|
mánudagur, október 6Rafmagnað vandamál og fyrsta gardínan Uhuuuhuu:'( Við búin að vera rosa dugleg og áorka því að hengja upp ljósið í svefnherberginu en þegar við tókum fram fjölmælinn til að athuga hvernig við ættum að tengja snúruna þá komumst við að því að það kemur bara ekkert rafmagn úr blessaðri dósinni!! Því er mál að senda inspektornum á kollegíinu póst og kvarta yfir þessu og vonast til að það verði gert við þetta áður en við flytjum út. Hér gengur nefnilega allt frekar hægt fyrir sig, það tekur t.d. rúma viku að skipta um eldhúsinnréttingu í hverri íbúð því þeir vinna bara ca 2 tíma á dag í hverri íbúð!!!! Á meðan þarf fólk bara vaska upp inni á baði og svoleiðis skemmtileg heit auk þess að vera með allt á hvolfi í rúma viku! Við gátum samt komið upp gardínunni í eldhúsinu þ.a. nú erum við ekki til sýnis á kvöldin fyrir fólkið sem labbar framhjá. Eigum ennþá eftir að hengja upp gardínurnar í stofunni en þær koma nú fljótlega:-) Eigum bara eftir að skila einni gardínunni og fá aðeins breiðari... talandi um að skila, ég held að fólkið í skila deildinni í IKEA fari að þekkja mig, ég er næstum búin að skila oftar og meiru heldur en ég hafði á ævi minni gert áður en við fluttum hingað. Sem er einstaklega skemmtilegt í ljósi þess að ég hef alltaf þurft að dröslast til baka með það sem ég ætla að skila í strætó!!! Víst ég minntist á strætó þá er ekki úr vegi að minnast aðeins á bíla en það er einmitt vegna bílleysis sem við notum strætó svona óskaplega mikið. Við höfum mikið fengið að heyra að bílar séu dýrir í Danmörku og höfum alveg trúað því. Svo fórum við að athuga í dag hversu dýrir bílar væru hérna. Tókum eitt dæmi, þ.e. nýr VW Passat ódýrasta tegund. - Heima á Íslandi: 2.200.000iskr - Í Danmörku: 3.500.000iskr!!! Það munaði sem sagt 1.300.000iskr á bíl hér úti og heima!!! Ég svitnaði þegar ég heyrði tölurnar!! Ekki að við séum að fara að kaupa okkur nýjan Passat, langt því frá. Það er reyndar nokkuð flottur bíll sem ég væri alveg til í að eiga ef maður þyrfti ekki að borga svona mikið fyrir hann... |
|