|
laugardagur, nóvember 29Komin á klakann!! Eftir um 10 daga þögn og lygar þá er ég komin heim til Íslands. Ákvað að koma óvænt og hafa flestir þurft nokkrar sekúndur til að átta sig á því að maður sé komin í heimsókn. Fékk pabbi því kossinn á kinnina sem hann óskaði eftir í afmælisgjöf:-) Amma missti næstum því andlitið og missti veskið sitt í gólfið eftir að hún tók loks eftir mér. Síðan þegar ég hitti Margréti þá endaði hún á að fara að gráta, henni brá svo hryllilega mikið. Reyndar er Jobbi ennþá heima í Danmörku því það er svo mikið að gera hjá honum í skólanum. Vona að hann nái þá að vera duglegur á meðan ég verð á klakanum en ég fer aftur til baka á miðvikudaginn. Ef e-r vill ná í mig þá er ég með gamla gsm númerið mitt, 869-5425 og bý heima hjá mömmu og pabba:-) Alltaf gott að búa á hótel mömmu;) Vona að ég nái að hitta sem ALLRA flesta, finnst æðislegt að vera komin í heimsókn:-) föstudagur, nóvember 28Julefrokost í kvöld Í kvöld förum við Jobbi á Julefrokost hjá "rekkanum" okkar, þ.e. raðhúsalengjunni okkar hér á kollegíinu (11 íbúðir). Við eigum að mæta með stegte fiskefileter, remúlaði og sítrónur. Síðan ætlum við líka að mæta með hangikjet og uppstúf til að leyfa þeim að smakka. Er í þessum töluðu orðum að sjóða hangikjötið, er nokkuð mikil lykt hérna inni, veit ekki hvað þau myndu halda ef þau myndu finna hana... fimmtudagur, nóvember 27Jólatré í skólanum mínum:-) Ekki man ég eftir að hafa séð neitt einasta jólaskraut upp í skóla sem var á vegum skólans. Einstaka stofur voru skreyttar af nemendum en annað ekki. Í dag tók ég eftir að í DTU eru komin 4 jólatré upp á þakskyggni í 101 (aðalbyggingin) meira að segja með jólaseríum. Talandi um jólin þá er ég búin að kaupa ALLAR jólagjafirnar nema handa þeim baunum sem fá gjafir frá mér. Er alveg einstaklega snemma í því en hvað gerir maður ekki til að spara sendingarkostnaðinn?? Verð samt pottþétt á síðustu stundu með jólagjöfina handa Jobba því þar er ég ALVEG strand, hef bara ekki minstu glóru um hvað ég get gefið honum:S Tölvan í tómu tjóni Vá hvað tölvan okkar er orðin snarrugluð þessa dagana. Þegar maður kveikir á henni þá kemur stundum DISK BOOT FAILURE, svaka stuð. Hún er aftur farin að frjósa og þegar maður slekkur á henni þá kveikir hún sjálf á sér aftur eftir ca 5 mínútur og núna það nýjasta nýtt er að shut down virkar ekki!!! Ekki mjög traustvekjandi þegar ferðatölvan er í viðgerð á Íslandi og við höfum engan tíma til að kíkja á tölvuna, hún má bara ekki klikka endanlega fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku (þá á ferðatölvan að vera komin aftur). miðvikudagur, nóvember 26Pizza í matinn, mmmm Við ætlum að hafa pizzu í matinn í kvöld:-) Er svo langt síðan við höfðum pizzu síðast að ég get bara varla beðið:-) Talandi um mat þá gleymdi ég alveg að minnast á hvernig matarboðið á sunnudagskvöldið heppnaðist. Bauð upp á íslenskt lambalæri kryddað með "Lamb Islandia" pottagaldrakryddi og svo vorum við líka með Ný Sjálenskt lambalæri sem við keyptum kryddað. Í mat voru 8 íslendingar allir búsettir hér á kollegíinu. Þegar búið var að smakka bæði lærin kom í ljós að þau voru bæði mjög góð og ekki hægt að segja að