regnhlíf (eigum ekki svoleiðis grip) og við komum svo gegnsósa heim að ég hefði alveg eins getað farið inní sturtu í öllum fötunum, jakkinn var blautur í gegn, sjalið 5 sinnum þyngra en venjulega sökum bleytu og buxurnar bæði blautar og drullugar!! Annars fannst mér alveg full mikið af krökkum á aldrinum 10-15 ára, það var eins og þeim væri alveg sama um veðrið en aðrir væru frekar heima. Er allavega fegin að við vorum bara heima yfir daginn, hefði verið frekar súrt að verða gegnsósa tvisvar á sama deginum. Eyrún11:03Comment<