Fórum í gær í Dýragarðinn og í Carlsberg safnið með Ingólfi og Fjólu. Við skemmtum okkur konunglega í Dýragarðinum, hlógum eins og vitleysingar að mörgæsunum, tróðum okkur inn í kanínugöngin og klöppuðum geitunum. Í Carlsberg safninu fengum við 2 miða sem við gátum skipt fyrir drykki á barnum. Ég fékk mér bjór, drakk reyndar ekkert svakalega mikið af honum en drakk samt alveg nokkuð marga sopa, smakkaði minn, Jobba og Fjólu en við fengum okkur öll sitt hvorn bjórinn. Er alveg þvílíkt stollt af mér því þetta var það mesta sem ég hef drukkið af bjór:-) Ég endaði hins vegar á því að fá mér bara Tuborg Squash sem er e.k. appelsínugos. Eftir þetta fórum við enn og aftur í Fiskitorgið, fengum okkur enn og aftur að borða á Pizza Hut (3ja skiptið hjá mér á einni viku!) og fórum svo í bíó. Þetta var fyrsta bíóferð okkar Jobba hér í Danaveldi en við fórum að sjá Bad Boys II.
Í morgun svaf ég síðan bara eins og sveskja næstum fram að hádegi, var alveg rotuð.
Núna er ég að bíða eftir að IcelandExpress byrji að selja farmiða fyrir tímabilið apríl-október því þá ætla ég að panta miða heim um páskana (byrja að selja eftir rúman klukkutíma). Fólki getur hugsanlega þótt það undarlegt að við ætlum að koma heim um páskana en ekki um jólin en þannig er nú bara mál með vexti að Fríða Rakel systir mín er að fara að fermast og okkur langar að vera í veislunni (ég get varla sleppt tilboði um að borða kransaköku!!). Eyrún13:46Comment<