Uppeldisaðferðir komu til tals núna áðan hjá okkur Jobba eftir að hann nennti ekki að spila lengur. Hann hótaði mér sem sagt að setja reykskynjarann í gang (hann er ennþá á eldhúsborðinu, ekki kominn í loftið) ef ég hætti ekki að suða um annað spil. Ég sagði að ég væri bara að láta eins og krakki sem hætti ekki að suða, hann sagðist þá ætla að sína mér að krakkinn myndi sko ekki komast upp með neitt suð!! Hann gæti bara sett reykskynjarann í gang í hvert sinn sem krakkinn myndi suða! Sem sagt, við erum hætt að spila þar sem ég gat nú ekki hugsað mér að vekja krakkana í næstu íbúð til að komast svo kannski að því að það myndi ekki einu sinni duga til að fá annað spil... Eyrún23:06Comment<