Nú erum við farin í 9 daga frí í skólanum sem á rætur sínar að rekja til þess að börn þurftu að hjálpa foreldrum sínum að ná upp kartöfluuppskerunni. Fyrir okkur er þetta bara afslöppunarfrí og munum við örugglega ekki gera neitt mikið, spurning hvort við förum ekki e-ð að skoða í búðir, væri ágætt ef maður gæti byrjað að finna e-rjar jólagjafir, ætla að reyna að koma þeim heim í nóvember þegar pabbi og kannski mamma koma hingað til okkar.
Annars var ég að panta mér handavinnu á netinu, verst að ég á ekki eftir að fá það fyrr en eftir haustfríið, annars hefði ég getað legið yfir jóladótinu. Ég pantaði dúk undir jólatréð, dúk á stofuborðið og skraut á jólatréð. Allt dótið er felt frá Bucilla sem er alveg soldið mikið maus en líka rosalega flott. Mun samt aldrei ná að klára allt þetta fyrir jól en það koma önnur jól eftir þessi jól:-) Eyrún14:29Comment<