Þegar ég loksins gat drattast á fætur í morgun (varla að það hafi verið morgun lengur) þá ákvað ég að reyna að vera svakalega dugleg áður en Jobbi kæmi heim. Setti í 4 þvottavélar, fór með rusl upp í gám og lét garðstólanum upp á háaloft ásamt því að taka til. Þegar Jobbi kom svo heim héldum við áfram að vera dugleg og erum núna búin að ganga frá svaka miklu dóti, fullt farið upp á loft og herbergið er ekki lengur alveg eins og ruslakista:-) Vei!! Nú er bara að vera þolinmóður þar til við getum keypt annað skrifborð til að klára endanlega þetta herbergi. Annars vantar svolítið mikið ljós hérna, erum bara með 2 lampa en ekki enn búin að kaupa loftljós. Erum að spá hvort við eigum ekki bara að færa ljósið úr svefnherberginu hingað því það er hvort eð er ekkert rafmagn í dósinni í svefnherberginu. Bjánalegt að vera bara með ljós hengt upp í öðru herberginu og akkúrat í því þar sem það virkar ekki! Eyrún22:38Comment<