|
fimmtudagur, júlí 31Auglýst eftir úrinu hans Jobba Það er gott að eiga góða að. Guðni frændi á Fjarðarpóstinum skrifaði grein í blaðið í dag þar sem þjófurinn var hvattur til að skila úrinu sem var stolið og einnig ef fólk vissi hvar það væri að láta vita um það. Vonum núna bara það besta því það er frekar mikið svekkelsi að tapa úrinu:( Skattur barna og fullorðinna Úr því að ég er byrjuð að ræða um skattamál þá get ég alveg eins haldið aðeins áfram. Hvernig stendur á því að börn verði sjálfráða og fjárráða 18 ára en þurfa að borga skatta eins og fullorðnir 16 ára?!? Mér finnst það eiginlega fáránlegt. Álagningarseðillinn kominn Gríðarleg hamingja að geta núna skoðað álagningarseðilinn á netinu. Var reyndar ekki alveg jafn mikil gríðar hamingja þegar ég sá hann... reyndar fæ ég borgað frá skattinum svo það var þó allavega soldil hamingja en bara ekki næstum eins mikil og ég hafði vonað. Hélt ég ætti að fá alveg helmingi meira en svona er þetta víst bara. Svo held ég að Jobbi eigi líka að fá e-n pening endurgreiddan svo þessi peningur ætti nú líklegast að getað borgað flutninginn á dótinu út til Danmerkur sem er gott:-) mánudagur, júlí 28Komin inn í DTU Þá er svarið loksins komið frá Danmarks Tekniske Universitet. Þó við hefðum ekki miklar áhyggjur af því að komast inn þá er nú ágætt að vera búin að fá svarið svart á hvítu. Er þá bara eftir að klára að pakka dótinu, annars er nú bara allt að verða tilbúið. Erum núna að setja í kassa og verð ég bara að segja að þetta er nú ekki alveg það skemmtilegasta sem ég geri, svo ég tali nú ekki um blessaða verðmætamatið, það er algjör killer!! sunnudagur, júlí 27Þjófnaðir Í dag er búið að ræna okkur tvisvar!!! Fyrst var mogginn tekinn úr póstkassanum og eftir að við hengdum upp auglýsingu í stigaganginum þá hefur viðkomandi ekki þorað öðru en að skila honum þ.a. við gátum lesið hann. Seinni þjófnaðurinn var nú hins vegar öllu verri en nýja úrinu hans Jobba sem ég gaf honum í útskriftargjöf var stolið í kvöld. Við fórum í ljós og hann gleymdi úrinu inni í ljósaklefanum en fattaði það í sturtunni. Þegar hann var búinn að þvo svitann af sér var annar strákur farinn inn í klefann og við ákváðum að biðja stúlkuna um að ná í úrið þegar hann væri búinn. Það sem okkur datt hins vegar ekki í hug var að þegar hann kom út úr ljósunum var hann orðinn úrinu ríkari og hljóp út þrátt fyrir að starfsstúlkan hafi ítrekað kallað á eftir honum og hlaupið á eftir honum út. Frekar fúlt að tapa glænýju úri en hann fékk það fyrir tæpum tveimur vikum því það var ekki til þegar hann útskrifaðist. laugardagur, júlí 26Athyglisverð mynd aftan á Mogganum í gær Ef maður skoðar myndina aftan á mogganum í gær og sleppir því að lesa textann sem er undir, þá má skilja myndina á annan veg en ætlað er. Myndin sýnir stelpu sem er að mjólka belju og sprautar mjólkinni upp í sig (kemur reyndar fram að mjólkin hafi ekki ratað upp í munninn). Myndin gæti hins vegar alveg eins verið að sýna e-ð annað, þar sem einnig er "mjólkað" og út kemur hvítleitur vökvi... Borðið ALVEG að verða ready Fyrsta lakkumferðin er komin á borðið, verð alltaf spenntari og spenntari að sjá útkomuna. Reyndar er kostnaðaráætlunin farinu tæplega 100% fram úr áætlun eins og tímaáætlunin líka... Í gær reyndum við að taka myndir af vinnunni við borðið með símamyndavélinni
