Mmmmm... það er alveg himneskt:-) Fékk reyndar bara 1/4 af einni plötu þar sem Jobbi týmdi ekki meiru en hálfri plötu!! Annars verður það nú alveg ágætt að geta þá fengið sér meira fljótlega.
Þegar ég var í Sviss þá var alltaf til súkkulaði upp í skáp sem var borðað bara þegar fólk vildi og átti ég ekki í neinum erfiðleikum með að stúta einni 100g plötu yfir einum sjónvarpsþætti. Jobbi benti mér því bara á þegar ég fór að suða um meira að ég vildi nú ekki bæta á mig jafn mörgum kílóum og komu í Sviss þ.a. ég sætti mig alveg við að fá bara 25g af súkkulaði. Annars er ég búin að ákveða það að gestir frá Íslandi fá ekki að borða neitt af íslenska namminu okkar, þeir geta bara fengið það á Íslandi alla daga!! Hins vegar bjóðum við upp á danskt góðgæti handa öllum íslensku gestunum okkar með bros á vör:-) Eyrún20:33Comment<