Já gólfið var ekki teppalagt í gær, það var popplagt. Fjóla og Ingólfur voru í heimsókn hjá okkur í gærkveldi til að geta horft á Stjerne for en aften og var ég alveg svakalega dugleg að poppa handa okkur. Þegar ég kem með 2 skálar inn í stofu þá sleppi ég annari áður en hún er komin á borðið og *splass* hún fer í gólfið (sem betur fer plastskál). Var ekki lítið hlegið að mér þarna!! Næstum því jafn mikið og að einum þátttakandanum í sjónvarpsþættinum. Það var karlmaður sem söng eins og kona!!! Eyrún17:38Comment<