Til hamingju með daginn elsku besti bróðir minn og frábæri afi minn!!!!! Veit nú ekki alveg hvort afi eigi eftir að sjá þetta en við verðum bara að vona það besta. Hans Adolf litli sæti bróðir minn er 7 ára í dag og gáfum við systkinin honum nokkuð stóra bílabraut í afmælisgjöf sem við Margrét keyptum á meðan hún var hérna hjá okkur. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum var sá stutti í skýjunum með gjöfina og flugmóðurskipið sem hann fékk frá mömmu og pabba féll víst alveg í skuggann. Á nú eftir að fá að heyra í afmælisbarninu en mamma ætlar að hringja á eftir, get varla beðið, er svo langt síðan ég heyrði í henni síðast. Væri nú alveg til í að vera heima í afmæliskaffi núna en ég hef nefnilega ekkert svo oft verið í afmæli hjá honum, ég bjó í Sviss þegar hann fæddist, hef tvisvar verið í Englandi þegar hann hefur átt afmæli og er núna í Danmörku og krakkinn er bara orðinn 7 ára!! Eyrún21:27Comment<