Það er svo mikill hávaði hérna akkúrat núna að ég heyri ekki einu sinni í mínum eigin hugsunum!!!! Það er nefnilega verið að skipta út eldhúsinu í íbúðinni við hliðina og þeir eru að bora í vegginn sem er beint við hliðina á mér!!! Annars er nú komið hádegi þ.a. þeir fara fljótlega að hætta að vinna, þetta eru soddan letiblóð hérna. Reyndar byrja þeir klukkan 7 á morgnana! Er því fegin að það var akkúrat búið að skipta um innréttingu hjá okkur þegar við fluttum inn.
Þar sem það er verið að skipta í þessari viku um innréttingar í ansi mörgum íbúðum í rekkanum mínum þá vandaðist aðeins málið varðandi jólahlaðborðið sem rekkinn heldur á föstudaginn. Það verður nefnilega skipt niður á milli íbúa hvað hver á að mæta með og þar sem það vantar eldhús í ca helminginn af íbúðunum þá verða þeir bara að koma með hluti sem eru keyptir en hinir að sjá um eldamennskuna. Því þurfum við að elda e-ð sem við höfum ekki hugmynd um hvað er og því þá síður hvernig maður eldar það. Ætla að banka upp á í e-i íbúðinni og spyrja um uppskrift og aðstoð:) Eyrún12:09Comment<