Nú eru komnar gardínur fyrir alla glugga hjá okkur:-) Þvílíka hamingjan!! Reyndar á e-ð eftir að breyta gardínunum í svefnherberginu, annað hvort fáum við okkur nýja rúllugardínu eða þurfum að stytta þessar sem við erum með. Gengur víst ekki að láta gardínurnar vera yfir ofninum, þá gerir ofninn nú frekar lítið gagn og eins og það eru nú mikil þörf fyrir hann. Nú á "bara" eftir að hengja upp myndir á veggina en við erum meira að segja búin að kaupa ramma utan eina mynd sem við keyptum í Kína í fyrra!! Framtakssemin er bara næstum að fara með okkur;) Annars á ég nú stutt að sækja framtaksleysið... þó gömlu hjónin vilji nú ekki endilega viðurkenna það þá held ég að fjölskyldan á Fagrabergi 22 eigi met í framtaksleysi. Hvaða önnur fjölskylda hefur keypt eldavélaviftu og haft hana í bílskúrnum í 8 ár áður en hún var sett upp!!!! Væri gaman að heyra ef e-r gæti toppað þetta?? Eyrún23:10Comment<