Þá eru nokkrar gjafir komnar í hús, alls ekki leiðinlegt að vera allavega búin með hluta. Fannst samt alveg merkilegt, að ég var spurð hvort þetta væri gjöf, og hvort ætti að pakka inn í jólapappír. Jú takk, þakka ég pent fyrir. Síðan er pakkað inn í pappír og EKKERT meir. Og þar sem ég á nú ekki endilega slaufur eða krullubönd við allan mögulegan og ómögulegan pappír þá þarf ég að rífa utan af sumum pökkunum og pakka upp á nýtt. Reyndar eru alveg nokkrir pakkarnir sem fá að vera áfram í pappírnum sínum, sem ég get bætt við e-u skrauti. Gleymdi reyndar alveg að kaupa merkimiða... eins gott að ruglast ekki hver á að fá hvaða pakka. Eyrún16:28Comment<