annað væri betra en hitt. Fannst okkur þetta einstaklega fyndið þar sem íslenska lambið á að vera lang besta lambakjötið þar sem rollan étur lyng út í haga. Munum óhikað kaupa útlenskt lambalæri næst þegar okkur langar í svoleiðis:-) Stundum verður bara að reka ofan í mann þjóðrembuna þegar maður býr í útlöndum, þó íslenskt sé mjög gott þá er ekki þar að segja að allt annað sé vont... Sem dæmi get ég nefnt vatnið. Við getum vel drukkið kranavatnið hjá okkur en við þurfum bara að setja það í flöskur og kæla það því það kemur hálf volgt úr krananum. Fyrst fannst mér það ekkert gott og drakk það bara í neyð en núna get ég alveg þambað það, spurning hvernig manni smakkast íslenska vatnið þegar maður kemur aftur heim til Íslands. Monster's ball Í fyrsta skipti síðan við Jobbi vorum í Kína þá keypti ég DVD handa okkur. Við erum reyndar búin að eiga þessa mynd í tölvunni í þónokkuð langan tíma en ekki ennþá horft á hana. Lét því loks verða af því að horfa á hana í gær eftir að ég kom með hana heim á DVD. Svo var hún meira að segja textuð á íslensku líka, dvd myndir sem keyptar eru hér eru yfirleitt ekki textaðar á íslensku líka. Notaði samt textann eiginlega ekki neitt þar sem maður er orðinn svo óvanur því. Eins og ég var föst í textanum alltaf heima. AAAARRRRGGGG, hávaði!!! Það er svo mikill hávaði hérna akkúrat núna að ég heyri ekki einu sinni í mínum eigin hugsunum!!!! Það er nefnilega verið að skipta út eldhúsinu í íbúðinni við hliðina og þeir eru að bora í vegginn sem er beint við hliðina á mér!!! Annars er nú komið hádegi þ.a. þeir fara fljótlega að hætta að vinna, þetta eru soddan letiblóð hérna. Reyndar byrja þeir klukkan 7 á morgnana! Er því fegin að það var akkúrat búið að skipta um innréttingu hjá okkur þegar við fluttum inn. Þar sem það er verið að skipta í þessari viku um innréttingar í ansi mörgum íbúðum í rekkanum mínum þá vandaðist aðeins málið varðandi jólahlaðborðið sem rekkinn heldur á föstudaginn. Það verður nefnilega skipt niður á milli íbúa hvað hver á að mæta með og þar sem það vantar eldhús í ca helminginn af íbúðunum þá verða þeir bara að koma með hluti sem eru keyptir en hinir að sjá um eldamennskuna. Því þurfum við að elda e-ð sem við höfum ekki hugmynd um hvað er og því þá síður hvernig maður eldar það. Ætla að banka upp á í e-i íbúðinni og spyrja um uppskrift og aðstoð:) sunnudagur, nóvember 23Klaufaskapur og marblettir Hvað er málið með klaufann í sjálfri mér?? Þegar ég var unglingur þá átti ég nokkuð erfitt með að stjórna útlimum mínum og gekk á næstum allt sem fyrir mér varð! Það minnkaði síðan töluvert en mér til mikillar armæðu hefur þetta tekið sig upp aftur. Geng ítrekað á hurðirnar hérna, labba á stofuborðið o.s.frv. þ.a. ég er þessa dagana alltaf með nokkra marbletti út um allt og alveg helaum!!! laugardagur, nóvember 22Nýyrði Í dag hafa komið 2 nýyrði upp úr honum Jobba. Það fyrra var hentissemiherra og hitt síðara var orðasambandið að rumska aðeins við e-m!! Þyrfti að safna svona "nýyrðum" (lesist vitleysu) sem veltur upp úr okkur. Góður laugardagur Dagurinn er bara búinn að vera þokkalegur þó ég hafi mest lítið fengið að komast í tölvuna. Bíð spennt eftir