Ekkert smá sem ég er búin að liggja í tölvunni undanfarna dag. Það sem meira er, þá er ég varla búin að browsa netið neitt. Ég er nefnilega búin að vera svo upptekin að koma mér upp nýrri síðu í Movable Type, það gengur líka bara þokkanlega. Er búin að vera að búa mér til gestabók í dag og er hún tilbúin. Á hins vegar eftir að þýða villumeldingar, er nú ekki alveg sú brattasta í þýðingunum. Svo er bara spurning hvenær ný síða fer í loftið, fer allt eftir því hvenær við munum eftir því að fara og tala við Netværksudvalget til að gefa okkur heimasvæði hérna á kollegíinu. Eyrún20:38Comment<