Nú geta Fjóla og Helga Björt hætt að hneykslast á þvottaaðferðum okkar Jobba því síðan við Jobbi komum út erum við búin að vera svaka dugleg að þvo, þvoum mun oftar en heima á Eggertsgötunni þ.a. eins og í dag dugðu okkur 3 þvottavélar (tókum reyndar frá 4 vélar, skamm skamm). Höfum bara einu sinni þurft að þvo meira en 4 vélar (getum þvegið 4 vélar í einu) og það var þegar við vorum að þvo rúmföt af öllum gestunum okkar + ÖLL handklæðin okkar eftir heimsóknirnar.
Annars er helgin nú bara búin að vera svolítil letihelgi, gerði akkúrat ekki neitt í gær, sofnaði bara yfir Löggulíf um miðjan dag!! Haldiði að það sé leti!! Markmiðið er nú að vera aðeins duglegri í dag, spurning hvort maður reyni ekki að baka e-ð handa okkur, eigum rjóma sem við verðum að nota, bara spurning hvað maður eigi að baka... Einhverjar tillögur?? Eyrún12:11Comment<