Er smá tilraunastarfsemi í gangi í eldhúsinu en við erum að steikja heilan kjúkling. Hingað til hefur það verið mjög einhæft, hann kryddaður með kjúllakryddi eða season all en núna er ekkert elsku mamma neitt. Núna bjó ég til kryddsmjör sem ég tróð undir húðina!!! Var með því subbulegra sem ég hef gert í eldhúsinu en kemur í ljós á eftir hvort það heppnist vel. Það sem ég þoli ekki við kjúkling er hvað maður þarf að elda hann lengi, nú er ég alveg að deyja úr hungri og tæpur klukkutími í matinn!!
Annars er ósköp ljúft að vera komin í helgarfrí:-) Markmiðið fyrir þessa helgi er að vera komin á fætur ekki allt of seint. Hvað allt of seint er, er síðan skilgreiningaratriði;) Eyrún19:24Comment<