að fá fartölvuna aftur hingað út og þá vonandi verður búið að gera almennilega við hana. Í morgun fórum við Jobbi í verslunarleiðangur, fórum í sitthvoru lagi til að komast yfir sem mest á sem stystum tíma. Reyndar endaði á því að hann keypti ekkert nema kartöflur og ég keypti bæði rauðvínsglösin (sem upphaflega var bara mitt djobb) og fór og keypti annað lambalæri og í matinn í kvöld. Þetta var samt alls ekkert Jobba sök, því lærið var ekki til í búðinni sem hann fór í. Reyndar er nú þegar eitt glasið sem ég keypti í dag brotnað, vona að þetta sé ekki það sem koma skal. Glösin voru vissulega ódýr en samt ekki svo að ég tími bara að henda þeim í ruslið. Af því að ég er svo mikill plebbi þá ætla ég bara að fara að koma mér í að þrífa hérna, á laugardagskvöldi. Við fáum nefnilega fullt af gestum í mat á morgun og þá er nú ekki gaman að bjóða þeim í allan skítinn okkar, eða hvað? Arg og þvarg á morgnana Þegar ég er sofnuð, þá getur fátt vakið mig eða truflað svefn minn. Allavega svona oftast. Einnig get ég verið ansi úrill á morgnana ef ég er ekki búin að fá nægan svefn. Hef öskrað á hina og þessa þegar reynt hefur verið að vekja mig og einu sinni man ég eftir að hafa sparkað undan sænginni í eitthvert systkina minna og hrökk síðan upp því greyið barnið hafði dottið og ekki fundist það þægilegt. Þegar Jobbi kom heim í kvöld fékk ég síðan að frétta að ég hefði skammað hann í morgun. Mundi nú bara alls ekkert eftir því, en þá lét hann klukkuna sína hringja langt á undan minni í morgun því hann ætlaði að mæta fyrr í skólann. En svo nennti hann bara ekkert að vakna og snoosaði því bara mun lengur og ég skammaði hann sem sagt fyrir að stilla klukkuna svona snemma víst hann færi svo ekkert á fætur!! Rámar nú reyndar e-ð í það að hafa pirrast út í klukkuna í morgun en alls ekki að hafa skammað hann... Annars er nú bara merkilegt að ég hafi vaknað við klukkuna hans, hún rétt tístir aðeins og hún fær nú bara oft að hringja út ef ég þarf að slökkva á henni. Við erum reyndar ekki alveg sammála um gæði vekjaraklukknanna okkar, mér finnst hans algjört prump og mín alveg ljómandi fín (nema það þarf aðeins að laga volume takkann á útvarpinu, er alltaf í botni) en hann vill nú helst kasta minni fyrir borð og kaupa aðra svona tíst klukku. föstudagur, nóvember 21Meiri afmæli Í dag eiga tvær ungar stúlkur sem ég þekki afmæli. Fyrrum nágranni minn Hulda er 22 ára í dag og yndislega frænka mín hún Helena er 9 ára í dag! Til hamingju með daginn báðar tvær!! Msn listinn Merkilegt, núna eru 3/4 kontakta á msn listanum okkar away... Með AMSN þá getur maður séð hvort fólk sé inactive eða setur sig away, mér finnst það vera kostur. Klósettpappír Ég er með smá sérvisku þegar kemur að klósettpappírsrúllum. Ég þoli ekki þegar blaðið liggur niður upp við vegginn, og sný ég alltaf við rúllunni ef e-m hefur dottið í hug að snúa henni "öfugt" heima hjá mér. Ég læt það nú samt yfirleitt eiga sig ef ég er í annara manna húsum. Fannst því svolítið skondið að lesa um að Jennifer Aniston gerir þetta líka:-) fimmtudagur, nóvember 20Þvottur í rigningunni Váá hvað það er leiðinlegt að þvo þvottinn þegar það rignir úti!!! Önnin næstum