Þarna sit ég undir borðinu að bæsa undir borðinu því við viljum náttlega að það líti vel út frá öllum hliðum;) Takið þið eftir vinnuaðstöðunni?? Algjör snilld, borðið liggur á frystikistunni (sem betur fer er fólkið í fríi svo við getum læst frystikistunni í nokkra daga) og skáp sem ég byrjaði einu sinni að gera upp en gafst upp þegar ég fékk málningauppleysi í annað augað (var soldið vont...). föstudagur, júlí 25Fáránlegar draumfarir Ætli ég eigi ekki met í fáránlegum draumum. Í nótt vaknaði ég ótrúlega oft upp út af alveg fáránlegum draumum. T.d. hafði mamma (ég virtist búa heima hjá mömmu og pabba) komið heim með mink út af e-i áskorun og ætluðu þau bara að hafa minkinn þarna heima. Minkurinn var alveg ótrúlega kræfur og heimtaði rúm til að sofa og fékk að sofa í e-u barnarúmi!! Ég hins vegar var svo hrædd að ég læsti mig inni á klósetti þar til einhverjum ljótum og ógeðslegum hundi var sigað á minkinn og hann drepinn! fimmtudagur, júlí 24Rafmagnsleysi í nótt Einhvern tímann í nótt hefur rafmagnið farið af í Hafnarfirði, nánar tiltekið heima hjá mömmu og pabba í Setberginu. Þar sem vekjaraklukkan hans pabba gengur ekki fyrir batterýum þá blikkaði klukkan þegar ég vaknaði í nótt (sem betur fer vaknaði ég um miðja nótt). Var ég því alveg alsæl með að geta stillt klukkuna upp á nýtt til að við myndum nú ekki sofa yfir okkur (Ingvar þarf nefnilega að mæta á e-m hrikalega ókristilegum tíma, þ.e. 7:30). Aftur vakna ég ekki við klukkuna og lít á hana þá sýnir hún 08:07!!! Ég fékk alveg nett sjokk og hentist niður að vekja Ingvar. "Ingvar, Ingvar, klukkan er orðin átta!!", hann lítur á klukkuna og segir þreytulega "Eyrún, hún er sjö!!". Þegar ég stillti klukkuna í nótt þá bæði stillti ég hana klukkutíma of fljótt OG gleymdi að stilla vekjarann upp á nýtt!! Þvílíki sauðurinn!! miðvikudagur, júlí 23Litaval Nú er borðið okkar alveg næstum tilbúið, eigum aðeins eftir að klára að skrúfa plötuna í grindina og er þá komið að því að bæsa og lakka öll herlegheitin. Til þess þurfum við að velja lit á bæsið... sem er ekki svo auðvelt því eins og flestir ættu að vita þá er bæs mismunandi á litinn eftir því hvernig viður er undir og auðvitað viljum við velja einhvern alveg fullkominn lit, nema hvað. Þessa dagana erum við daglegir gestir í Húsasmiðjunni og Byko því það vantar alltaf e-ð smotterý. Hvað er það með þessar flugur?!?!? Er ein búin að vera hérna inni á skrifstofunni okkar Möggu síðan í gær og gerir ekkert annað en að bögga mann, fljúga hringinn í kringum hausinn á manni og setjast hér og þar og kitla mann. Ein fluga er nú samt líklegast skárri en RISA köttur eins og sá sem ég mætti í eldhúsinu heima í gær, hann hafði komið inn um glugga og fór sem betur fer fljótt út aftur þegar hann rakst á okkur Jobba (við erum greinilega svona mikil monster!!! hehehe). mánudagur, júlí 21Berglind gæsuð í gær Í gær var síðasta djammið með tilvonandi brúður áður en hún gengur upp að altarinu eftir tæpar 3 vikur. Heppnaðist dagurinn alveg ljómandi vel og samkvæmt áræðanlegum heimildum er gæsin í skýjunum eftir vel heppnaðan dag. Byrjaði dagurinn á keramikmálun í hádeginu, því næst farið í ratleik niður laugaveginn þar sem hún þurfti að ráða hinar ýmsu gátur til að finna næstu vísbendingu. Eftir smá óvissu um þyrluflug sem við höfðum pantað kom þó í ljós að við komumst