Þá eru hugmyndir að næstum öllum jólagjöfunum komnar, allt komið upp í Excel skjal svo enginn verði nú útundan:) Ætla að reyna að kaupa slatta af gjöfunum á morgun og svo restina um helgina þ.a. ég geti sent mömmu með þetta allt saman heim til Íslands. Um að gera að spara sendingarkostnaðinn þegar maður er nískur í útlöndum. Vantar reyndar ennþá hugmynd handa 11 og 13 ára systrum mínum, foreldrum Jobba og ömmu og afa Jobba, annars er þetta allt komið. Verður ágætt að eiga bara Jobba eftir og ekki einu sinni kominn desember! Reyndar er ég í MESTUM erfiðleikunum með hann, get eiginlega ekki toppað gjöfina frá því í fyrra en þá gaf ég honum snjóbrettapakka. Síðan er alltaf möguleiki á að við kaupum okkur bara e-ð skemmtilegt og sætt, Jobbi stingur upp á X-box en ég upp á Kitchen Aid Hrærivél... skil ekki alveg neikvæðnina í garð hrærivélarinnar Eyrún20:05Comment<