Gríðarleg hamingja að geta núna skoðað álagningarseðilinn á netinu. Var reyndar ekki alveg jafn mikil gríðar hamingja þegar ég sá hann... reyndar fæ ég borgað frá skattinum svo það var þó allavega soldil hamingja en bara ekki næstum eins mikil og ég hafði vonað. Hélt ég ætti að fá alveg helmingi meira en svona er þetta víst bara. Svo held ég að Jobbi eigi líka að fá e-n pening endurgreiddan svo þessi peningur ætti nú líklegast að getað borgað flutninginn á dótinu út til Danmerkur sem er gott:-) Eyrún12:57Comment<