búin Nú er önnin heldur betur farin að styttast í annan endann. Fer ég í tvö próf í Ljóstækni og Raforkukerfum en Stöðugleiki og stýring raforkukerfa er próflaus þar sem við gerum verkefni í forriti sem er mjög svipað því sem ég vann við hjá Landsvirkjun. Í því fagi er nú spurningin hvort það verði gefin einkunn eða staðið/ekki staðið. Held það verði nú mun auðveldara að hafa staðið/ekki staðið en það skiptir samt ósköp litlu máli hvort verður. viking og lowenbrau Myndaalbúmið okkar virkaði ekki alveg á lowenbrau og hefur ekki gert undanfarna daga en það virkar fínt á viking og er ég því búin að breyta linknum hérna til vinstri á myndaalbúmið. Hafa nú ekki komið neinar nýjar myndir nýlega en það verður vonandi bætt úr því fljótlega. Í öðrum fréttum er það að frétta að við fórum og versluðum annað skrifborð í dag og erum búin að vera á fullu í kvöld að koma öllu dótinu fyrir í litla herberginu. Fyrir utan smá drasl sem enn er ekki búið að ganga frá þá er þetta að verða nokkuð gott og þvílíkt skipulag sem komið er í neðri hluta hillunnar:-) Nú er líka komið loftljós í litla herbergið sem er alveg þvílíkur munur frá því sem áður var. Mamma og pabbi kvörtuðu einmitt yfir því að það væri lítið ljós hjá þeim þegar þau voru að rembast við að pakka ofan í ferðatöskurnar. Best að koma sér í háttinn... miðvikudagur, nóvember 19Afmæli Afmælisbörn dagsins og gærdagsins eru Fríða Rakel, sem varð 13 ára í gær og Matthildur sem er 24 ára í dag:-) Til hamingju með daginn báðar tvær!! Um helgina á svo Anna María afmæli, þ.a. ég hefði örugglega grætt e-ð af kökum ef ég hefði getað verið á landinu. En úr því að ég get ekki mætt í afmælin heima þá ætla ég að halda matarboð um næstu helgi í tilefni afmælanna og ég vænti þess að afmælisbörnin mæti... hehehe. þriðjudagur, nóvember 18Gestirnir farnir Nú erum við Jobba aftur orðin tvö ein eftir í kotinu. Mamma og pabbi fóru aftur í dag, mamma heim til Íslands en pabbi áfram til Finnlands. Var algjör SCHNIIIIIILLLLD að fá þau í heimsókn og ég réð mér varla fyrir kæti þegar ég sá þau koma út um tollinn á laugardaginn. Höfðum það alveg svakalega gott um helgina, fórum á Julefrokost á laugardaginn á Bistro eftir að hafa þrammað bæinn þveran og endilangan. Á sunnudaginn skoðuðum við næsta nágrennið hjá okkur og lágum svo bara í leti. Mamma hjálpaði mér síðan með Bucilla jóladúkinn þegar við nenntum ekki lengur að gera ekki neitt. Nú eru nokkrar jólagjafir handa okkur Jobba komnar upp í skáp og eins gott að verða ekkert forvitin. Ég veit þó alveg jafn vel og flestir mínir nánustu að ég er með forvitnari manneskjum norðan alpafjalla, verður bara ekkert gaman að opna pakkana á jólunum ef ég veit hvað er í þeim þ.a. ég ætla bara að vera svakalega settleg og ekkert skoða pakkana fram að jólum:-) Nammibindindið fór nú alveg í klessu á meðan mamma og pabbi voru hérna, ákvað bara að fá mér ALLT sem mig langaði í á meðan þau væru hérna og reyna svo bara að vera skynsöm þegar þau eru farin, sem þýðir það að ég hefði nú kannski átt að sleppa brjóstsykrinum sem ég fékk mér áðan... föstudagur, nóvember 14Jólagjafir - Part 2 Þá eru nokkrar gjafir komnar í hús, alls ekki leiðinlegt að