Við lentum í vegatolli á leiðinni úr þvottahúsinu áðan! Voru saman komin ca 5-6 stykki af 5-7 ára krökkum sem ætluðu sko ekki að láta okkur sleppa í gegn nema borga milljón, einn setti meira að segja upp verðið 1 milljón danskar krónur!! Við vorum nú ekki alveg nógu skemmtileg held ég þegar við sögðumst ekki eiga neina peninga og löbbuðum í gegn hjá þeim. hehehe. Börnin hérna leika sér miklu meira úti heldur en börnin sem áttu heima á Eggertsgötunni, þar voru börnin oftast bara látin leika frammi á gangi svo mömmurnar fengju meiri frið til að læra!! (en þar með minnkaði náttlega friður annarra íbúa blokkarinnar því börnin voru ekkert í neinu þagnarbindindi þarna, bara þeim mun meira öskrað og gargað. Óuppalin óargardýr!! Eyrún12:43Comment<