Mér finnst alltaf svaka gaman að leyfa öðrum að vita hvað ég get stundum verið dugleg:-) Áðan sagði ég frá IKEA ferðinni okkar góðu en það sem ég gleymdi alveg að segja var hvernig við komum dótinu okkar heim! Eins og ég hef áður skrifað um þá ferðumst við mikið með almenningssamgöngum hér í Danmörku. Þótti okkur því við hæfi að reyna að dröslast í strætó með borðið (32kg flatur stór kassi), stólinn (13kg aðeins minni kassi) og allt hitt dótið (glerkrukkur, jólakökudallar, jólapappír + fylgihluti, öskjur, brauðbretti o.fl.). Við komumst heim með dótið alveg slysalaust og nokkuð stolt að hafa getað sparað tæpar 300dkr sem hefði annars farið í flutning á dótinu með BIBO :-).
Dem, ég ætlaði að fara að sofa þegar ég hætti að tala við Margréti fyrir miðnætti en núna er klukkan farin að ganga 2 og ég ekki enn farin að sofa! Það er kannski allt í lagi, ég þarf ekkert að mæta í skólann á morgun, ekki frekar en í dag:-) Best að koma sér í háttinn, svo maður vakni hugsanlega fyrir hádegi á morgun. Eyrún01:13Comment<