vera allavega búin með hluta. Fannst samt alveg merkilegt, að ég var spurð hvort þetta væri gjöf, og hvort ætti að pakka inn í jólapappír. Jú takk, þakka ég pent fyrir. Síðan er pakkað inn í pappír og EKKERT meir. Og þar sem ég á nú ekki endilega slaufur eða krullubönd við allan mögulegan og ómögulegan pappír þá þarf ég að rífa utan af sumum pökkunum og pakka upp á nýtt. Reyndar eru alveg nokkrir pakkarnir sem fá að vera áfram í pappírnum sínum, sem ég get bætt við e-u skrauti. Gleymdi reyndar alveg að kaupa merkimiða... eins gott að ruglast ekki hver á að fá hvaða pakka. fimmtudagur, nóvember 13Jólagjafir Þá eru hugmyndir að næstum öllum jólagjöfunum komnar, allt komið upp í Excel skjal svo enginn verði nú útundan:) Ætla að reyna að kaupa slatta af gjöfunum á morgun og svo restina um helgina þ.a. ég geti sent mömmu með þetta allt saman heim til Íslands. Um að gera að spara sendingarkostnaðinn þegar maður er nískur í útlöndum. Vantar reyndar ennþá hugmynd handa 11 og 13 ára systrum mínum, foreldrum Jobba og ömmu og afa Jobba, annars er þetta allt komið. Verður ágætt að eiga bara Jobba eftir og ekki einu sinni kominn desember! Reyndar er ég í MESTUM erfiðleikunum með hann, get eiginlega ekki toppað gjöfina frá því í fyrra en þá gaf ég honum snjóbrettapakka. Síðan er alltaf möguleiki á að við kaupum okkur bara e-ð skemmtilegt og sætt, Jobbi stingur upp á X-box en ég upp á Kitchen Aid Hrærivél... skil ekki alveg neikvæðnina í garð hrærivélarinnar ![]() miðvikudagur, nóvember 12Tapað-fundið Merkilegt hvað maður getur verið lengi að taka upp allt dótið sem við komum með frá Íslandi. Var alveg búin að gefa upp alla von um daginn að finna útsaumað handklæði sem amma hafði gefið okkur sem og fjarstýringuna við græurnar sem eru inni í herbergi. Um daginn, þá fann ég hins vegar handklæðið ásamt fullt af sokkum og nærfötum í koníakskassa sem ég nota vanalega undir prjónana mína. Í dag fann ég svo fjarstýringuna ofan í öðrum gönguskónum mínum. Ekkert smá sem maður var duglegur að pakka niður;) ARG, algjört klúður með MT Váá hvað ég er orðin þreytt á að reyna að koma upp MT á heimasvæðinu mínu á kollegíinu. Kemur alltaf upp error þegar ég reyni að fara og logga mig inn, hún er að segja að það vanti Apache::Request Perl module en Jobbi var e-ð að reyna að halda því fram að það væri uppsett á servernum. Ætli maður sendi ekki bara samt póst á Netudvalget og spyrji út í þetta... Þrír dagar, það styttist... Já, nú eru ekki nema 3 dagar þar til mamma og pabbi koma Eins og gefur að skilja þá get ég ekki beðið!!! Með þeim munum við fá ýmislegt góðgæti frá Íslandi, hangikjöt og malt og appelsín sem mun bíða til jóla:) Verst að þau stoppa ekki nema fram á þriðjudag en maður verður víst bara að njóta þá tímans ennþá betur á meðan þau eru hjá okkur.