með hana í þyrlu en það var alveg meiriháttar að fljúga í kringum Helgarfellið. Þar sem við vorum allar orðnar svangar eftir daginn grilluðum við pylsur í Nauthólsvíkinni í góða veðrinu áður en við fórum í sundlaugina á Hótel Loftleiðum og sendum gæsina í nudd. Á leiðinni heim til Hlínar komum við síðan við í tívolínu og skelltum okkur í stóra tækið sem er þar. Sú svaðilför kom maganum mínum í smá uppnám en þó hélst það sem ég hafði borðað á sínum stað:-) Partýið um kvöldið var hið skemmtilegasta og var fólk í mjög misjöfnu ásigkomulagi þegar farið var í bæinn... Lét áðan myndirnar sem ég tók inn á myndaalbúmið okkar. laugardagur, júlí 1930 dagar... Nú eru sko ekki nema 30 dagar þar til við förum út:-) Í gær vorum við ekki dugleg með borðstofuborðið okkar... fórum ekki einu sinni inn í Hafnarfjörð. Í staðinn fórum við til Þingvalla til Margrétar, Jóns og Alex slöppuðum þar af á pallinum, fórum í pottinn og grilluðum pizzu og grænmeti á teini. Það var nú ósköp ljúft að slappa bara af. Nú er hins vegar ekkert meiri afslöppun fyrr en borðið er tilbúið (ég mun reyndar vera stikkfrí í dag en jobbi ætlar að smíða). föstudagur, júlí 18busy fólk Við Jobbi erum búin að vera á haus núna alla vikuna að smíða borðið okkar og eru núna lappirnar komnir undir þverbitana. Er alveg ennþá soldið mikið eftir en planið er að reyna að klára þetta samt um helgina. Núna er ég samt bara með ryk í nefinu og finn þessa fínu ryklegt allan daginn!!! Frekar súrt! þriðjudagur, júlí 15Húsaleigusamningurinn kominn í hús!!! Þá er leigusamningurinn kominn í hús og við á leiðinni að skrifa undir, setja í póst og borga fyrstu leiguna á eftir. Jibbý jei!!! Þar sem við erum orðin svona líka HRIKALEGA spennt þá breyttum við fluginu okkar og förum núna út 18. ágúst sem er eftir ekki nema 34 daga!!! Haldiði að það sé spennandi!!!! Svo erum við líka að fara að drífa í að smíða borðstofuborðið, búin að láta hefla bitana og nú er "bara" að koma því saman... sjáum til hvernig útkoman verður. sunnudagur, júlí 13Fleiri afmæli, meiri tiltekt og að lokum meira 24 Afmælisbarn dagsins er Linda Rós! Til hamingju með 24 ára afmælið Linda Rós!!! Í tilefni dagsins verður grillað með Bónerhópnum í kvöld en þangað til verður farið í gegnum meira dót í geymslunni og skattholinu. Í gær var alveg ógrynni af gömlu skóladóti hent og ennþá meira sorterað, þetta er alveg meiri pínan!! Eftir tiltektina í gær kláruðum við að horfa á fyrstu seríuna af 24. Úr því að ég var að segja frá skyndilegu myrkri í gær þá er ekki úr vegi að minnast á að í 23. þætti kom fram í byrjun að Drazen myndi hringja NÁKVÆMLEGA klukkan 22:45 í Jack og Senator Palmer, síðan þegar þátturinn leið þá hringdi hann nákvæmlega klukkan 22:30!!! Halda þeir að maður sé e-ð vitlaus eða hvað??? Samt tek ég vanalega ekki eftir svona löguðu, en samt jú ég tók eftir því í fyrri hluta seríunnar að einn var búinn að skipta um skyrtu á milli þátta (sem btw. liggja nákvæmlega saman í tíma!). Þetta eru náttlega sjónvarpsþættir þ.a. það er gert ráð fyrir því að það líði um vika á milli þátta hjá fólki en ekki að það sé horft á alla seríuna á rúmri viku. laugardagur, júlí 12Ótrúlegt afrek... Í gær var sko farið á línuskautunum í Vesturbæjarlaugina, þar syntir 500m með nýju sundgleraugunum sem við keyptum um daginn og farið aftur til baka á