Í fyrsta skipti síðan við Jobbi vorum í Kína þá keypti ég DVD handa okkur. Við erum reyndar búin að eiga þessa mynd í tölvunni í þónokkuð langan tíma en ekki ennþá horft á hana. Lét því loks verða af því að horfa á hana í gær eftir að ég kom með hana heim á DVD. Svo var hún meira að segja textuð á íslensku líka, dvd myndir sem keyptar eru hér eru yfirleitt ekki textaðar á íslensku líka. Notaði samt textann eiginlega ekki neitt þar sem maður er orðinn svo óvanur því. Eins og ég var föst í textanum alltaf heima. Eyrún13:48Comment<