Í gærkveldi borðuðum við fondue með Fjólu og Ingó. Eiginlega ekki hægt að segja að við höfum boðið þeim því þau mættu með kjötið með sér. Við (eða þá aðallega ég) sáum um allt annað, meðlæti, sósur og fondue pottinn. Önnur eins eldamennska hefur varla sést. Ekki að hún hafi verið e-ð flókin, sem hún einmitt er ekki heldur var ég byrjuð að búa til sósuna klukkan 4!!! Nýtt met hjá mér held ég. Þegar þau fóru þá vorum við búin að innbyrða 3 rauðvínsflöskur, 4 bjóra og 4 glös af Passoa (strákarnir áttu bjórana en við Fjóla passoað). Var alveg svaka stuð hjá okkur og við fórum í Actionary/Pictonary þar sem við Jobbi unnum:-) Byrjuðum á að bruna framúr þeim, síðan fengu þau að gera og náðu næstum að klára spilið áður en komumst næst að. Síðan skeiðuðum við upp völlinn og náðum að sigra!!!
Aðrar fréttir eru þær að núna er sumartíminn búinn svo við erum bara einni klst á undan klukkunni á Íslandi. Var ekki slæmt að græða eina klst í morgun:-) Eyrún11:59Comment<