Lá í þvílíku kasti hérna áðan með Fjólu og Ingólfi yfir þessum þætti sem sýndur er á TV2 rétt fyrir mat á sunnudögum. Þetta er fyrsti danski þátturinn sem ég næ nógu miklu af til að liggja í krampa yfir. Greyið Jobbi var bara inni í herbergi að reyna að klára e-ð skilaverkefni meðan við hlógum okkur máttlaus, hann fær sko að horfa í næstu viku.
Í dag var sko enginn sunnudagsmatur, heldur bara MIKIÐ sunnudagskaffi. Fjóla kom með köku, við áttum rjóma til að hafa með henni, ég bakaði kanilsnúða og svo bökuðum við n.k. súkkulaðibitakökur. Sem sagt algjört SYKURSJOKK!! Til hvers eru sunnudagar ef ekki til að fá e-ð gotterí að borða?? Bara spyr? Eyrún21:24Comment<