Nú er önnin heldur betur farin að styttast í annan endann. Fer ég í tvö próf í Ljóstækni og Raforkukerfum en Stöðugleiki og stýring raforkukerfa er próflaus þar sem við gerum verkefni í forriti sem er mjög svipað því sem ég vann við hjá Landsvirkjun. Í því fagi er nú spurningin hvort það verði gefin einkunn eða staðið/ekki staðið. Held það verði nú mun auðveldara að hafa staðið/ekki staðið en það skiptir samt ósköp litlu máli hvort verður. Eyrún15:34Comment<