|
fimmtudagur, október 30Jafnréttissinni og feminismi Er það sami hluturinn?? Nei ég held ekki alveg, ég er allavega harður jafnréttissinni en ég er ekki ennþá búin að gera það upp við mig hvort ég eigi samleið með feministum. Líklegast þó, þrátt fyrir að ég sé ekki alveg að fíla þetta bleika þema hjá þeim. Stundum argast ég yfir því að hafa fæðst sem stelpa, það virðist vera á brattann að sækja á flestum vígstöðvum. "Eina" jákvæða við að vera kona er að fá að upplifa meðgöngu, fæðingu og brjóstagjöf, en það er engin smá fórn fyrir það því í staðin fara konur á túr einu sinni í mánuði í ca 30 ár!!!!! Er þetta sanngjarnt?!?!? Af hverju er ég ekki með typpi?!? Ég óskaði þess svo heitt þegar ég var lítil að ég tók upp á því að pissa standandi eins og frændur mínir! Vakti ekki mikla lukku hjá foreldrunum þar sem kynfæri kvenna henta ekki neitt svakalega vel til að pissa standandi fyrir framan klósettið. Ekki nóg með að strákar geti pissað standandi og þar af leiðandi næstum hvar sem er og hvenær sem er, sem er algjör lúxus, þá fá þeir hærri laun fyrir að vera með typpi, fá frekar stjórnunarstöður og eru oft taldir "hæfari" starfskraftar því þeir "þurfa ekki" að sjá um heimili eins og konan!! Á femin í vikunni (já ég viðurkenni að lesa femin) kom t.d. fram kona sem lenti í því í atvinnuviðtali að sett var út á það að hún væri ekki með ráðskonu!!! Ég leyfi mér að stórlega efast um að það yrði sett út á það hjá karlmanni þó hann ætti útivinnandi konu, hún myndi að sjálfsögðu sjá um heimilið og börnin þegar hann þyrfti að ferðast á vegum vinnunnar! Sem betur fer er ég í mjög góðu sambandi að þessu leiti (að öllu heldur að flestu ef ekki öllu leiti en það er kannski ekki málið hérna), er nokkuð mikið jafnvægi á öllu innan veggja heimilisins. En hversu oft hef ég fengið að heyra að þetta sé svona áður en það koma börn, eftir það breytist allt! Er það þess virði þá að eignast börn?? Eins mikið og mig langar að eignast barn, þá get ég líka sveiflast algjörlega yfir á hinn pólinn á ákveðið að ég vilji aldrei nokkurn tímann eignast barn því um leið minnki jafnréttið inn á heimilinu svo mikið. Að sjálfsögðu þarf það ekki að gerast en reynslan sýnir víst að það sé tilhneygingin. Annað sem angrar mig við að vera kona (já það er sko margt sem angrar mig) er krafan um að kona sé "alltaf" tip top fín og máluð, með bæði strípur og lit og ég veit ekki hvað og hvað. Ef karlmaður er hreinn og í hreinum fötum þá er hann flottur! Svo ég tali nú ekki um spariföt kynjanna, karlar þurfa í raun ekki að eiga nema bara ein jakkaföt og þau geta dugað honum í nokkur ár. Það heyrist nú e-ð ef kona mætir í sama dressinu í bæði brúðkaupin þetta sumarið og skírnina! Fyrir það fyrsta "passar" náttlega ekki sömu föt í skírninni og brúðkaupunum og því er nauðsynlegt að eiga mismunandi fín föt. Síðan ef það eru sömu gestirnir í brúðkaupunum þá er náttúrulega alveg vonlaust að mæta í sama dressinu í bæði brúðkaupin og þá þarf að strunsa aftur í fatabúðir. Mér finnst bara ekkert gaman í fatabúðum!!! (nema H&M hérna úti... þar fæ ég svo mikið af hversdagsfötum sem passa á mig, á góðu verði) Talandi um fatabúðir, þá eru stærðirnar á fötunum oft e-ð óskiljanlegar (enn og aftur fyrir utan H&M), ég nota yfirleitt (alltaf í H&M) nr. 40 eða Medium, en mér finnst t.d. í orðinu medium liggja að það sé meðalstærð. Hvernig stendur þá á því að ef ég leita mér að gallabuxum þá á ég oft í mestum erfiðleikum að finna buxur sem eru nógu stórar?!?!? Ég veit að ég er ekki í yfirvigt og engin svakaleg feitubolla (þó ég sé nú enginn tannstöngull heldur). Gott dæmi, er þegar ég keypti mér gallabuxur í Vero Moda heima í fyrra. Ég fann stærstu buxurnar á borðinu og viti menn akkúrat mín stærð, máta og þær smellpassa nema þær eru of stuttar. Ég kalla því í afgreiðsludömuna sem ég kannaðist vel við síðan í Flensborg og þegar hún kemur þá spyr hún mig: "Eru þær of litlar, ég get náð í stærri inn á lager!!". Þá spurði ég hana aðeins út í þetta, þá sagði hún að stærri númerin (líklegast 30+) seldust alltaf eins og skot þegar farið væri með það fram. Ætli málið sé þá að hafa það bakvið svo það fari ekki of mikið út af stóru númerunum og þess vegna þurfi ekki að panta eins mikið af því næst?? Þetta er mér alveg hulin ráðgáta. Ætli þetta sé ekki orðið með því lengsta sem ég hef skrifað hérna, ég býst við að ég gæti haldið lengi áfram en ætla samt að hætta þessu núna. Eitt í lokin alveg óháð þessu hér að ofan, er jákvætt:-) Við fáum tösku á eftir frá Íslandi með íslensku nammi og lambalæri:-) Ekki lítið sem ég er búin að hlakka til síðan Inga mamma hans Jobba sagðist ætla að senda okkur pakka!! Þúsund þakkir Inga!!!!! ![]() |
|