línuskautunum!!! Annars gerðum við nú ekki mikið í gærkveldi annað en að horfa á sjónvarpið, horfðum alveg á nokkra 24 þætti og er nú klukkan orðin 20:00 í þáttunum. Því eigum við ekki nema 4 þætti eftir:D Eitt var nú samt ansi skondið, þ.e. hvað það dimmdi mikið á tímabilinu 18:59 til 19:01. Þegar 19 þáttur endaði þá var næstum alveg bjart úti en þegar 20 þáttur byrjaði þurftu Jack Bauer og George Mason að nota vasaljós til að sjá umhverfið sitt. Í dag á Fjóla afmæli, er hún núna orðin 24 ára og óskum við Jobbi henni innilega til hamingju með daginn!!! Planið fyrir helgina er búið að breytast ansi oft undanfarna daga, fyrst ætluðum við að smíða okkur borðstofuborð, næst fengum við ekki efni í það þ.a. við hættum við, síðan kom í ljós að við gátum fengið efnið þ.a. aftur ætluðum við að smíða borðið. Þegar við vorum búin að kaupa efnið kom síðan í ljós að við getum hvergi látið hefla það fyrr en eftir helgi þ.a. núna erum við að fara í gegnum geymsluna!!! Jibbý það er svooooo spennandi og gaman!!!! NOT!! miðvikudagur, júlí 9Komin með íbúð í Köben!!!! Þvílíka hamingjan á okkar bænum!!! Við erum búin að fá íbúð á Trørød Kollegiet en það er sama kollegí og Fjóla og Ingólfur eru á. Vildi svo skemmtilega til að við ákváðum að hringja í dag til að athuga stöðuna og kannski líka aðeins að troða okkur áfram en við vorum svo rosalega heppinn að þau voru með íbúð sem þeim vantaði leigendur í frá 1. ágúst og spurði hvort við værum til í að fá íbúð frá 1. ágúst! Hvort við vorum til í það!!! Íbúðin sem við fáum er ca 60 fm og erum við með eitt lítið aukaherbergi. ALGJÖR SNILLD!!!! þriðjudagur, júlí 8Charlie's Angels Fórum í bíó í gær á Charlie's Angels með stórum hluta Bónerhópsins og mökum þeirra. Myndin var bara alveg hin ágætasta skemmtun, alveg soldið mikið af rassadillingum fyrir strákana... Svo af því að við erum svo miklir "sjúklingar" þá horfðum við líka á 2 þætti af 24 í gær, einn yfir kvöldmatnum og einn eftir bíóið. Gaman gaman jibbý jei!!!! Helga Björt og Ingibjörn ætla að koma til landsins í ágúst!!! Veiiii!!!! Svo það sem mér finnst nú eiginlega skemmtilegast af öllu er að þau ætla að fara út aftur með sömu flugvél og við Jobbi!!! Við förum sem sagt saman til útlanda!!:D Nema kannski bara að þau fara náttlega áfram til Århus á meðan við verðum eftir í Kaupmannahöfn. mánudagur, júlí 7Folald í umferðinni... og meira Hefur greinilega gleymst að kenna einu folaldi umferðarreglurnar, því þegar við vorum rétt komin út fyrir Akureyri þá var nokkuð stálpað folald á þjóðveginum og var alveg soldið lengi að átta sig á því að það væri nú betra fyrir það að koma sér af veginum. Sá soldið eftir því að hafa ekki kippt upp myndavélinni og tekið mynd af dýrinu þarna á veginum. Við heyrðum svolítið skemmtilega sögu frá Hákoni en við heimsóttum hann í sundlauginni að Varmalandi á leiðinni heim. Var einu sinni stelpa að keyra á Fiat Uno niður í Hvalfjarðargöngin. Þar sem það var nokkuð brött brekka niður þá náði hún bílnum upp í 130 km/klst þegar myndavélin í göngunum náði mynd af henni. Hún vildi náttlega helst losna við sektina þannig að hún fór niður á sýslumann/löggustöð og sagði við starfsmennina að hún væri á Fiat Uno og ef þeir vildu reyna að ná bílnum upp í 130km/klst þá mættu þeir endilega reyna, myndavélin hlyti að hafa ætlað að taka mynd af bíl sem hefði tekið