þriðjudagur, nóvember 11Kim Larsen Vá hvað maðurinn er sjúskaður!! Hann var í Go' Aften Danmark á TV2 í kvöld og ég sá svona í mesta lagi 2 mínútur af viðtalinu. Á þeim tíma svaraði hann í gsm símann sinn en hann hringdi í miðju viðtali, sagði viðkomandi hvar hann væri og hvort hann mætti ekki hringja í hann seinna!! Halló!!!!!! slekkur maður ekki á símanum sínum áður en maður fer í sjónvarpsviðtal???? Ekki að ég hafi neina reynslu í sjónvarpsviðtölum, hef aldrei farið í slíkt þó ég hafi nú leikið í bíómynd einu sinni... En um leið og hann var búinn að skella á þann sem hringdi þá kveikti hann sér í sígarettu!!!!! Reykingarmenning Dana er alveg með því merkilegra hérna, það er líklegast það eina sem fer virkilega í taugarnar á mér hérna, það versta er að það breytist AKKÚRAT EKKI NEITT þó ég ergi mig á því:S Frekar mikil sóun á orku... Var því alveg svakalega glöð þegar ég sá "Reykingar bannaðar" skilti í Lyngby storcenter eftir að það var "opnað aftur" eftir endurbætur. Það sem verra er, að flestir reykja bara áfram og enginn kippir sér neitt upp við það... Þetta hlýtur samt að koma með tímanum. mánudagur, nóvember 10Nýjar myndir Loksins eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið okkar. Þær eru reyndar ekkert svakalega nýjar, orðnar um mánaðargamlar en hafa þó ekki birst áður:) Þetta eru að sjálfsögðu Dýragarðsmyndirnar sem misheppnaðist að setja inn þegar myndir fóru inn síðast. Vinátta Ég er í miklum pælingum þessa dagana um vináttu, hvernig eru sannir vinir, hvað þurfa vinir að bera, hverjir eru vinir manns? Af hverju eru sumir vinir en aðrir kunningjar? Ástæðan fyrir þessum vangaveltum er atvik sem gerðist um daginn. Ég varð ítrekað sár út í manneskju sem ég taldi mjög góðan vin. Hvað gerir maður í þeirri stöðu? Á maður að þegja og segja ekki neitt og verða bara sár og leið aftur og aftur? Eða á maður að segja aðilanum frá að það sé verið að særa mann? Ég veit að ef ég geri e-ð ítrekað sem vinum mínum/kærasta/fjölskyldu finnst leiðinlegt eða sárnar yfir, þá vil ég að sjálfsögðu fá að vita af því! Maður getur nefnilega aldrei vitað hvað aðrir eru að hugsa og það sem mér finnst innan marka getur öðrum þótt vera yfir strikið. Um daginn ákvað ég að segja manneskjunni frá því mér datt í hug að viðkomandi gerði sér ekki grein fyrir því hvernig ég leit á málið, sem er nákvæmlega það sem ég myndi vilja að gert yrði við mig ef einhverjum liði illa út af mér. Útkoman varð hins vegar ekki betri en sú, að viðkomandi manneskja hefur ekki vilja yrða á mig síðan. Ég veit ekki einu sinni af hverju viðkomandi vill ekki tala við mig. Hvað er hægt að gera í svona stöðu? Það er eitthvað sem ég veit ekki svarið við, því miður. Klipping Nú er Jobbi orðinn nýklipptur og fínn. Það sem merkilegra er, er að ég klippti hann!!! Fékk lánað klippisett hjá Fjólu og átti fyrst bara að fá að snyrta aftan á hnakkanum og fyrir ofan eyrun. Þegar það var búið, fannst honum lubbinn vera aðeins of mikill þannig að hann bað mig um að gera aðeins meira og svo aðeins meira og svo að lokum var mér meira að segja hleypt í toppinn. Þó ég segi sjálf frá þá er þetta alls ekkert svo hræðilegt:-) Er alveg þvílíkt stollt af nýfundnum hæfileikum;) laugardagur, nóvember 8Netlaus helgi Byrjar nú ekki vel, en ég fékk bara aðeins rétt að skreppa á netið hjá Jobba og svo byrja herlegheitin. Jobbi er meira að segja búinn að taka tölvuna úr sambandi eða e-ð álíka því það verður ekki kveikt á henni án þess að skríða undir borð og athuga málið. Spurningin er því núna, stenst ég að vera heima og fara