Jújú, nú er ný fjarstýring flutt inn á heimilið og þvílíka hamingjan. Síðan fjarstýringin okkar dó um daginn hefur verið afspyrnu leiðinlegt að hækka/lækka, skipta um stöð og hvað þá að skipta af sjónvarpi yfir á DVD/Video. Í einum auglýsingabæklingi þessa vikuna var auglýst fjarstýring mjög svipuð einni sem við höfðum skoðað á 300dkr nema þessi var auglýst á 59,95dkr þ.a. við skelltum okkur á hana. Þessi fjarstýring virkar á öll tækin okkar sem er nokkuð gott og þó hún geti nú ekki gert allt sem gamla fjarstýringin gat á magnarann þá erum við samt bara sátt:-) Eyrún11:46Comment<