Ferlega gaman að því hvað landið er lítið og maður hittir ólíklegasta fólk á ólíklegustu stöðunum. Ekki datt mér í hug að við myndum hitta Ásbjörgu og Manga á Greifanum þegar við fórum þangað að borða í kvöld en það gerðist nú samt. Síðan þegar við fórum á Café Karólínu þá sátum við á borði með tveimur eldri mönnum og annar þeirra var Gaflari eins og ég og vissi alveg hverra manna ég væri. Var nú líka soldið fyndið að komast að því að pabbar okkar Manga höfðu unnið alveg heillengi saman í IBM og/eða Nýherja. Eyrún04:17Comment<