Afmælisbarn dagsins er Linda Rós! Til hamingju með 24 ára afmælið Linda Rós!!! Í tilefni dagsins verður grillað með Bónerhópnum í kvöld en þangað til verður farið í gegnum meira dót í geymslunni og skattholinu.
Í gær var alveg ógrynni af gömlu skóladóti hent og ennþá meira sorterað, þetta er alveg meiri pínan!!
Eftir tiltektina í gær kláruðum við að horfa á fyrstu seríuna af 24. Úr því að ég var að segja frá skyndilegu myrkri í gær þá er ekki úr vegi að minnast á að í 23. þætti kom fram í byrjun að Drazen myndi hringja NÁKVÆMLEGA klukkan 22:45 í Jack og Senator Palmer, síðan þegar þátturinn leið þá hringdi hann nákvæmlega klukkan 22:30!!! Halda þeir að maður sé e-ð vitlaus eða hvað??? Samt tek ég vanalega ekki eftir svona löguðu, en samt jú ég tók eftir því í fyrri hluta seríunnar að einn var búinn að skipta um skyrtu á milli þátta (sem btw. liggja nákvæmlega saman í tíma!). Þetta eru náttlega sjónvarpsþættir þ.a. það er gert ráð fyrir því að það líði um vika á milli þátta hjá fólki en ekki að það sé horft á alla seríuna á rúmri viku. Eyrún15:28Comment<