Í gær vorum við alveg svakalega dugleg, fórum og skoðuðum næstum allar búðir í Fiskitorginu, keyptum ekkert svakalega mikið en er búin að fá einhverjar hugmyndir að jólagjöfum. Svo þar sem að ég vissi að það væri byrjað að selja jólaskraut í IKEA þá fórum við þangað á leiðinni heim og keytpum nokkrar kúlur á jólatréð. Úr því að við vorum komin í Gentofte þá skoðuðum við líka aðeins í Elgiganten (=ELKO). Jobbi var alveg alsæll með þetta búðarráp því við grandskoðuðum næstum hverja eina og einustu raftækjabúð sem við sáum.
Fórum síðan í köku og meira LOTR RISK í gærkveldi hjá Fjólu og Ingólfi, svaka gaman. Eyrún14:24Comment<