ekki í tölvuna??? Hef svo sem nóg að gera, ætla nú samt að byrja á því að skríða aftur upp í rúm og kúra aðeins lengur. Svo verður það kannski bara bæjarferð ef ég get ákveðið mig með jólagjafahugmyndirnar sem ég fékk í bænum í gær. fimmtudagur, nóvember 6Nýr bónerfélagi!! Nú er nýr bónerfélagi á leiðinni og skv. áætluninni á ég að fá hann í afmælisgjöf (7. júní) á næsta ári!!! Veit að líkurnar eru nú ekki miklar, en samt ljómandi gaman að vona:-) Er búin að óska Bínu oftar en einu sinni til hamingju, en þegar gleðin er svona mikil, þá er víst ekki hægt að óska of oft til hamingju!!! Því segi ég: INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ BUMBUBÚANN YKKAR, ELSKU BÍNA OG LOGI!!!! miðvikudagur, nóvember 5Nammibindindi Ég er að spá í að fara í nammibindindi... Veit ekki alveg hvernig og hvort það muni takast með fulla efri skápa af sælgæti:S Jobbi stakk upp á að við myndum selja nammið!!!! GLÆTAN!!!! Ég vil allavega eiga það þegar ég fell;) Mandarínur og klementínur Ég þóttist orðið vita munin á þessu tvennu. Mandarínurnar eru litlar með þunnan börk en klementínurnar með þykkan börk sem er lausari frá bátunum. Í búðinni um daginn keyptum við okkur ekta mandarínur (allavega skv. minni skilgreiningu) en fyrir ofan þær stóð "Klementiner"!! Er kannski e-r önnur skilgreining á þessu hér í Danaveldi??? Íslenskt brennivín Í Netto tilboðsbæklingnum þessa vikuna er Íslenskt brennivín! Reyndar heitir það Geyser Akvavit, en ofar á miðanum stendur Islandsk Brennivin. Kostar ekki nema 60dkr 70cl flaska. Ekki að mig langi neitt í en alltaf jafn mikill þjóðar rembingur þegar maður býr í útlöndum... þriðjudagur, nóvember 4Bucilla Ollý kom með Bucilla dótið til mín sem ég pantaði á netinu þegar hún kom í heimsókn á sunnudaginn. Ég er aðeins búin að opna jólatrésdúkinn og er að vonast til að ná að klára miðju jólasveininn fyrir þessi jól. Hitt fær að bíða til næstu jóla sem og borðdúkurinn og jólatrésskrautið. Verð bara að passa mig að læra líka, væri MJÖG auðvelt að detta bara niður í handavinnuna og vakna svo upp 2 dögum fyrir próf, ÚPPSS gleymdi að læra. Nei, nei, það gerist ekkert. mánudagur, nóvember 3Siríus súkkulaði með hnetum Mmmmm... það er alveg himneskt:-) Fékk reyndar bara 1/4 af einni plötu þar sem Jobbi týmdi ekki meiru en hálfri plötu!! Annars verður það nú alveg ágætt að geta þá fengið sér meira fljótlega. Þegar ég var í Sviss þá var alltaf til súkkulaði upp í skáp sem var borðað bara þegar fólk vildi og átti ég ekki í neinum erfiðleikum með að stúta einni 100g plötu yfir einum sjónvarpsþætti. Jobbi benti mér því bara á þegar ég fór að suða um meira að ég vildi nú ekki bæta á mig jafn mörgum kílóum og komu í Sviss þ.a. ég sætti mig alveg við að fá bara 25g af súkkulaði. Annars er ég búin að ákveða það að gestir frá Íslandi fá ekki að borða neitt af íslenska namminu okkar, þeir geta bara fengið það á Íslandi alla daga!! Hins vegar bjóðum við upp á danskt góðgæti handa öllum íslensku gestunum okkar með bros á vör:-) Gult og rautt spjald á Rækkemøde Þegar Ollý var farin aftur í gærkveldi þá passaði akkúrat að fara á rækkemøde sem er fundur hjá raðhúsalengjunni sem við búum í. Spunnust