Í gær var ég þvílíkt lengi í skólanum. Var alveg frá 8-16:15! Hef aldrei verið svona lengi í skólanum áður. Kvarta svo sem ekki, var minnstan hluta í fyrirlestrum, heldur var ég í tilraun og í tölvulab tíma. Til að toppa daginn ennþá meira þá lærði ég í allt gærkvöld líka:-) Finnst ég alveg svakalega dugleg:-) Er núna að spá hvort ég eigi ekki að hjóla í skólann... þoli nefnilega ekki að vera í klukkutíma á leiðinni í strætó og þurfa að skipta og alles! Eyrún10:22Comment<