fram úr henni eða e-ð álíka. Þeir trúðu því ekki sjálfir að bíllinn kæmist upp í þennan hraða þannig að sektin var felld niður!! Þetta kalla ég að kunna að bjarga sér! Annars erum við orðin svo ferlega húkkt á þessum 24 þáttum sem við erum með í láni að við erum búin að horfa á 2 þætti síðan við komum heim í kvöld og erum núna búin með 10 þætti, ef ég þyrfti ekki að vakna í vinnu í fyrramálið myndi ég sko horfa á ennþá meira. sunnudagur, júlí 65 af 24... Búið að vera smá maraþon hjá okkur Jobba núna í kvöld og er ég búin að horfa á 4 þætti af 24 í dag. Þetta eru alveg ótrúlega spennandi þættir!!! Verðum sko ekki lengi að klára seríuna með þessu áframhaldi. Í dag eru akkúrat 7 vikur þangað til við förum út! Eins og hefur svo oft áður komið fram á þessari síðu þá er ég farin að hlakka soldið til... thíhíhí, eða meira að drepast úr tilhlökkun :-) Best að koma sér upp í rúm og halda áfram með Röddina eftir Arnald Indriðason. Góða nótt. laugardagur, júlí 5Lítill heimur Ferlega gaman að því hvað landið er lítið og maður hittir ólíklegasta fólk á ólíklegustu stöðunum. Ekki datt mér í hug að við myndum hitta Ásbjörgu og Manga á Greifanum þegar við fórum þangað að borða í kvöld en það gerðist nú samt. Síðan þegar við fórum á Café Karólínu þá sátum við á borði með tveimur eldri mönnum og annar þeirra var Gaflari eins og ég og vissi alveg hverra manna ég væri. Var nú líka soldið fyndið að komast að því að pabbar okkar Manga höfðu unnið alveg heillengi saman í IBM og/eða Nýherja. föstudagur, júlí 4Allt ready Ekkert eftir nema bara labba út með dótið og keyra svo norður í RIGNINGUNA!! Þessir akureyringar, tala varla um annað en hvað það sé alltaf gott veður þarna fyrir norðan en nei nei ég held það hafi oftar verið vont veður en gott þegar við höfum farið norður. Jú ég skal alveg viðurkenna að stundum höfum við lent í brilliant veðri en líka í snjó þegar það er orðið gott í bænum... Jobbi er farinn út, best að drífa sig svo ég verði nú ekki bara skilin eftir... ;) Dúfnahólar 10 Hver kannast ekki við þennan alræmda partýstað?? Held annars að það sé alveg hrikalega þreyttur brandari fyrir þá sem eiga heima í Dúfnahólum. Þar búa núna einmitt Linda Rós, Siggi og Baldvin Hrafn en Linda Rós kláraði stúdentinn núna í vikunni TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ ELSKU LINDA RÓS!!! Hefði varla getað verið betri tímasetning, nú á hún rétt um 3 mánuði eftir eftir af meðgöngunni og gott að þurfa ekki að eiga neitt eftir þegar króinn kemur. Mér finnst bara verst núna þegar maður sér bumbuna stækka næstum milli daga að ég verði farin út þegar barnið kemur, á eftir að vilja koma strax heim að kíkja á það. Eeeen, þó það sé orðið ódýrt að fljúga á milli þá vaxa peningarnir víst ekki á trjánum (hvernig væri annars að fara að finna upp peningatréð??). miðvikudagur, júlí 2Twenty four Fengum loksins lánaða fyrstu seríuna af 24 hjá Margréti og Jóni. Við byrjuð strax í gærkveldi að horfa og horfðum á fyrsta þáttinn. Er nú búin að sjá e-ð úr þessum þáttum en nú verður sko tekin syrpa og við ætlum að klára þessa seríu á sem skemmstum tíma... Annars fórum við til Margrétar og Jóns í gærkveldi til að sníkja köku sem ég hafði óskað eftir, fengum frönsku súkkulaðikökuna sem klúðraðist hjá mér um daginn. Hún var nú öllu skárri en mín... hehe ekki erfitt heldur. |
|