alls konar skemmtilegar umræður og vakti "teppið" á gólfinu mikla lukku. "Teppið" er nokkurs konar púsl úr einhverju frauði og í hverju púsli var stafur sem hægt var að taka úr. Þetta er sem sagt hugsað fyrir son húsráðandanna en hann er þriggja en hálfþrítugt fólk skemmti sér konunglega með þetta. Á einum tímapunkti fannst einum svaka sniðugt að gefa öðrum gult spjald (gulur stafur úr púslinu) fyrir að hlusta ekki nógu vel, þá var nú ekki hægt að hætta þar og fékk sá hinn sami þá rauða spjaldið (var reyndar óskilgreint fyrir hvað...). Síðast þegar við mættum á rækkemøde þá vorum við búin að búa hér í eina viku og við náðum ekkert svakalega miklu en núna gat maður tekid adeins þatt og hlegið af brandörum (reyndar ekki alveg öllu en samt mörgu. Er farin að hlakka til að mæta á Rækkejulefrokost sem verður í lok nóvember. Erum að spá í að reyna að útvega okkur hangikjöti til að mæta með og leyfa fólki að smakka. sunnudagur, nóvember 2Ollý að koma Nú styttist í að Ollý komi í heimsókn... ætla að hitta hana niðrá Nørreport kl. 3 og hjálpa henni heim í sveitina;) Er búin að vera svaka dugleg í morgun og búin að baka geðveikt góða kanilsnúða:-) Helga Björt getur vottað að þeir séu góðir því ég deildi með henni uppskriftinni:-) Í kvöld verður síðan innbökuð svínalund með steiktum kartöflum og grænmeti. Verður alveg frábært að fá hana í heimsókn:-) Í skóm drekans Við horfðum á þessa mynd í gærkveldi. Ég var líklegast búin að heyra allt of mikið um þessa mynd, allavega fannst mér ekkert krassandi við hana. Jú hún var alveg oft fyndin á köflum en ég bjóst við meiru. Annars horfðum við á Gangs of New York í fyrrakvöld þó ég væri ekki alveg að nenna því. Myndin er alveg rúmur 2 1/2 tími og er það eiginlega of mikið fyrir mig. Ég ákvað samt að byrja að horfa á hana með Jobba og færa mig svo bara yfir í Friends ef ég myndi ekki meika þetta. Ég fór aldrei að horfa á friends en ég sofnaði þegar það voru ca 20 mín eftir (klukkan var orðin miklu meira en svefntími hjá mér þá!). Það sem er síðan eiginlega ótrúlegra er að ég horfði á afganginn í gær (ég horfi sjaldnast á restarnar af myndunum sem ég sofna yfir). Af þeirri ástæðu hef ég séð skrilljón fyrriparta úr myndum en vantar ansi oft endann... laugardagur, nóvember 1Feminist free staðfesting Hvað er með þetta eiginlega?? Ég skrifaði hér á fimmtudaginn að ég væri ekki búin að gera upp við mig hvort ég ætti samleið með feministum, held reyndar að það hafi verið smá mis, því ég er ekki búin að gera upp við mig hvort ég eigi samleið með feministafélaginu sem er svo bleikt að ég gæti stundum ælt. Alla vega, þá finnst mér þessi feminist free staðfesting vera fyrir neðan allar hellur. Hef séð svona á nokkrum bloggsíðum og meira að segja hjá stelpu því hún þoldi ekki feminista. Mér finnst þessi feminist free staðfesting vera hin MESTA karlremba! Væri alveg eins hægt að fá sér logo sem stendur "Ég vil hafa kynjamisrétti áfram!!!!". Það sem fer líklega mest í taugarnar á mér er þegar ungum strákum finnst töff að vera karlremba. Halda að þeir séu meiri menn við það! En í raun eru þeir bara að reyna að upphefja sjálfa sig á kostnað annara og það er ALLTAF mjög leim. |
|