Ég skrifaði hér á fimmtudaginn að ég væri ekki búin að gera upp við mig hvort ég ætti samleið með feministum, held reyndar að það hafi verið smá mis, því ég er ekki búin að gera upp við mig hvort ég eigi samleið með feministafélaginu sem er svo bleikt að ég gæti stundum ælt.
Alla vega, þá finnst mér þessi feminist free staðfesting vera fyrir neðan allar hellur. Hef séð svona á nokkrum bloggsíðum og meira að segja hjá stelpu því hún þoldi ekki feminista. Mér finnst þessi feminist free staðfesting vera hin MESTA karlremba! Væri alveg eins hægt að fá sér logo sem stendur "Ég vil hafa kynjamisrétti áfram!!!!".
Það sem fer líklega mest í taugarnar á mér er þegar ungum strákum finnst töff að vera karlremba. Halda að þeir séu meiri menn við það! En í raun eru þeir bara að reyna að upphefja sjálfa sig á kostnað annara og það er ALLTAF mjög leim. Eyrún13:34Comment<