Við Fjóla gerðumst algjörir plebbar í dag og fórum að horfa á Friðrik krónprins og Mary Donaldsen veifa á svölum Amalienborgar. Við vorum bara alveg nokkuð nálægt og náðum við alveg sæmilegustu myndum sem koma von bráðar í myndaalbúmið okkar. Þegar þau komu fram á svalirnar vantaði alveg að prinsinn gæfi tilvonandi konu sinni eins og einn koss, þó ekki væri nema bara á kinnina. Hann kyssti hana aðeins einn á handarbakið!
Allt sjónvarpið er núna að sjálfsögðu undirlagt undir þetta og verður örugglega alveg næstu daga líka.
Þegar Friðrik og Mary komu fram á svalirnar til að veifa fólkinu var alveg greinilegt hverjir voru æfðir í konunglegu veifi og hverjir ekki, held það hafi verið það eina sem vantaði smá upp á hjá Mary í dag en hún talaði meira að segja á dönsku á blaðamannafundinum eins og Mogginn er meira að segja búinn að segja frá. Talandi um Moggann þá keypti ég eitt svoleiðis eintak á Hovedbanegård á leiðinni heim:-)
Eftir veifið á Amalienborg fóru Friðrik og Mary til Fredensborg Slot að borða með foreldrum sínum en við Fjóla fórum þá í Fiskitorgið í staðinn úr því að okkur var ekki boðið í matinn með þeim. Gerðum svo sem ósköp fátt merkilegt þar nema bara rétt að skoða okkur um og fá okkur svo að borða á Pizza Hut. Er núna alveg frekar lúin eftir allt labbið í dag, ætla samt að fá mér ís og restina af íssósunni sem við bjuggum til í gær (brætt mars blandað með rjóma ala Inga tengdó, mmmmm). Eyrún20:01Comment<